Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
„Við erum alltaf að þróa okkur áfram, alltaf að gera betur,“
segir Árdís Jónsdóttir, leikskólastýra Tjarnarsels, en þann
18. ágúst síðastliðinn varð leikskólinn hálfrar aldar gamall.
„Við erum búin að fagna allt árið. Sumarhátíð var haldin í lok
júlí, á afmælisdeginum sjálfum var dansiball á leikskólunum
og svo fórum við niður að sjó vikuna fyrir Ljósanótt þar sem
bæjarstjórinn afhjúpaði söguskilti með krökkunum.“
Tjarnarsel er elsti leikskóli Reykjanes-
bæjar en hann var stofnaður af kven-
félagskonum, sem Árdís segir hafa
verið algjörar kraftakonur en þær
unnu sjálfboðavinnu fyrst um sinn.
Til að byrja með voru einungis tvær
manneskjur, þær Dagmar Pálsdóttir
og Margrét Jónsdóttir, sem pössuðu
börnin á leikskólanum, sem voru um
það bil 45 talsins á aldrinum tveggja
og hálfs árs til fimm ára. Í dag eru 80
börn á Tjarnarseli og að sögn Árdísar
hefur leikskólastarfið breyst mikið
síðan hún hóf að starfa á leikskólum
árið 1991. „Það eru ákveðnar kröfur
gerðar. Við fylgjum aðalnámskrá leik-
skóla og hver leikskóli er svo með sína
skólanámskrá. Að þessu leyti hefur
þetta breyst mjög mikið, en við erum
kannski líka að gera meiri kröfur til
okkar. Það er mikill metnaður í leik-
skólastarfi í Reykjanesbæ.“
Góð samskipti mikilvæg
Hún segir Tjarnarsel hlýlegan leik-
skóla sem leggi mikið upp úr góðum
samskiptum við börn og foreldra.
„Við reynum að upplýsa foreldrana
eins mikið og við getum. Svo leggjum
við mikla áherslu á mál og læsi, úti-
nám og vettvangsferðir.“ Útisvæði
leikskólans hefur tekið miklum
breytingum síðan árið 2013 en þá fór
leikskólinn í víðamikið verkefni þar
sem kennarar og foreldrar veltu því
fyrir sér við hvaða aðstæður þeim
hefði fundist skemmtilegast að leika
sér sem börn. „Hér var varla grænn
blettur á svæðinu en þegar við vorum
yngri fannst okkur flestum skemmti-
legast að leika okkur úti í móa eða
í fjöru. Við vildum breyta þessu og
fórum í ferð til Hollands og skoð-
uðum náttúruleg útileiksvæði. Eftir
það settum við upp vinnubúðir með
börnunum og foreldrunum þar sem
allir gátu komið með hugmyndir.
Allir eiga að fá að hafa sitt að segja,
stórir sem smáir. Tveir vinnudagar
voru svo haldnir á laugardegi þar sem
foreldrar mættu með börnin sín og
við réðumst í þvílíkar framkvæmdir á
útileiksvæðinu.“
Hálfrar aldar afmæli fagnað
allt árið á Tjarnarseli
- Allir hafa sitt að segja á elsta leikskóla Reykjanesbæjar
Árdís með börnunum sínum.
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Gamlar myndir frá Tjarnarseli úr safni leikskólans.
Frá afhjúpun söguskiltis með
Kjartani Má bæjarstjóra.