Fréttablaðið - 27.01.2018, Side 116

Fréttablaðið - 27.01.2018, Side 116
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 21.01.18– 27.01.18 SÍÐUSTU DAGARNIR Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Janúar útsalan ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is Ný og betri vefverslun ALLTAF OPIN Sæng aðeins 6.930 kr. SB – DÚNSÆNG Sæng 135 x 200 cm. 85% smáfiður og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver. Fullt verð: 9.900 kr 30% AFSLÁTTUR ÚTSALA SB – DÚNKODDI Koddi 50 x 70 cm. 70% smáfiður og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver. Fullt verð: 4.900 kr Koddi aðeins 3.430 kr. Birnir átti Bestu innkomuna Rapparinn Birnir er nýliði ársins, Aron Can átti besta lag ársins og Joey Cypher hafnaði í 2. sæti á árslista Robba Kronik og Benna B-Ruff, stjórnenda útvarpsþáttarins Kronik. B-Ruff og Robbi Kronik setja á hverju ári saman lista yfir það besta sem fór fram í hiphop-tónlist á árinu sem leið. ÓLafía missti Lögmann Óheppilegt atvik átti sér stað á þorrablóti Stjörnunnar þarsíðasta föstudag þegar áhættu- atriði veislustjór- ans, Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, og formanns þorra- blótsnefndar, Lúðvíks Steinars- sonar, fór úrskeiðis. „Þá renn ég til og missi hann í gólfið með höfuðið niður,“ sagði Ólafía í samtali við Lífið. Boða mat sem hefur verið hent Viktoría Viktorsdóttir hefur stundað svokallað „dumpster dive“ í um ár. „Við völdum engu tjóni, við erum bara að reyna að hafa góð áhrif á plánetuna,“ sagði Viktoría í samtali við Lífið. augLýsir skÓLann sem hann fÓr ekki í Þorsteinn Bachmann fer á kostum í auglýsingum fyrir Há- skóla Íslands þar sem hann leikur Smára Laufdal, rektor Háskólans í heppni. Þorsteinn gekk þó ekki menntaveginn í Háskólanum. „Það er hagkvæmt að versla á netinu,“ segir Eliza. NORDICPHOTOS/AFP Líf Elizu Reid, forseta-frúar Íslands, tók stakka-skiptum þegar eigin-maður hennar Guðni Th. Jóhannesson tók við embætti forseta Íslands. Embættinu fylgir heilmikið flakk og oft á köflum stíf dagskrá þar sem formlegheitin eru í fyrirrúmi. Þegar Lífið náði tali af Elizu var hún stödd í Boston ásamt eiginmanni sínum en hún gaf sér samt tíma til að spjalla stuttlega við blaðamann um fataval sitt og stíl þrátt fyrir þétt- skipaða dagskrá. „Ég get alveg viðurkennt það að tíska var ekki mitt stærsta áhugamál þegar þetta ævintýri okkar Guðna hófst fyrir 18 mánuðum. Ég hef lært heilmikið á þessum tíma og leita til vinkvenna minna með ráðleggingar. Ég er ekki með neinn stílista ef þú ert að spá í það.“ En það hlýtur að vera kúnst að setja saman réttan klæðnað fyrir opinberar heimsóknir? „Ég reyni að vera í fötum sem klæða mig vel og eru þægileg ég reyni líka að nota sömu fötin oftar en einu sinni. Þegar við lentum í Svíþjóð þá var ég kjól frá Hildi Yeoman, hann er þægilegur og fer mér vel, ég nota hann mikið. Ég nota íslenska hönnun í bland við annað, ég var til dæmis í kjól frá Berglindi Ómarsdóttur í kokteil- boði í Svíþjóðarheimsókninni en þann kjól átti ég áður en við fórum á Bessastaði.“ Forsetafrúin er ekki bara dugleg að gera íslenskri hönnun hátt undir höfði heldur klæðist hún gjarnan fatnaði frá heimalandinu Kanada. Forláta kápa úr smiðju Marie Saint Pierre hefur vakið mesta athygli en henni klæddist hún meðal annars í opinberri heimsókn í Danmörku á síðasta ári. Skartgripir forsetafrúar- innar hafa orðið tilefni til frétta- flutnings en hún gengur gjarnan með íslenska hönnun. „Ég reyni að nota það sem passar mér hverju sinni. Ég er hrifin af hönnun Aurum og Orr, skartgrip- irnir úr þeirra smiðju ganga vel við formleg tækifæri.“ En hvað með skó, þægindi umfram útlit? „Ég ferðast oftast með tvö pör af svörtum hælaskóm sem eru með göngusóla og passa með flestu, þeir eru þægilegir sem skiptir miklu máli, sérstaklega ef dagarnir eru langir.“ Heimili forsetahjónanna er barn- margt og þar er mikill erill og eins og gefur að skilja gefst ekki mikill tími til að fara á milli verslana í leit að heppilegum klæðnaði. Eliza nýtir sér þann kost að versla á net- inu og gerði nýlega vel heppnuð kaup. „Ég keypti galakjólinn sem ég var í í hátíðarkvöldverði sænsku konungshjónanna á netinu, ég hef ekki mikinn tíma til að versla. Það er hagkvæmt að versla á netinu og svo er varan komin í hendurnar á manni daginn eftir og úrvalið er takmarkalaust.“ En hvað með hár og förðun? Sér hún alfarið um það sjálf eða er ein- hver sem aðstoðar við slíkt? „Það er séð um hárgreiðslu og förðun í opinberum heimsóknum, það er fólk á hverjum stað sem sér um slíkt, en hérna heima geri ég þetta nú sjálf að mestu. Ég reyni nú yfirleitt að hafa sem minnst fyrir þessu en þegar mikið liggur við þá fæ ég aðstoð frá Helgu Kr. Einarsdóttur, starfsmanni for- setaembættisins, hún er algjör engill og virkilega flink í að hafa hendur í hári mínu,“ segir Eliza skellihlæjandi og er þar með rokin á fyrirlestur með eiginmanninum í Harvardháskóla. astahrafnhildur@frettabladid.is tíska var ekki stærsta áhugamálið Forsetahjónin voru nýverið í opinberri heimsókn í Svíþjóð og vakti Eliza mikla athygli fyrir smekk- legan klæðaburð en þar frumsýndi hún líka nýja hárgreiðslu sem klæddi hana vel. Öruggur og skarpur stíll Lífið leitaði eftir áliti Arnars Gauta Sverrissonar stílista á stíl Elizu. „Mér finnst helsta breytingin á henni frá því að hún tók við hlutverkinu vera meira öryggi í fatavali og skarpari stíll. Það tekur örugglega svolítinn tíma að finna sinn stíl í þessu starfi. Mér fannst kápan frá Marie Saint Pierre sem hún klæddist í opinberu heim- sókninni í Danmörku æðisleg. Ég vil sjá hana oftar í okkar frábæru íslensku hönnun eins og hún hefur stundum gert til dæmis með Berglind Clothing. Og ég er ánægður með breytinguna á hárgreiðslunni, það fer henni mjög vel að vera með hárið upp í hnút.“ 2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r52 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð 2 7 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 1 2 0 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E D 8 -6 4 B 0 1 E D 8 -6 3 7 4 1 E D 8 -6 2 3 8 1 E D 8 -6 0 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.