Fréttablaðið - 27.01.2018, Síða 106
Upplýsingatæknideild undirbýr innkaup á afritunar- og gagnageymslulausnum fyrir
Reykjavíkurborg. Um er að ræða gagnageymslu hýsta hjá Reykjavíkurborg auk þriðja
aðila, ásamt hugbúnaði til að taka afrit af tölvukerfum borgarinnar. Til skoðunar er
vél- og hugbúnaður ásamt þjónustu til að mynda heildstæða lausn.
Hluti af undirbúningi fyrir innkaupin er að kalla eftir upplýsingum frá aðilum á
markaði sem bjóða slík kerfi.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna virkni sinna kerfa, búnaðar og þjónustu
skulu vinsamlegast hafa samband við Tómas Guðmundsson tæknistjóra hjá
upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar fyrir 8. febrúar n.k. á netfangið
tomas.gudmundsson@reykjavik.is
Athugið að þessi markaðskönnun felur ekki í sér neina skuldbindingu um innkaup,
hvorki af hálfu Reykjavíkurborgar né áhugasamra aðila. Gert er ráð fyrir að
innkaupaferlið hefjist í vor en það verður framkvæmt í samræmi við lög um opinber
innkaup nr. 120/2016 og innkaupareglur Reykjavíkurborgar.
reykjavik.is/gagnageymslulausnir
Afritunar- og gagnageymslulausnir
Markaðskönnun vegna innkaupa
Meðal þeirra tíu f o r v i t n i l e g u my n d a s e m eru á Frönsku k v i k m y n d a -hátíðinni sem
hófst í gærkvöldi er kanadíska kvik-
myndin Iqaluit sem á rætur sínar
að rekja norður til Inúítabyggða í
Kanada norðvestanverðu en elstu
merki um byggð á þeim slóðum eru
talin um fjögur þúsund ára.
Inúítinn Natar Ungalaaq, einn
af aðalleikurum Iqaluit, er staddur
hér á landi í tilefni af hátíðinni og
hann segist koma frá því sem kallað
er Nýja svæðið eða Nunavut, eyju
sem kallast Iglooik og liggur tölu-
vert norðan við heimskautsbaug.
Sögur og aftur sögur
Natar Ungalaaq hefur alla tíð feng-
ist við að skapa list. Allt frá unga
aldri fékkst hann við að skera út,
útskurður er mikilvæg listgrein í
menningu Inúíta, og reyndar er
að finna útskurðarverk eftir hann
í National Gallery of Canada.
Ungalaaq og félagi hans, leikstjór-
inn Zacharias Kunuk, framleiddu
báðir listmuni og seldu til þess
að kaupa kvikmyndatökuvél árið
1981. Í framhaldinu stofnuðu þeir
framleiðslufyrirtæki í samfélagi
Inúíta þar sem sjónvarpið hafði enn
ekki hafið innreið sína.
Ungalaaq segir að það sem hafi
dregið að hann að kvikmyndinni
sem listformi hafi fyrst og fremst
snúist um að varðveita sögurnar
sem hann ólst upp við. „Í mínu ung-
dæmi var alltaf verið að segja sögur.
Sögur fyrir börn, fullorðna og gamla
fólkið, allir áttu og sögðu sínar
sögur. Þessar sögur hafa lifað með
okkur í gegnum aldirnar en heimur-
inn er að breytast og þess vegna átt-
uðum við okkur á því að það þyrfti
að varðveita þessar sögur og kvik-
myndavélin er frábær leið til þess. Í
framhaldinu fórum við svo að sjón-
varpa því sem við vorum að gera og
þaðan var eðlilegt næsta skref að
búa til kvikmyndir. Fyrir mig sem
listamann var þetta ákveðið ferli á
milli forma úr skúlptúrnum og yfir
í kvikmyndirnar en allt miðar þetta
að því að skapa eitthvað sjónrænt
og segja sögur.“
Saga kvikmyndagerðar Inúíta er
í raun samofin sögu þeirra Kunuk
og Ungalaaq sem segir að þeim
hafi þótt mikilvægt að geta nýtt sér
þessa tækni hvíta mannsins eins og
hann orðar það sjálfur. „Við áttum
nóg af sögum í okkar menningu
en þær voru allar óskrifaðar. Við
höfðum enga skrift eða lög sem eru
skrifuð á pappír en við áttum okkar
arfleifð. Þessar sögur eru enn sagðar
en við þurfum engu að síður að
tryggja framtíð þeirra og það er það
sem við erum að gera, skrásetja með
öllum þeim formum sem við getum
mögulega nýtt okkur svo allur þessi
ómetanlegi arfur verði aðgengilegur
komandi kynslóðum.“
Ólíkir heimar
Kvikmyndin sem Natar Ungalaaq er
mættur með á Frönsku kvikmynda-
hátíðina snýst þó ekki með beinum
hætti um að varðveita þessa arf-
leifð, í það minnsta ekki með
beinum hætti. Myndin heitir Iqaluit
og er í leikstjórn Benoit Pilon en í
aðalhlutverkum auk Ungalaaq eru
þau Marie-Josée Croze og Francois
Papineau. Sagan segir frá konu
sem kemur norður til Iqaluit eftir
að eiginmaður hennar slasast þar
við störf. Hún reynir að komast
að því hvað gerðist og kynnist við
það Nóa, Inúíta sem er vinur eigin-
mannsins og faðir ungs manns sem
tengist slysinu, og saman sigla þau
út Frobisherflóa í leit að svörum en
við ólíkum spurningum.
Natar Ungalaaq segir að upp-
hafið að samstarfi þeirra sem gerðu
myndina megi rekja aftur til mynd-
arinnar The Necessities of Life (Ce
qu’il faut pour vivre) og að þá hafi
þau öll skynjað að þau hefðu fundið
eitthvað gott, eitthvað sem skipti
máli. „Við vorum enn að vinna að
þeirri mynd þegar Pilon sagði við
mig að hann væri með annað hlut-
verk fyrir mig því þá var hann strax
farinn að hugsa um þessa mynd.
Málið er að það eru ákveðin
tækifæri fólgin í því að fjalla um
það þegar fólk frá ólíkum menn-
ingarheimum með ólík tungumál
stendur skyndilega frammi fyrir
því að þurfa að vinna saman. Þurfa
að kynnast, læra um hvert annað
og skilja hvert annað. Þetta er eitt-
hvað sem við erum að takast á við á
hverjum degi en hér er þetta sett í
afmarkaðar aðstæður og það gerir
þetta allt greinilegra og mjög lær-
dómsríkt.“
Hjálpsemi er lykillinn
Natar Ungalaaq segir að samband
Inúíta við aðra íbúa Kanada hafi
löngum grundvallast á sameigin-
legum hagsmunum í gegnum vöru-
skipti. „Án viðskiptanna er ekkert,
en ef þau eru til staðar og á jafn-
ingjagrunni og sanngjörn þá eru
þessi samskipti af hinu góða fyrir
báða aðila. Vélsleðinn er fljótari
en hundasleðinn og það er margt
við þeirra tækni sem gerir okkur
lífið aðeins léttara. Það breytir því
þó ekki að við viljum halda í okkar
lifnaðarhætti og okkar menningu.
Sumt helst vel en annað ekki eins
og gengur og gerist.“
En er þessi mynd að einhverju
leyti lýsandi fyrir þessi samskipti?
„Já, hún er það vegna þess að lykill-
inn að lífinu í norðrinu er fólginn
í hjálpsemi við erfiðar aðstæður.
En við reynum líka alltaf að hjálpa
hvíta manninum þegar hann
kemur norður rétt eins og við
reynum að hjálpa hvert öðru. Án
hjálpar er ekkert samband. Ekkert
mannsæmandi líf.
Ekkert af þessum lögmálum er
fært til bókar eða einhvers konar
skrifaður lagabókstafur heldur er
þetta hluti af því hver við erum.
Við berum þetta í blóðinu og það
er margfalt mikilvægara. En auð-
vitað verðum við líka að búa yfir
umburðarlyndi og virða að við
erum ekki öll eins. Besta leiðin til
þess að ná utan um þetta er að
skiptast á sögum. Hlusta á sögur
og segja sögur. Sögur eru í eðli sínu
til þess að deila þeim með öðrum
og því er vandfundin betri gjöf en
góð saga.“ Þess má að lokum geta að
kanadíska sendiráðið stendur fyrir
opnum viðburði kl. 20.30 í Háskóla-
bíói í kvöld, laugardagskvöld, þar
sem Iqaluit verður sýnd kl. 21.05
og aðgangur ókeypis.
Það er vandfundin betri gjöf en góð saga
Franska kvikmyndhátíðin stendur nú sem hæst og á meðal gesta er kanadíski leikarinn, leikstjórinn og
útskurðarmeistarinn Natar Ungalaaq sem fór út í kvikmyndagerð til þess að varðveita sagnaarfinn.
Natar Ungalaaq segir lykilinn að lífinu í norðrinu fólgin í hjálpsemi. Fréttablaðið/aNtoN briNk
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r42 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
8
-4
2
2
0
1
E
D
8
-4
0
E
4
1
E
D
8
-3
F
A
8
1
E
D
8
-3
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K