Fréttablaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 29
Fótbolti Einn besti knattspyrnu- maður heims, Lionel Messi, leiðir sína menn út á Stamford Bridge í kvöld í 16-liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu. Þessi ótrúlegi markahrókur hefur hrellt öll lið Evrópu, nema Chelsea sem virðist alltaf eiga lausnir til að stöðva hann. Útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu heldur áfram í kvöld þegar 16-liða úrslitin fara af stað á ný en ein stærsta viðureign umferðarinn- ar er þegar Chelsea og Barcelona mætast og fer fyrri leikurinn fram í Lundúnum. Er þetta í tíunda skiptið sem Lionel Messi leikur gegn Chelsea í þessari sterkustu deild Evrópu en það magnaða er að honum hefur ekki enn tekist að skora mark í þessum leikjum. Aðeins einn leikur hefur unnist en sá sigur kom fyrir tólf árum. Þrír stjórar, engin mörk Þrátt fyrir að Chelsea hafi haft þrjá mismunandi knattspyrnustjóra í leikjunum tíu hafa þeir allir átt svör gegn þessum mikla markahrók sem hefur skorað 534 mörk í 620 leikj- um fyrir Börsunga. Kom besta færi hans til að skora hjá Chelsea þegar þessi lið mættust í undanúrslitum þessarar keppni fyrir sex árum en vítaspyrna hans fór í slána. Það reyndist Börsungum dýrkeypt þar sem Fernando Torres sendi Chelsea í úrslitaleikinn með marki í upp- bótartíma sem leiddi til fyrsta og eina Meistaradeildartitils félagsins. Gengið vel gegn öðrum enskum Messi hefur gengið vel gegn öðrum enskum liðum. Í sextán leikjum gegn Arsenal og Manchester-lið- unum tveimur hefur hann unnið ellefu leiki og skorað sautján mörk en Chelsea virðist alltaf eiga lausn gegn honum. Messi hefur ekki skorað á 665 mínútum gegn enska félaginu en fær nú 180 mínútur til viðbótar til að brjóta ísinn gegn Chelsea. Courtois með númerið hjá Messi Messi átti í stökustu vandræðum með að koma boltanum fram hjá Petr Cech er hann lék með Chelsea en þetta er í fyrsta skiptið sem hann mætir enska félaginu með Thibaut Courtois í markinu. Framan af virtist Messi vera mar- tröð fyrir Courtois er hann skor- aði sex af ellefu mörkum Barce- lona í aðeins þremur leikjum gegn Courtois þegar hann var hjá Atletico Madrid í láni. Þá virtist Courtois finna töfralausnina þar sem Messi mis- tókst í næstu átta tilraunum að skora fram hjá belgíska markverðinum hjá Barcelona og með argent- ínska landslið- inu. – kpt Brestur markastíflan hjá Messi gegn Chelsea loksins í kvöld? Lionel Messi hefur ekki gengið vel á móti Chelsea í gegnum árin. NordiCphotos/Getty 9 leiki hefur Lionel Messi leikið gegn Chelsea. Hann hefur aldrei skorað gegn Lundúnaliðinu. Barcelona hefur komist í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu allar götur síðan 2008. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, þriðjudaginn 13. mars 2018 í Þingsal 3 á Hotel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Dagskrá fundar 1. Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári. 2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári. 4. Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: a. Tillaga um óbreytta starfskjarastefnu félagsins. b. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. c. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum. 5. Kjör stjórnarmanna félagsins. 6. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. 7. Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár. 8. Önnur mál, löglega upp borin. Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000 Upplýsingar Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboðsform er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.reitir.is/adalfundir. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið adalfundur@ reitir.is eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 8. mars 2018. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15:00 að íslenskum tíma, laugardaginn 3. mars 2018. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið adalfundur@reitir.is og munu þær verða birtar samdægurs á aðalfundarvef félagsins. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt á fundinum frá einhverjum atkvæðisbærra fundarmanna eða fundarstjóri úrskurðar um slíkt. Stjórnarkjör skal vera skriflegt ef framboð koma frá fleirum en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta gert kröfu um hlutfalls- eða margfeldiskosningu í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Slík krafa þarf að hafa borist stjórn að lágmarki fimm sólarhringum fyrir hluthafafund. Tilkynningum um framboð til stjórnar félagsins skal skilað eigi síðar en sjö sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15:00 að íslenskum tíma, þriðjudaginn 6. mars 2018, á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík eða á netfangið adalfundur@reitir. is. Framboðstilkynningar skulu uppfylla skilyrði 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Jafnframt skulu frambjóðendur greina frá því hvort þeir telji sig óháða félaginu og stórum hluthöfum þess samkvæmt skilyrðum í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja eins og þau eru skilgreind á hverjum tíma. Framboðseyðublað er að finna á aðalfundarvef félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar eigi síðar en sex sólarhringum fyrir aðalfund. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn, sbr. 13. gr. samþykkta félagsins. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða aðgengileg á aðalfundarvef félagsins. Einnig verða gögnin til sýnis fyrir hluthafa á opnunartíma skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar á aðalfundarvef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14:20 á aðalfundardag. Reykjavík, 12. febrúar 2018 Stjórn Reita fasteignafélags hf. Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. Lionel Messi vantar aðeins þrjú mörk til að komast í 100 marka klúbb- inn í Meistaradeildinni. S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 13Þ r i ð J U D A G U r 2 0 . F e b r ú A r 2 0 1 8 2 0 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 0 1 -6 5 D 0 1 F 0 1 -6 4 9 4 1 F 0 1 -6 3 5 8 1 F 0 1 -6 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.