Fréttablaðið - 08.03.2018, Qupperneq 10
dómsmál „Okkur þótti náttúrlega
mjög fúlt að vera dæmd fyrir að fara
illa með eigin félaga,“ segir Svein-
björn Eyjólfsson, formaður Veiði-
félags Grímsár og Tunguár í Borgar-
firði.
Í Fréttablaðinu á mánudag sagði
frá sjónarmiðum hjónanna Steinars
Bergs Ísleifssonar og Ingibjargar Páls-
dóttur sem reka ferðaþjónustu við
Grímsá á jörð sinni Fossatúni. Þau
gagnrýna framgöngu veiðifélagsins,
sem þau sjálf eiga aðild að, vegna
útleigu á sínum tíma á veiðihúsinu
við Grímsá utan laxveiðitíma í sam-
keppni við þau sjálf. Hjónin unnu
dómsmál gegn veiðifélaginu vegna
þess. Síðan þá hefur Alþingi breytt
lögum svo veiðifélögum er heimilt
að stunda slíka útleigu. Þetta telja
hjónin hafa verið gert sér til höfuðs
eftir fyrirmæli frá Landssambandi
veiðifélaga.
Steinar og Ingibjörg hafa sett á fót
sérstaka vefsíðu um þessi málefni.
„Okkur ábúendum í Fossatúni þótti
sérkennilegt að standa í samkeppni
við veiðifélagið og svarta atvinnu-
starfsemi í skjóli þess,“ var vitnað til
síðunnar í Fréttablaðinu á mánudag.
Í undirfyrirsögn fréttarinnar sagði að
hjónin segðu veiðifélagið hafa stund-
að svarta atvinnustarfsemi. Svein-
björn kveðst telja að þessi útlegging
í undirfyrirsögninni sé rangtúlkun á
orðum hjónanna.
„Til þessa hafa þau sagt að ein-
hverjir aðrir hafi gert það í skjóli
okkar – enda höfum við ekki verið
með neina starfsemi til þess að geta
rekið svarta. Þau eru örugglega ekki
að vísa til veiðifélagsins,“ undirstrikar
Sveinbjörn. Hann vísar þar til þess
að veiðifélagið hafi sjálft ekki staðið
í rekstri heldur leigt húsið öðrum
aðilum.
„Þetta er álíka eins og að þú eigir
gróðurhús og leigir það undir rósa-
rækt og vaknar svo upp við það einn
daginn að löggan kemur í heimsókn
og kennir þér um að vera að rækta
hass þar – bara af því að þú átt húsið.“
Sveinbjörn segir málflutning
Fossatúnshjónanna á margan hátt
mjög ósanngjarnan gagnvart veiði-
félaginu. „En á ýmsan hátt er líka
ömurlegt fyrir þau að hafa þurft að
standa í þessum málarekstri. Það var
ömurlegt fyrir okkur í veiðifélaginu
að hafa komið þannig fram við félags-
menn en við stóðum í þeirri mein-
ingu að þetta væri okkur heimilt,“
segir hann.
Fossatúnshjónin fullyrða á síðu
sinni að formaður Landssambands
veiðifélaga hafi, eftir að þau unnu
málið í Hæstarétti, gengið á fund
sjávar útvegs- og landbúnaðarráð-
herra, fullyrt að dómurinn væri rang-
ur og í kjölfarið verið falið að vinna
að lagabreytingu með starfsmönnum
ráðuneytisins.
„Þetta er út af fyrir sig ágætis skáld-
skapur en hið rétta er að dómurinn
hafði þau réttaráhrif að veiðifélög
gátu ekki á fundi tekið meiriháttar
ákvarðanir um eignir með atkvæða-
greiðslu heldur þurfti til samþykki
allra félagsmanna,“ segir Óðinn Sig-
þórsson, formaður Landssambands
veiðifélaga, um þetta atriði. „Þessi
niðurstaða kallaði einfaldlega á að
sett yrðu ákvæði í lögin um lax- og
silungsveiði þar sem kveðið væri á
um málsmeðferðarreglur þegar ráð-
stafa skyldi eignum veiðifélags.“
Ennfremur segir Óðinn að breyt-
ingin á lögunum hafi því ekkert haft
með hjónin í Fossatúni að gera annað
en það að þau hafi leitt óskýrleika í
lögunum í ljós með málarekstri
sínum. „Það er því algjörlega fráleitt
að lögin hafi verið sett til höfuðs
þeim.“ gar@frettabladid.is
Ekki svört starfsemi og harma málaferli
Formaður Veiðifélags Grímsár undirstrikar að félagið sjálft sé ekki sakað um að hafa stundað svarta starfsemi í veiðihúsi sínu sem leigt
hafi verið út til annars aðila. Það sé hins vegar ömurlegt að hafa staðið í málarekstri við eigin félagsmenn í dómsmáli sem tapaðist.
Þetta er út af fyrir
sig ágætis skáld-
skapur.
Óðinn Sigþórs-
son, formaður
Landssambands
veiðifélaga
Hjónin í Fossatúni reka þar umsvifamikla veitinga- og gistiþjónustu. Fréttablaðið/VilHelm
Sveinbjörn
eyjólfsson, for-
maður Veiði-
félags Grímsár
og tunguár.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Alvöru atvinnubíll
Dacia Dokker
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl.
Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia
bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
Verð: 2.340.000 kr. m. vsk.
Verð án vsk.:
1.887.000 kr.
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
. /
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
ka
nn
a
ð
ve
ra
fr
áb
ru
gð
in
a
ug
lý
st
u
ve
rð
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
6
8
D
a
c
ia
D
o
k
k
e
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
8 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U d a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
0
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
5
-2
1
C
4
1
F
2
5
-2
0
8
8
1
F
2
5
-1
F
4
C
1
F
2
5
-1
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K