Ljósið - 01.02.1909, Síða 10
26
LJÓSIÐ
Danir lengdu lífið þitt,
þú launar það vel maður!!!
A hirðir góðum hafðu trú,
herran blæs á reikinn,
kærleiks faðir kæíi nú,
kalda skolla-leikinn.
Haísteini er valdið veitt,
vit er gott í honum.
Þið Skúli gerið lífið leitt
landsins beztu sonum.
Ekki neitt er gramt mitt geð,
góð mér lýsir sólin,
Sjálfur drottinn sannleik með,
svalaði mér um jólin.
Margir hunda- á viltust -vað,
vit þó er í köllum
einn Krists andi óefað,
á að stjórna öllum.
Drottinn vor ei dó á kross,
það dó ei himnesk vera.
eilífi segir andinn oss,
ilt þarf nú upp skera.
Eg sannleik þori segja enn,
sjást á trú í verki,
það eiga að koma allir menn,
undir herrans merki.
Sízt mun vanþörf vera þér,
viltum þangað leita,
stælur allar stöðva hér
stráksandanum neita.