Fréttablaðið - 27.01.2018, Qupperneq 89
Klasinn hefur verið lengi í mótun og það hefur tekið nokkurn tíma að samþætta
ólík sjónarmið aðildarfélaga sem
saman mynda heildstæða virðis-
keðju íslenska orkugeirans. Klasinn
er málsvari jarðvarmageirans á
Íslandi og er hann í samstarfi við
sams konar iðnaðarklasa í Frakk-
landi og Mexíkó. Fleiri lönd hafa
sóst eftir samstarfi við Iceland
Geothermal og það er ljóst að
mikill áhugi er á því að vinna með
íslenskum fyrirtækjum í verkefnum
tengdum endurnýjanlegri orku,“
segir Viðar Helgason framkvæmda-
stjóri Iceland Geo thermal.
Klasinn hefur frá upphafi verið
fjármagnaður af aðildarfélögum
og hefur það reynst farsælt fyrir-
komulag. Samstarf klasans við
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið, utanríkisráðuneytið og
sendiráð Íslands hefur reynst afar
mikilvægt í viðræðum Klasans
við erlenda aðila. Því ber einnig
að halda til haga að sendiherrar
erlendra ríkja hafa stutt Klasann
og veitt honum lið.
„Reynslan hefur leitt í ljós að
áhugi erlendra aðila á samstarfi
við íslensk fyrirtæki er mikill.
Vandinn hefur hins vegar verið
að skilgreina og ramma inn hvað
íslensk fyrirtæki hafa fram að færa
í samstarfsverkefnum. Greining
Klasans hefur leitt í ljós að það eru
einkum vinnustundir sem íslensk
fyrirtæki hafa lagt erlendum
samstarfsverkefnum til en íslensk
fyrirtæki hafa hins vegar til þessa
ekki getað boðið upp á fjöl-
breyttan tæknibúnað og þjónustu.
Þrátt fyrir áratuga rannsóknar- og
þróunarstarf á sviði jarðvarma-
leitar og -vinnslu og sérhæfðra
rekstrarlausna sem vakið hafa
athygli hefur einhverra hluta
vegna ekki tekist að markaðssetja
sérhæfðan jarðvarmabúnað og
þjónustu honum tengda erlendis.
Brýn þörf er á sameiginlegu átaki
til að skilgreina hvaða markmið
Íslendingar eigi að setja sér til að
halda utan um og auka verðmæti
rannsókna og þróunar. Orku-
geirinn er þekkingariðnaður og
standa Íslendingar að mörgu leyti
framarlega á þessum vettvangi í
samanburði við önnur lönd og
þá sérstaklega á sviði jarðvarma-
vinnslu. Samkvæmt nýlegri úttekt
hefur reynsla, þekking og hugvit
sem er afrakstur þessarar vinnu
ekki skilað sér í viðskiptalegu
forskoti á erlendum mörkuðum
en til að ná árangri og skila meiru
í þjóðarbúið er brýnt að þau séu
meðhöndluð sem viðskiptaleg
verðmæti. Sé sérstaklega horft
til stöðunnar sem hér er lýst og
sem við búum við nú um stundir
þá er eðlilegt að horft sé til sögu
jarðvarmageirans á Íslandi. Með
söguna að baki er farsælast að líta
til framtíðar og fylgjast grannt
með því á hvaða hátt samkeppni
á markaði endurnýjanlegra orku-
gjafa er að þróast.“
Í yfir fjörutíu ár hafa Íslendingar
verið leiðandi í að miðla rann-
sóknarniðurstöðum og reynslu
jarðvarmastarfseminnar og þá
helst í tengslum við þróunar-
starf og á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Þó að mikilvægt sé að
halda þessu starfi áfram er ekki
eðlilegt að framförum íslensks
þekkingariðnaðar sé miðlað án
þess að samtímis séu til hvatar sem
viðhalda frekari rannsóknum og
þróun.
„Verndun og skráning hugvits
og hugverka gerir mögulegt að
endurheimta kostnað tengdan
rannsóknar- og þróunarstarfi.
Íslenskt hugvit og íslensk hugverk
eru dýrmæt verðmæti á markaðs-
torgi vistvænnar orku. Hugverka-
réttindi eru einungis verkfæri, og í
raun einu tólin sem við höfum, til
að halda utan um þau gríðarlegu
verðmæti sem eru afrakstur rann-
sókna, þróunar og nýsköpunar.
Rétt er að árétta að það er einungis
í ákveðnum tilvikum sem hentar
að beita einkaleyfum,“ segir Viðar.
„Til að efla umræðu um stöðu
jarðvarma- og orkugeirans hefur
Jarðvarmaklasinn í samstafi við
Arnason Faktor og Intellecon látið
vinna greiningar á einkaleyfum
tengdum jarðvarmanýtingu. Á
sama tíma hefur Einkaleyfastofan
staðið fyrir vitundarvakningu
um mikilvægi einkaleyfa í iðnaði.
Síðastliðið hálft ár hefur Klasinn,
Einkaleyfastofan, Arnason Faktor,
Samorka og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið undir-
búið málþing til að ræða stöðu
þekkingar og virði hennar í við-
skiptalegu samhengi. Málþingið
ber yfirskriftina „Öld rannsókna
og þróunar – hugverkaréttur í
jarðvarmageiranum á Íslandi“.
Málþinginu er ætlað að vekja
atvinnulífið til umhugsunar um
hvert sé virði hugvits og hvert sé
mikilvægi þess að meðhöndla það
sem verðmæti þegar viðskipti eru
annars vegar. Málþingið verður
haldið í höfuðstöðvum Arion
banka 9. febrúar nk. og mun Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
flytja opnunarávarp. Jeff Skinner,
framkvæmdastjóri Institute of
Innovation and Entre preneurship
hjá London Business School flytja
ávarp á fundinum en auk hans
munu fjórir aðrir fyrirlesarar flytja
erindi. Forustumenn úr atvinnulíf-
inu munu taka þátt í pallborðsum-
ræðum. Skráning á málþingið fer
fram á heimasíðu bankans.
Viðar Helgason, framkvæmdastjóri Iceland Geothermal.
Virði
hugvits
og grænna
lausna
Klasasamstarfið Iceland Geothermal
hefur verið í stöðugri þróun frá árinu
2009. Samstafið byggir á samstöðu
ólíkra aðildarfélaga sem hafa öll það
að markmiði að vinna að framþróun
jarðvarma- og orkuiðnaðar á Íslandi.
IGC 2018 er ein stærsta viðskiptaráðstefnan á sviði
jarðvarma og verður haldin í fjórða sinn í Hörpu
á vegum Íslenska jarðvarmaklasans. Fjöldi erlendra
aðila ræðir þróun jarðvarma í heiminum.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur
opnunarávarp og Christiana Figueres, verkefnastjóri
loftlagssamningana í París, flytur ávarp.
Reykjavík · Harpa · 24–27 apríl, 2018
30
SÝNENDUR
40
LÖND
8
FRUMMÆLENDUR
17
ERINDI
60
FYRIRLESARAR
10
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Skráning og allar nánari upplýsingar: www.igc.is
VISION – DEVELOPMENT – OPERATION
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 7 . ja n úa r 2 0 1 8 oRKA ísLANDs
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-4
7
1
0
1
E
D
8
-4
5
D
4
1
E
D
8
-4
4
9
8
1
E
D
8
-4
3
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K