Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 116
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
21.01.18–
27.01.18
SÍÐUSTU
DAGARNIR
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Janúar
útsalan
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
Ný og betri vefverslun
ALLTAF
OPIN
Sæng aðeins 6.930 kr.
SB – DÚNSÆNG
Sæng 135 x 200 cm. 85% smáfiður
og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 9.900 kr
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
SB – DÚNKODDI
Koddi 50 x 70 cm. 70% smáfiður
og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 4.900 kr
Koddi aðeins 3.430 kr.
Birnir átti Bestu
innkomuna
Rapparinn
Birnir er nýliði
ársins, Aron
Can átti besta
lag ársins og
Joey Cypher
hafnaði í 2. sæti
á árslista Robba
Kronik og Benna B-Ruff, stjórnenda
útvarpsþáttarins Kronik. B-Ruff
og Robbi Kronik setja á hverju ári
saman lista yfir það besta sem fór
fram í hiphop-tónlist á árinu sem
leið.
ÓLafía missti Lögmann
Óheppilegt atvik
átti sér stað
á þorrablóti
Stjörnunnar
þarsíðasta
föstudag
þegar áhættu-
atriði veislustjór-
ans, Ólafíu Hrannar
Jónsdóttur, og formanns þorra-
blótsnefndar, Lúðvíks Steinars-
sonar, fór úrskeiðis. „Þá renn ég til
og missi hann í gólfið með höfuðið
niður,“ sagði Ólafía í samtali við
Lífið.
Boða mat sem hefur
verið hent
Viktoría Viktorsdóttir hefur stundað
svokallað „dumpster dive“ í um ár.
„Við völdum engu tjóni, við erum
bara að reyna að hafa góð áhrif á
plánetuna,“ sagði Viktoría í samtali
við Lífið.
augLýsir skÓLann
sem hann fÓr ekki í
Þorsteinn Bachmann fer á
kostum í auglýsingum fyrir Há-
skóla Íslands þar sem hann leikur
Smára Laufdal, rektor Háskólans
í heppni. Þorsteinn gekk þó ekki
menntaveginn í Háskólanum.
„Það er hagkvæmt að versla á netinu,“ segir Eliza. NORDICPHOTOS/AFP
Líf Elizu Reid, forseta-frúar Íslands, tók stakka-skiptum þegar eigin-maður hennar Guðni Th. Jóhannesson tók við embætti forseta Íslands.
Embættinu fylgir heilmikið flakk
og oft á köflum stíf dagskrá þar
sem formlegheitin eru í fyrirrúmi.
Þegar Lífið náði tali af Elizu var hún
stödd í Boston ásamt eiginmanni
sínum en hún gaf sér samt tíma til
að spjalla stuttlega við blaðamann
um fataval sitt og stíl þrátt fyrir þétt-
skipaða dagskrá.
„Ég get alveg viðurkennt það að
tíska var ekki mitt stærsta áhugamál
þegar þetta ævintýri okkar Guðna
hófst fyrir 18 mánuðum. Ég hef lært
heilmikið á þessum tíma og leita til
vinkvenna minna með ráðleggingar.
Ég er ekki með neinn stílista ef þú
ert að spá í það.“
En það hlýtur að vera kúnst að
setja saman réttan klæðnað fyrir
opinberar heimsóknir? „Ég reyni
að vera í fötum sem klæða mig vel
og eru þægileg ég reyni líka að nota
sömu fötin oftar en einu sinni. Þegar
við lentum í Svíþjóð þá var ég kjól
frá Hildi Yeoman, hann er þægilegur
og fer mér vel, ég nota hann mikið.
Ég nota íslenska hönnun í bland
við annað, ég var til dæmis í kjól frá
Berglindi Ómarsdóttur í kokteil-
boði í Svíþjóðarheimsókninni en
þann kjól átti ég áður en við fórum
á Bessastaði.“
Forsetafrúin er ekki bara dugleg
að gera íslenskri hönnun hátt undir
höfði heldur klæðist hún gjarnan
fatnaði frá heimalandinu Kanada.
Forláta kápa úr smiðju Marie Saint
Pierre hefur vakið mesta athygli en
henni klæddist hún meðal annars í
opinberri heimsókn í Danmörku á
síðasta ári. Skartgripir forsetafrúar-
innar hafa orðið tilefni til frétta-
flutnings en hún gengur gjarnan
með íslenska hönnun.
„Ég reyni að nota það sem passar
mér hverju sinni. Ég er hrifin af
hönnun Aurum og Orr, skartgrip-
irnir úr þeirra smiðju ganga vel við
formleg tækifæri.“
En hvað með skó, þægindi umfram
útlit? „Ég ferðast oftast með tvö pör
af svörtum hælaskóm sem eru með
göngusóla og passa með flestu, þeir
eru þægilegir sem skiptir miklu
máli, sérstaklega ef dagarnir eru
langir.“
Heimili forsetahjónanna er barn-
margt og þar er mikill erill og eins
og gefur að skilja gefst ekki mikill
tími til að fara á milli verslana í
leit að heppilegum klæðnaði. Eliza
nýtir sér þann kost að versla á net-
inu og gerði nýlega vel heppnuð
kaup. „Ég keypti galakjólinn sem
ég var í í hátíðarkvöldverði sænsku
konungshjónanna á netinu, ég hef
ekki mikinn tíma til að versla. Það
er hagkvæmt að versla á netinu og
svo er varan komin í hendurnar á
manni daginn eftir og úrvalið er
takmarkalaust.“
En hvað með hár og förðun? Sér
hún alfarið um það sjálf eða er ein-
hver sem aðstoðar við slíkt? „Það
er séð um hárgreiðslu og förðun
í opinberum heimsóknum, það
er fólk á hverjum stað sem sér um
slíkt, en hérna heima geri ég þetta
nú sjálf að mestu.
Ég reyni nú yfirleitt að hafa sem
minnst fyrir þessu en þegar mikið
liggur við þá fæ ég aðstoð frá Helgu
Kr. Einarsdóttur, starfsmanni for-
setaembættisins, hún er algjör
engill og virkilega flink í að hafa
hendur í hári mínu,“ segir Eliza
skellihlæjandi og er þar með rokin
á fyrirlestur með eiginmanninum í
Harvardháskóla.
astahrafnhildur@frettabladid.is
tíska var ekki
stærsta áhugamálið
Forsetahjónin voru
nýverið í opinberri
heimsókn í Svíþjóð
og vakti Eliza mikla
athygli fyrir smekk-
legan klæðaburð en
þar frumsýndi hún
líka nýja hárgreiðslu
sem klæddi hana vel.
Öruggur og skarpur stíll
Lífið leitaði eftir áliti Arnars
Gauta Sverrissonar stílista á stíl
Elizu.
„Mér finnst helsta breytingin
á henni frá því að hún tók við
hlutverkinu vera meira öryggi í
fatavali og skarpari stíll. Það tekur
örugglega svolítinn tíma að finna
sinn stíl í þessu starfi. Mér fannst
kápan frá Marie Saint Pierre sem
hún klæddist í opinberu heim-
sókninni í Danmörku æðisleg. Ég
vil sjá hana oftar í okkar frábæru
íslensku hönnun eins og hún
hefur stundum gert til dæmis
með Berglind Clothing. Og ég
er ánægður með breytinguna
á hárgreiðslunni, það fer henni
mjög vel að vera með hárið upp
í hnút.“
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r52 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
8
-6
4
B
0
1
E
D
8
-6
3
7
4
1
E
D
8
-6
2
3
8
1
E
D
8
-6
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K