Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 1
Kerfið er að molna
undan okkur. Þetta
eru aðgerðir sem auðveldlega
væri hægt að gera hér
Guðjón S. Brjánsson,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —5 7 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 8 . M a r s 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKOðun Þórey Vilhjálmsdóttir
og Páll Harðarson skrifa um
kjána kúrfuna. 26
spOrt Ísland vann Danmörku í
vítakeppni á Algarve-mótinu. 30
lÍFið Götumarkaður í Skeifunni
mun kynna Íslendingum alvöru
„street food“. 54
plús sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
K R I N G L U
K A S T
20–50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUM VÖRUM
8.–12. MARS
Fjórir voru handteknir í aðgerðum sérsveitarinnar á Ægisíðu í gærmorgun. Að auki var lagt hald á fíkniefni. Sumir hinna handteknu mættu á staðinn í
leigubíl og hófust strax handa við að reyna að brjótast inn í fólksbifreið á staðnum. Ægisíðunni var lokað meðan aðgerðir stóðu yfir. Fréttablaðið/anton
HeilbrigðisMál Í fyrra greiddu
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) fyrir
tólf lið- og augasteinsskiptaaðgerðir
sem framkvæmdar voru á erlendri
grund. Fjöldi þeirra, sem leituðu út
í slíkar aðgerðir, þrefaldaðist milli
ára. Kostnaður vegna þessa nam alls
tæpum 18,4 milljónum. Tæplega 6,8
milljónir hefðu sparast hefðu aðgerð-
irnar verið gerðar hér á landi.
Frá árinu 2012 hefur verið í gildi
hér á landi Evrópureglugerð sem
veitir sjúklingum rétt til að leita út
fyrir landsteinana ef bið eftir meðferð
hér á landi er óhóflega löng. Embætti
landlæknis hefur sett viðmiðunar-
mörk um hvenær dráttur er óhóf-
legur. Það er til að mynda ef skoðun
hjá sérfræðingi fæst ekki innan þrjá-
tíu daga eða ef aðgerð eða meðferð
sérfræðings hefst ekki innan níutíu
daga frá greiningu.
Auk þess að greiða fyrir aðgerðina
sjálfa endurgreiðir SÍ flug og uppihald
vegna ferðarinnar.
Í svari Landspítalans (LSH) við
fyrirspurn Fréttablaðsins um stöðu á
biðlistum kemur fram að í lok janúar
hafi 3.400 beðið eftir hinum ýmsu
aðgerðum. Þar af hefðu 1.428, eða 42
prósent, beðið lengur en níutíu daga.
„Þarna er aukning því kerfið er
að molna undan okkur. Þetta eru
aðgerðir sem auðveldlega væri hægt
að gera hér,“ segir Guðjón S. Brjáns-
son, þingmaður Samfylkingarinnar
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
Langflestir sem bíða eftir aðgerðum
eru að bíða eftir liðskiptum á hné eða
mjöðm eða skiptum á augasteinum.
2016 var fé veitt í átak til að stytta bið-
lista og hefur það gefið góða raun þótt
biðin sé enn löng.
„Það átak skilaði góðum árangri
en er rétt til að halda í horfinu. Innan
skamms munu listar lengjast á ný.
Allar greiningar benda til þess að
þörfin fyrir liðskipti muni aukast
samhliða hækkandi aldri og þyngd
samfélagsins,“ segir Guðjón.
Stjórnvöldum hafi meðal annars
verið kynntir möguleikar á að fram-
kvæma slíkar aðgerðir á Akranesi og
í Keflavík. Þau eru ekki bráðasjúkra-
hús og þurfa sjúklingar ekki að víkja
þaðan fyrir bráðveikum.
„Það þarf meira en tímabundnar
aðgerðir. Nauðsynlegt er að greina
þörfina og fjármagna spítalana í sam-
ræmi við það. Hingað til hefur það því
miður ekki gengið,“ segir Guðjón. – jóe
Sjúklingar flýja biðlista
Sjúklingar sem fóru utan í aðgerð eftir óhóflega bið hér á landi voru þrefalt fleiri
í fyrra en árið áður. Sjúkratryggingar greiða aðgerðina, flugfarið og uppihaldið.
KJaraMál Þóknun til þeirra sem sitja
í kjararáði er nú 16.290 krónur á tím-
ann og hafa launin hækkað um 62,9
prósent á tíu árum. Allar þrjár óskir
formanns kjararáðs um launahækk-
un til ráðsmanna voru samþykktar.
Fréttablaðið hefur um nokkurt
skeið reynt að kalla fram mynd af
launakjörum þeirra er skipa kjara-
ráð. Samkvæmt fjárlögum 2017 átti
rekstur kjararáðs að kosta 41,2 millj-
ónir króna á því ári. Ekki fæst upp-
gefið hve stór hluti fjárins rennur til
nefndarmanna. – gar / sjá síðu 6
Kjararáð upp
um tvo þriðju
HúsnÆðisMál „Við náum ekki
endum saman nema að hækka
leiguverðið eins og við gerðum á
síðasta ári og sjáum fram á, ef allt fer
sem horfir, að gera það aftur á þessu
ári,“ segir Auðunn Freyr Ingvarsson,
framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Félagið hagnaðist um 7,55 ma.kr.
í fyrra en hagnaður fyrir fjármagns-
liði nam 1,68 ma.kr. – jhh / sjá síðu 4
Félagsbústaðir
hækka leiguna
0
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
4
-C
D
D
4
1
F
2
4
-C
C
9
8
1
F
2
4
-C
B
5
C
1
F
2
4
-C
A
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K