Fréttablaðið - 27.01.2018, Síða 91
Verkís hefur komið
að gerð vatnsafls-
virkjana í þremur bæjum
á Grænlandi.
Kristján Már Sigurjónsson byggingarverkfræðingur, Helgi Þór Helgason rafmagnsverkfræðingur og Carine Chatenay, byggingarverkfræðingur og viðskiptastjóri á orkusviði. MYND/ANTON BRINK
Georgíumenn standa framarlega í gerð vatnsaflsvirkjana en hafa ekki mikla
reynslu af því að gera jarðgöng við slíkar virkjanir.
Margar áskoranir blasa við mannkyninu í baráttunni við loftslagsbreytingar. Ein
af þeim stærstu er að þjóðir heims
færi orkuvinnslu sínu yfir í endur-
nýjanlega orkugjafa. Á Íslandi hafa
jarðvarmi, vatnsafl og vindorka
verið beisluð með góðum árangri.
Þegar Íslendingar kaupa rafmagn
til að lýsa upp skammdegið og
heitt vatn til að hita upp húsin sín
vita þeir að orkan var unnin með
aðferðum sem losa ekki gróður-
húsaloftegundir út í andrúms-
loftið. Íbúar margra annarra landa
heimsins eru ekki jafn heppnir.
Á síðustu árum hefur Verkís
komið að gerð vatnsaflsvirkjana
í þremur bæjum á Grænlandi.
Íbúarnir notuðu áður dísilolíu til
upphitunar en gátu sagt skilið við
hana og nýtt sér endurnýjanlegan
orkugjafa.
Frá árinu 2006 hefur Verkís tekið
þátt í að veita ráðgjöf um nýtingu
jarðvarma í Kína. Margt hefur áunn-
ist á þessum tíma og eru núna 300
þúsund heimili hituð upp með jarð-
varma, eða 30 milljón fermetrar,
sem áður nýttu sér óendurnýjan-
lega orkugjafa. Þannig var hægt að
draga úr losun koltvísýrings um sex
milljón tonn. Markmiðið er að 100
milljón fermetrar verði hitaðir upp
með jarðvarma árið 2020.
Sóttu reynsluna alla leið til
Íslands
Í Georgíu hefur aukinni eftir-
spurn eftir orku verið mætt með
vatnsaflsvirkjunum en þar í landi
er gas mikið notað til upphitunar.
Framkvæmdum við Dariali-vatns-
aflsvirkjunina í ánni Tergi í Georgíu
sem hófust árið 2011 lauk á síðasta
ári. Verkís var aðalhönnuður
virkjunarinnar og vann verkið í
nánu samstarfi við Landsvirkjun
Power auk fyrirtækja í Georgíu.
Verkís sá um verkhönnun, útboðs-
gögn, aðstoð við samninga og alla
deilihönnun, sem var að hluta til
unnin af undirverktökum ytra.
Kristján Már Sigurjónsson,
byggingarverkfræðingur á orku-
sviði Verkís, og Helgi Þór Helgason,
rafmagnsverkfræðingur á orkusviði
Verkís, héldu utan um verkefnið
fyrir hönd fyrirtækisins. Björn
Stefánsson yfirverkfræðingur var
einnig meðal aðalráðgjafa verksins
fyrir hönd Landsvirkjun Power.
Kristján Már segir að Georgíu-
menn standi framarlega í gerð
vatnsaflsvirkjana en hafi ekki mikla
reynslu af því að gera jarðgöng við
slíkar virkjanir. „Þar sem grafa þurfti
jarðgöng við Dariali-virkjunina varð
að sækja þá þekkingu annað og var
ákveðið að semja um hönnunina
eftir alþjóðlegt útboð. Landsvirkjun
Power og Verkís búa að þekkingu og
reynslu sem fyrirtækin hafa meðal
annars aflað við gerð Kárahnjúka-
virkjunar og virkjana á Grænlandi
og er það ástæða þess að fyrir-
tækin voru valin til að vinna verkið
í Georgíu,“ segir Kristján Már.
Jarðgangagerð á Íslandi hefur
einkum byggst á reynslu frá Noregi
þar sem beitt hefur verið hag-
kvæmum aðgerðum við bergstyrk-
ingu. Þessi þekking og reynsla leiddi
meðal annars til þess að leitað
var til íslenskra aðila við hönnun
Dariali.
Mörg tækifæri
Helgi Þór segir að það hafi verið
viss þröskuldur að komast inn á
markaðinn í Georgíu. „Eftir að fyrir-
tækið komst þangað, náði að sýna
sig og sanna og mynda tengsl hafa
orðið til fleiri tækifæri tengd vatns-
aflsvirkjunum en einnig í öðrum
geirum, svo sem jarðvarma og
samgöngum,“ segir Helgi Þór. Hann
nefnir að í því síðastnefnda séu
mörg tækifæri, meðal annars á sviði
jarðganga í Kákasusfjöllum og það
sé fagnaðarefni að Verkís taki þátt í
uppbyggingu innviða í Georgíu.
Það voru þó ekki aðeins Íslend-
ingarnir sem deildu þekkingu og
reynslu með heimamönnum í
Georgíu því starfsfólk Verkís fékk
einnig að kynnast öðrum aðferðum
til að fást við aurburð en notaðar
hafa verið hér á landi. „Áin Tergi,
sem var virkjuð, er gríðarlega brött
og jafnhalla og því var ekki hægt að
gera lón sem tekur við aurnum, líkt
og yfirleitt er gert á Íslandi. Þetta
er vandamál sem Georgíumenn
hafa reynslu af og fékk starfsfólk
Verkís tækifæri til að læra af þeim,“
útskýrir Kristján Már. Við inntaks-
mannvirki var byggð gríðarstór
setþró til þess að láta aurinn setjast
svo hann berist ekki í vélarnar og
valdi auknu sliti á þeim. Honum er
svo skolað út um sérstakar lokur
áður en setþróin fyllist.
Miðlun þekkingar í baráttunni
við loftslagsbreytingar
Íslendingar geta sannarlega lagt sitt af mörkum í baráttunni við loftslagsbreytingar með
því að miðla þekkingu sinni og reynslu í notkun endurnýjanlegra orkugjafa til landa sem
enn nota gas, kol og olíu til upphitunar og raforkuvinnslu.
Framleiðir 500 gígavattstundir
Virkjunin er í ánni Tergi, sem á upptök sín í Kákasusfjöllunum í Georgíu en
rennur til norðurs inn í Rússland, sveigir til austurs og endar í Kaspíahafi. Um
er að ræða rennslisvirkjun þar sem byggð var lág stífla með yfirfalli, flóð-
gáttarlokum, aurskolunarlokum, stöðvarinntaki og setþró. Þaðan rennur
vatnið um tveggja kílómetra langar, niðurgrafnar stálpípur sem tengjast sex
kílómetra löngum aðrennslisgöngum. Göngin voru boruð með gangaborvél
frá Robbins í Bandaríkjunum sem er sérstaklega ætluð fyrir harðar bergteg-
undir. Slíkar vélar voru meðal annars notaðar við gerð Kárahnjúkavirkjunar.
Við enda aðrennslisganganna eru um 40 metra löng, lóðrétt og stál-
fóðruð þrýstigöng sem tengd voru við þrjá Pelton-vatnshverfla í stöðvar-
húsi neðanjarðar. Vatninu er svo veitt aftur í ána Tergi í gegnum 400 metra
löng frárennslisgöng. Hönnunarrennsli er 33 rúmmetrar á sekúndu og
brúttó fallhæð er 390 metrar. Raforkan er flutt frá rafölum stöðvarinnar
með strengjum sem liggja í sérstökum strengjagöngum að aflspennum og
tengivirki ofanjarðar og þaðan um 110 kV háspennulínu inn á flutningskerfi
landsins.
Í dag framleiðir þessi virkjun um 500 gígavattstundir á ári án útblásturs
gróðurhúsalofttegunda. Ef jafnmikil orka hefði verið framleidd með jarð-
gasi má reikna með að því fylgdi um 250.000 tonna árlegur útblástur af
koltvísýringi.
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 7 . ja n úa R 2 0 1 8 ORKA ÍSLANDS
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-5
A
D
0
1
E
D
8
-5
9
9
4
1
E
D
8
-5
8
5
8
1
E
D
8
-5
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K