Fréttablaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 18
Weight Watchers eru einn vinsælasti og lífseigasti megrunarklúbbur veraldar en hann hefur verið starfandi síðan snemma á sjöunda áratugnum. Kúrinn gengur út á að matur fær ákveðið mörg stig og kúrfarar mega ekki fara yfir til- greint magn stiga. Þúsundir ef ekki milljónir manna hafa tapað þyngd á kúrnum og tekið af því fyrir og eftir myndir sem eru eitt algengasta mælitækið á árangur í þyngdar- tapsiðnaðinum og þessar myndir eru mikið notaðar til að sýna fram á árangur kúrsins og notaðar til að fá þá sem eru ósáttir við sjálfa sig til að ganga í raðir ánægðra viðskipta- vina. Fyrir myndirnar eru gjarna af megrunariðkandanum upp á sitt allra stærsta, gjarna teknar frá sjónarhorni sem sýnir viðkomandi í sínu versta ljósi, í ljótum fötum, jafnvel hálfnakinn í sund- eða íþróttafötum, óhressan á svip. Þessar myndir eru alltaf til vinstri. Til samanburðar eru svo mynd- irnar til hægri þar sem er komið annað hljóð í strokkinn. Megr- unariðkandinn stendur keikur í fallegum fötum (gjarna efnismeiri en á hinni myndinni) og horfir í myndavélina með björtu brosi hins sjálfstrausta einstaklings. Stofnandi Weight Watchers, Jean Nidetch, var einmitt ein af þeim fyrstu sem birtu af sér fyrir- og eftir-myndir en hún bjó til stigakerfið og prófaði á eigin skinni með árangri sem best er lýst með fyrir- og eftir-myndum. Nú hefur Weight Watchers hins vegar ákveðið að henda sinni helstu mælistiku, nefnilega fyrir- og eftir-myndunum. Ástæðan er ein- mitt sú að samkvæmt niðurstöðum fyrirtækisins (og fjölda rannsókna) eru kúrar ekki lausnin sem löngum hefur verið predikað að þeir væru. Þessar umbreytingarmyndir þykir yfirmönnum milljarðafyrirtækisins Weight Watchers nú gefa villandi mynd af því að kúr sé eitthvað sem tekur enda. Fyrirtækið vill leggja meiri áherslu á varanlega lífsstíls- breytingu þar sem áherslan er á „heilsuferðalag sem hefur hvorki upphaf, miðju né endi,“ eins og talsmaður fyrirtækisins segir. Aðrir hafa bent á að með nútíma ljósmyndatækni sé lítið mál að búa til fyrir- og eftir-myndir af öllum, jafnt þeim sem hafa lagt á sig langtímasvelti til að passa í kjól og hinum sem eru góðir í myndvinnsluforritum á borð við Photoshop. Ekki fylgir sögunni hversu margir bæta þyngdinni á sig aftur þegar hætt er á kúrnum en gera má ráð fyrir að sama tölfræði eigi við um Weight Watchers kúrinn og aðra kúra sem þýðir að aðeins um fimm prósent viðhalda þyngdartapi til frambúðar. Eftir-myndin er því ekki raunhæfur mælikvarði á varanlegt þyngdartap nema hún sé endurnýjuð reglulega með sömu niðurstöðum. Svo er líka hægt að prófa að birta frekar fyrir- og eftir- dagbókarfærslur þar sem áherslan er á líðan viðfangsefnisins þar sem við vitum að þótt brosið sé bjart á ljósmynd gefur það ekki endilega til kynna raunverulega líðan. Weight Watchers hættir að birta fyrir og eftir myndir Fyrir- og eftir-myndir þykja einn besti mælikvarðinn á útlitsbreytingu eftir megrunarkúr en megrunar- fyrirtæki eins og Weight Watchers og Biggest Loser hafa notað slíkar myndir í þúsundatali gegnum árin. Stofnandi Weight Watchers, Jean Nidetch, árið 1965 en nú hefur fyrirtækið ákveðið að hætta að nota fyrir- og eftir-myndir í auglýsingaherferðum sínum. Fréttablaðið.is - stendur undir nafni Lifandi fréttamiðill með nýjustu fréttum allan sólarhringinn ásamt ítarlegri umöllun um málefni líðandi stundar. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F e B R úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 0 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 0 1 -8 8 6 0 1 F 0 1 -8 7 2 4 1 F 0 1 -8 5 E 8 1 F 0 1 -8 4 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.