Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Meiri þátttökuhátíðÞað var vel mætt í árgangagönguna á Ljósanótt þó svo veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi. Afmælisárgangurinn,
fólk úr afmælisárganginum 1967, fór mikinn í göngunni með gleði og fjöri.
Golfmót var haldið í Leiru og púttmót á Mánaflöt í Keflavík.
Eldri borgarar í Reykjanesbæ eru duglegir púttarar.
Fornbílaeigendur Fornbílaklúbbs Íslands ákváðu að mæta
ekki á sýninguna þar sem þeim var ekki leyft að aka niður
Hafnargötu. Nokkrir bílar mættu þó á hátíðina og hér má sjá
einn aka fram hjá Gömlu búð.
Hjólbörutónleikar voru haldnir í þriðja sinn. Arnór Vilbergs-
son, Kjartan Már Kjartansson og Elmar Þór Hauksson héldu
uppi stuði í Keflavíkurkirkju.
Setning hátíðarinnar var á lóð Myllubakkaskóla í Keflavík og þar voru mætt um 2500
börn, grunnskólakrakkar og elstu nemendur leikskóla bæjarins. Risastór Ljósanætur-
fáni var dreginn að húni á eina hæstu flaggstöng landsins.
Flugeldasýning var í boði Toyota í Reykjanesbæ og björgunarsveitin
Suðurnes sá um framkvæmdina og gerði það vel að vanda. Það er
magnað hvað svona sýning dregur marga að. Stemmningin alltaf frá-
bær enda flott sýning í mögnuðu umhverfi Keflavíkurbjargs.
Fjórar mjög flottar listsýningar voru opnaðar á Ljósanótt í Duus-húsum og verða áfram.
Sossa og Anton Helgi Jónsson eru með sýningu í Bíósalnum. Sossa sýndi myndir og Anton
las ljós sem voru erótísk og myndirnar hennar Sossu eru það líka! Sossa er hér á mynd
með nokkrum vinkonum sínum sem mættu á opnunina.
Fríða Dís Guðmundsdóttir, söngkona opn-
aði mjög sérstaka en frábæra sýningu sem
tileinkuð er baráttu hennar og eiginmanns
hennar í því að eignast barn. Þau eignuðust
son og hún kláraði myndlistarsýningu.
Listakonan Elísabet Ásberg opnaði glæsi-
lega sýningu í Gryfjunni á Ljósanótt. Lista-
konan er alin upp í Keflavík en hún er
dóttir SAM hjónanna, Árna Samúelssonar,
bíókóngs og konu hans Guðnýjar Ásberg.
Heimatónleikar voru nú haldnir í þriðja sitnn og hafa slegið í gegn. Fjölskyldur í gamla
bænum í Keflavík og nærumhverfi hans bjóða upp á tónlist þar sem hljómsveitir eða tón-
listarfólk kemur fram. Fjögurhundruð miðar, tvöfalt fleiri en í fyrra seldust upp á einum
degi og nú eins og í fyrra, tókust þeir mjög vel. Frábær stemmning og viðburður sem við
heyrum að eigi bara eftir að stækka á næstu árum.