Ljósið - 01.04.1909, Page 5
L.TÓSIÐ.
69
Orð vill nota stór og sterk
stríðsmaðurinn nýi.
Er það klerka kraftaverk
að kæfa vit með lýgi ?
Eg held fullljóst mitt sé mál,
má því fólkið trúa:
andskotinn fær aldrei sál,
allir prestar ljúga.
Eg segi prestum sannleikann,
synd|þeir eiga grafa,
en herrarnir andskotann
i kirkjunni hafa.
Ýmsir leita að öndunum,
á Krist trúa ekki,
]>rgina selja löndunum,
ljóta trú eg þekki.
Sönn orð talar munnur minn,
minn er guð upphafinn;
hann fór strax í himininn,
herrann ei var grafinn.
Kirkir sannleik klerkurinn,
klerkur þykist fróður,
ein er trú og einn drottinn
alvitur og góður.
Ein hans kirkja, ein hans trú
á að verða í heimi,
þetta skilur þjóð mín nú,
þessu enginn gleymi.
Heimskir trúa hégóma,
heimsku þjóðin metur,
Kristur skírir kotunga,'
kónga og presta betur.
í hafið ekki færast fjöll,
eg frelsis sýni vottinn,