Ljósið - 01.04.1909, Side 11
LJÓSIÐ.
75
að börn sem lærðir biskupar
brjóta dauða lögmálið.
Peir Kristi neita og kærleik þjá,
kreddutrú sem bjóða oss,
bræður þurfa sannleik sjá,
sannur guð ei dó á kross.
Rannsakast á ritningin,
rengdu það ei, biskup minn,
gömul fjögur guðspjöllin
gaf oss ekki frelsarinn.
Fyrst þú heiður fékst og gull,
frelsið nota, herra minn,
hættu að breiða út beiðið bull,
hneixlaðu ekki bróður þinn.
Um lýgi margur lærður dalt,
ljóst mál írá mér sérðu enn.
Börnum eiga segja satt
sannir drottins kennímenn.
Drottinn vor ei dó á kross,
drottinn trúr ei fór í gröf,
frelsarinn, Jesú, frelsar oss,
frelsið hans er himnesk gjöf.
Herrann sem bjó holdi í
hann reis aldrei upp úr gröf,
samin verður saga ný,
sannleikur kemst yíir höf.
Herrann, Jesú heilagur
helvíti fór ekkert í.
Þú mátt vita, Þórhallur,
að þingmenn ílestir trúa því.
Heilagur drottinn himnum frá
heíir aldrei glímt við mann,
þú biskup átt það sjálfur sjá,
að synd er að kenna ósómann.