Fréttablaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 6
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
Viðskipti Björn Ingi Hrafnsson
hefur ásamt viðskiptafélaga sínum,
Ægi Arnarsyni, kært forsvarsmenn
Dalsins ehf., þá Árna Harðarson
og Halldór Kristmannsson, og
lögmann þeirra, Bjarka Diego, til
héraðssaksóknara fyrir fjársvik,
skilasvik og skjalabrot. Í kærunni
er því lýst hvernig hinir kærðu hafi
blekkt Björn Inga og Arnar til að
undirrita samkomulag um riftun á
kaupsamningi um alla hluti í Birt-
ingi, undir því yfirskini að um mála-
myndagerning væri að ræða, en svo
notað umrætt skjal til að yfirtaka
kaupsamning um Birting og þann
hlut, sem Pressan ehf. hafði þegar
greitt fyrir, án endurgjalds með því
að beita blekkingum og rangfærslu
skjala, þrátt fyrir að gjaldþrot Press-
unnar væri yfirvofandi og óum-
flýjanlegt.
Í kærunni, sem Fréttablaðið hefur
undir höndum, er því lýst hvernig
sú hugmynd hafi vaknað hjá Árna
Harðarsyni að gera málamyndasam-
komulag um riftun á kaupsamningi
um Birting sem geymt yrði á skrif-
stofu Bjarka Diego lögmanns, í þeim
eina tilgangi að sýna kröfuhöfum
Pressunnar fram á að Pressan ætti
ekki þessa eign og semja yrði um
skuldir. Aldrei hafi staðið til að rift-
unarskjalinu yrði beitt í lögskiptum
og eru tölvupóstsamskipti milli
kærenda og hinna kærðu rakin í
kærunni til að vitnis um það. Í svari
Árna Harðarsonar við tölvupósti
Björns Inga, þar sem riftunarskjalið
er til umræðu, segir til dæmis:
„Eins og við ræddum áðan þá
geymir Bjarki skjalið en við gætum
Segist beittur blekkingum og
þvingunum af Dalsmönnum
Björn Ingi Hrafnsson hefur kært nokkra forsvarsmenn fjárfestingafélagsins Dalsins til héraðssaksóknara
fyrir meint fjársvik, fjárkúgun og ýmis skjalabrot. Segir þá hafa beitt blekkingum og ólögmætum þving-
unum til að eignast Birting. Mikil átök hafa verið í kringum eigendaskiptin og kærur hafa gengið á víxl.
þurft að sýna það ákveðnum
aðilum og gerum það þá á skrif-
stofu BBA en við skulum ekki
senda þetta á milli í meilum.“
Umræddur póstur var send-
ur 8. maí 2017. Tíu dögum
síðar var starfsmönnum
Pressunnar tilkynnt að
kaupin hefðu gengið til baka
og þann 31. maí var tilkynnt
á starfsmannafundi Birtings
að Dalurinn væri orðinn eig-
andi Birtings að öllu leyti.
Árni, Halldór og Bjarki eru
einnig kærðir fyrir umboðs-
svik, fjársvik og skjalafals með
því að hafa, eftir að kaupsamningn-
um var rift og um leið fallið frá lán-
veitingu Dalsins til Pressunnar, farg-
að lánssamningnum en ekki þeim
tryggingabréfum sem gefin voru
út af DV ehf. og Vefpressunni ehf.
til tryggingar á efndum lánssamn-
ingsins. Þeir hafi blekkt Björn Inga
og þóst hafa fargað tryggingabréf-
unum en í stað þess látið þinglýsa
þeim í lausafjárbók Vefpressunnar,
þrátt fyrir að lánið sem þau áttu að
tryggja hafi aldrei verið veitt.
Þá er Árni Harðarson einnig
kærður fyrir fjárkúgun eða aðra
ólögmæta þvingun með því að
hafa þvingað Björn Inga til að
gangast í sjálfskuldarábyrgð
fyrir 50 milljóna láni Aziq fjár-
festinga til Kringluturnsins.
Um það hafi verið gerður nýr
lánssamningur þar sem Dalur-
inn var lánveitandi en Björn
Ingi þvingaður til að gangast
í sjálfskuldarábyrgð fyrir
láninu sem skilyrði fyrir því
að ofangreindum trygginga-
bréfum yrði aflétt, þrátt fyrir
að Björn Ingi tengdist hvorki
umræddu láni né trygginga-
bréfunum með nokkrum hætti.
Mikil ólga hefur umlukið
eignarhald DV, Vefpressunnar
og Birtings undanfarin misseri og
kærur ganga á víxl en Fréttablaðið
sagði frá því skömmu fyrir jól að
forsvarsmenn Dalsins hefðu kært
Björn Inga Hrafnsson til héraðssak-
sóknara fyrir fjárdrátt. Ekki náðist í
hina kærðu forsvarsmenn Dalsins við
vinnslu fréttarinnar.
adalheidur@frettabladid.is
Björn Ingi Hrafnsson hefur kært
nokkra forsvarsmenn eignarhalds-
félagsins Dalsins til héraðssak-
sóknara. FréttaBlaðIð/SteFán
Bandaríkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, styður áform um að
krefjast ítarlegri bakgrunnsrann-
sókna á þeim sem ætla að kaupa
sér skotvopn. Þetta kom fram í yfir-
lýsingu frá forsetaembættinu þar í
landi í gær.
Trump ræddi við John Cornyn,
öldungadeildarþingmann Repúbl-
ikana, um þverpólitískt frumvarp
sem Cornyn lagði til í fyrra, að því er
kemur fram í yfirlýsingunni. Frum-
varpið gekk út á að auka eftirlit með
að lögum og reglum um skotvopna-
sölu yrði fylgt.
„Þótt viðræður séu enn í gangi
og enn sé verið að skoða mögu-
legar lagfæringar á frumvarpinu
styður forsetinn vinnu við að bæta
umræddar bakgrunnsrannsóknir,“
sagði Sarah Huckabee Sanders, fjöl-
miðlafulltrúi forseta, í gær.
Eins og er reiðir kerfið sem unnið
er eftir, NICS, sig á að opinberir
starfsmenn tilkynni um fyrri afbrot
og geðheilsuvandamál mögulegra
skotvopnakaupenda. Það kerfi var
harðlega gagnrýnt á síðasta ári
þegar bandaríski flugherinn játaði
þau mistök sín að hafa ekki vakið
athygli á heimilisofbeldisdómi
manns sem skaut 26 til bana í
kirkju í Sutherland Springs í Texas.
– þea
Hrifinn af auknu eftirliti með byssum
Donald trump, forseti Bandaríkjanna. norDIcpHotoS/aFp
suður-afríka Atul Gupta, einn
þriggja Gupta-bræðra sem sæta
rannsókn vegna spillingarmála og
tengsla við Jacob Zuma, fyrrverandi
forseta Suður-Afríku, fer fram á
að kyrrsetningu eigna sinna verði
aflétt. Reuters greindi frá og vitnaði
í dómskjöl.
Dómstóll hafði áður fyrirskipað
frystingu um 86 milljóna króna
sem Gupta á inni á bankabók og
var saksóknurum heimilað að frysta
hundruð milljóna til viðbótar í
tengslum við rannsókn á mjólkur-
búi sem bræðurnir áttu að sjá um til
þess að aðstoða samfélag fátækra,
svartra bænda. Þeir eru hins vegar
sakaðir um að hafa stungið háum
fjárhæðum í eigin vasa.
Húsrannsókn var gerð heima
hjá þeim Gupta-bræðrum í síðustu
viku. Þeir neita þó sök í málinu, rétt
eins og Zuma. – þea
Gupta-bróðir
berst gegn
eignafrystingu
sVíÞJÓð Hjúkrunarfræðingar við
neyðarlínuna í Uppsölum eiga í
tilraunaskyni um tveggja ára skeið
að styðjast við tölvuforrit þegar
þeir meta ástand þess sem hringt
er vegna og hvort þörf sé á að senda
sjúkrabíl.
Þegar hringt er í neyðarlínuna
á hjúkrunarfræðingur við símann
að færa inn í tölvuna upplýsingar
um það sem gerðist auk upplýsinga
um ástand viðkomandi, mögu-
lega sjúkdóma og sjúkdómssögu.
Þessar upplýsingar mun tölvan
bera saman við sambærileg gögn
og reikna út hvers konar aðstoð sé
nauðsynleg.
Samkvæmt frétt sænska ríkis-
útvarpsins er þetta í fyrsta skipti
sem notast er við gervigreind á
þennan hátt. – ibs
Tölva meti þörf
fyrir sjúkrabíl
Viðskipti „Það sem er að gerast
núna er að stjórnvöld eru að
missa tökin á stöðunni og vog-
unarsjóðirnir eru aftur að ná
undirtökunum,“ segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Miðflokksins, um sölu ríkisins á
þrettán prósenta eignarhlut sínum
í Arion banka.
Sala ríkisins á hlut sínum byggist
á samkomulagi sem ríkið gerði við
kröfuhafa Kaupþings um fjármögn-
un Arion. Samningurinn var gerður
á haustmánuðum 2009 og kveður á
um kauprétt á hlutnum. Kaupverðið
er fyrirfram ákveðið, 23,4 milljarðar
króna. Kaupréttarheimildin rennur
út á morgun. Í bréfi Bankasýslu
ríkisins til fjármálaráðherra kemur
fram að stofnunin telji kaupréttar-
verðið ásættanlegt í öllum saman-
burði.
Efnahags- og viðskiptanefnd
þingsins fundaði í gær vegna
sölunnar. Nefndarmenn fengu á
fundinum aðgang að upplýsingum
sem varða stöðugleikaframlög og
stöðugleikaskilyrði.
„Það er ekki of seint að grípa hér
inn í en það er erfiðara og óhag-
kvæmara en ef það hefði verið gert
fyrr. Það sem er verst í þessu máli
er að erlendir vogunarsjóðir verða
ráðandi í stærsta banka landsins,
kerfislega mjög mikilvægum banka,
og geta farið með hann á þann hátt
sem þeir vilja,“ segir Sigmundur.
Sigmundur segir að ef vegferð
ríkisstjórnar hans hefði verið fram
Sigmundur telur stjórnvöld missa tökin á stöðunni með sölu Arion
Sigmundur Davíð og félagar hans í
efnahags- og viðskiptanefnd á fundi
nefndarinnar í gær. FréttaBlaðIð/ernIr
haldið hefði kauprétturinn senni-
lega fallið dauður niður. Aðstæður
þá hefðu verið á þann veg að það
hefði ekki verið eftirsóknarvert. „Ef
ríkið hefði nýtt forkaupsrétt sinn á
fyrri stigum hefði þessi staða ekki
komið upp.
Tímasetningin nú vekur einn-
ig athygli með hliðsjón af ákvörð-
unum um arðgreiðslur. Mun ríkið
fá sína hlutdeild í þeim?“ spyr Sig-
mundur að lokum.
– jóe
2 0 . f e B r ú a r 2 0 1 8 Þ r i ð J u d a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
0
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
1
-8
3
7
0
1
F
0
1
-8
2
3
4
1
F
0
1
-8
0
F
8
1
F
0
1
-7
F
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K