Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 8
Heimilið 2018
Glæsilegur bæklingur fylgir blaðinu í dag
Stórsýning
í Skútuvogi
alla helgina
LÆKNASTOFA
Hef flutt læknastofu mína í Læknastöðina Sogavegi,
Sogavegi 108, sími 516 2000.
Einar Már Valdimarsson
Sérgrein: Taugalækningar
Málverk eftir Jóhannes S. Kjarval,
Jón Stefánsson og Kristínu Jónsdóttir
Studio Stafn, Hátúni 6B, Sími 552 4700.
Leitum að góðum blómauppstillingum eftir Kristínu Jónsdóttur og Jón
Stefánsson og úrvalsmálverki eftir Jóhannes S. Kjarval fyrir fjársterkan
viðskiptavin.“
Ný verk í sölu á: studiostafn.is/listaverkasala
Málverk eftir Þorvald
Skúlason, Karl Kvaran og
Guðmundu Andrésdóttur.
Leitum eftir abstraktmálverkum eftir Þorvald Skúlason,
Karl Kvaran, Guðmundu Andrésdóttur ofl. fyrir viðskiptavin.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Aðalfundur VR
Aðalfundur VR verður haldinn mánudaginn 19. mars kl. 19:30
á Hilton Reykjavík Nordica.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, laga breytingar
og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.
Dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta.
kjaramál „Þegar ég ákvað að slá
til þá ákvað ég að ég vildi ekki
einu sinni vita hvað svona verka-
lýðsforkólfur er með í laun. En ég
er væntanlega að fara að hækka
eitthvað hressilega, já,“ segir Sól-
veig Anna Jónsdóttir, starfsmaður
á leikskóla og nýkjörinn formaður
Eflingar, spurð hvort hún muni ekki
hækka í launum þegar hún tekur við
formennskunni á aðalfundi félags-
ins 26. apríl. Hún segist ekki heldur
hafa kannað eftir að niðurstaðan
varð ljós hver laun hennar yrðu.
„Ég er ekki einu sinni búin að sofa
almennilega.“
Meirihluti félagsmanna í ASÍ er
félagsmenn VR og Eflingar og munu
því væntanlega eiga meirihluta full-
trúa á sambandsþingi ASÍ sem fer
fram í haust. Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, hefur sagt í sam-
tali við Fréttablaðið að hann geti
hugsað sér að beita sér fyrir hallar-
byltingu í ASÍ, eða að VR segi sig úr
samtökunum.
Sólveig segist ekki vera farin að
leiða hugann að því hvort hún sjái
fyrir sér breytingar á forystu ASÍ í
kjölfar breytinga á stjórn Eflingar.
„Núna erum við bara að njóta
þessarar sigurstundar. Við erum
bara enn þá þar. Ekki aðeins vinnum
við þessa kosningu heldur vinnum
við yfirburðasigur. Sem segir okkur
það að ekki einungis langaði fólk í
breytingar heldur höfðar orðræða
okkar, þessi róttæka orðræða, rosa-
lega sterkt til fólks þegar henni er
beitt. Við lítum því þannig á að við
séum með sterkt umboð frá með-
limum. Það gefur náttúrlega auga-
leið að það verður ekki fetuð sama
braut og það eru miklar breytingar
í vændum,“ segir Sólveig.
B-listinn, framboð Sólveigar og
félaga hennar, hlaut 80 prósent
greiddra atkvæða í Eflingarkosning-
unum.
Sólveig segir að yfirburðirnir hafi
komið sér og öðrum frambjóðend-
um B-listans á óvart.
„Ég átti nú ekki von á þessu. Ég
verð að viðurkenna það, en við
vorum farin að leyfa okkur að vera
bjartsýn,“ segir Sólveig. jonhakon@
frettabladid.is
Nýkjörinn formaður
boðar breytta tíma
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, hefur ekki kynnt sér eigin
launakjör sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni. Hún boðar breytingar í
verkalýðsbaráttunni. Segir yfirburði framboðs síns hafa komið á óvart.
Sólveig segir að hin róttæka orðræða B-listans höfði vel til fólksins í Eflingu.
Hún er boðberi breytinga í verkalýðsbaráttunni. FréttaBlaðið/anton
Úrslit kosninganna
urðu þessi
l Á kjörskrá voru 16.578 félags-
menn og af þeim greiddu
2.618 atkvæði.
l B-listi Sólveigar Önnu Jóns-
dóttur fékk 2.099 atkvæði.
l A-listi stjórnar og trúnaðarráðs
fékk 519 atkvæði.
l Auðir seðlar voru 6 og ógildir
voru 4.
Við lítum þannig á
að við séum með
sterkt umboð frá meðlimum.
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn
formaður Eflingar
Hafnarfjörður „Þetta er eiginlega
spurning um hvort það sé hægt að
viðhalda húsinu eða hvort trén eigi
að fá að vera,“ segir Steinar Björg-
vinsson, framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Hafnarfjarðar, um
tvö af elstu trjám bæjarins sem til
stendur að fella.
Um er að ræða tvö lerkitré sem
standa við suðurgafl Siggubæjar,
eins elsta húss Hafnarfjarðar, sem
heyrir undir byggðasafn bæjarins.
Í greinargerð garðyrkjustjóra segir
að lerkið hafi „í áratugi verið hægt
og bítandi að berja húsið og þá
þakkantinn“ þannig að verulega
sjái á. „Til að hægt sé að lagfæra
bæinn neyðumst við til að fjar-
lægja trén.“
Upphaflega vildi Steinar að
trjánum yrði hlíft. „Er algerlega á
móti því að fella þau,“ sagði hann
í tölvupósti er bæjarskrifstofurnar
inntu hann álits á málinu. Benti
hann á að trén væru með þeim
elstu sem vitað sé um í Hafnar-
firði. Á lóðinni sé jafnframt heggur
sem sé elsta tré bæjarins svo vitað
sé. Heggurinn sé væntanlega rótar-
skot frá tré sem plantað hafi verið
árið 1913. „Það ætti í raun að friða
þessi tré!“ lagði Steinar áherslu á.
Nú segist Steinar hafa kynnt
sér málið nánar. „Ég sagði að mér
fyndist sögunnar vegna að það
ætti að friða þau en nú er ég búinn
að skoða aðstæður betur,“ segir
Steinar og bendir á að lerkitrén
hafi á sínum tíma verið sett alveg
upp við suðurgafl hússins, senni-
lega til að tryggja þeim skjól. Að
auki sé klöpp undir þeim og því
séu þau fremur lítil. – gar
Elstu tré Hafnarfjarðar
felld til að bjarga Siggubæ
lerkitrjánum við suðurgafl Siggu-
bæjar mun hafa verið plantað árið
1926. Mynd/HaFnarFjarðarBær
Það ætti í raun að
friða þessi tré!
Steinar Björgvinsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
8 . m a r s 2 0 1 8 f I m m T u D a G u r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
0
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
5
-0
E
0
4
1
F
2
5
-0
C
C
8
1
F
2
5
-0
B
8
C
1
F
2
5
-0
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K