Fréttablaðið - 08.03.2018, Síða 18

Fréttablaðið - 08.03.2018, Síða 18
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem leysir krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann er með fullkominni stöðugleikastýringu og spólvörn og sjö þrepa sjálfskiptingu. Volkswagen Transporter kostar frá 4.180.000 kr. (3.344.000 kr. án vsk) BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI Volkswagen Transporter 4Motion FJÓRHJÓLADRIFI FÁANLEGUR MEÐ Við látum framtíðina rætast. Til afhendingar strax! Sýrland Her ríkisstjórnar Bashars al-Assad, forseta Sýrlands, hélt áfram sókn sinni í Austur-Ghouta í gær með loftárásum og sókn á jörðu niðri. Reynir stjórnarherinn nú að kljúfa svæðið í tvennt. Stjórnarliðar hafa nú þegar tekið vel rúman þriðj- ung svæðisins en um 800 hafa fallið frá því Assad-liðar settu aukinn þunga í sókn sína í febrúar. Í gær greindu ríkisfjölmiðlar frá því að loftárásir hefðu verið gerðar á bæinn Mesraba til þess að undirbúa innrás hermanna. Ef stjórnarliðar taka Mesraba mun það þýða að þeir hafi um helming Austur-Ghouta á sínu valdi. Samkvæmt eftirlitssam- tökunum Syrian Observatory for Human Rights sendu stjórnarliðar 700 hermenn til viðbótar til Austur- Ghouta í gær í von um að styrkja sóknina. Ef uppreisnarmenn tapa Austur- Ghouta verður það stærsti ósigur þeirra frá því stjórnarherinn tók Aleppo árið 2016 eftir álíka blóðug átök. Austur-Ghouta er síðasta stóra vígi uppreisnarinnar nærri höfuð- borginni Damaskus og með því að tapa svæðinu fjarlægjast upp- reisnarmenn Assad Sýrlandsforseta. Rússar, helstu bandamenn Assad- stjórnarinnar, greindu frá því í gær að hluti uppreisnarmanna vilji þiggja boð þeirra um að rýma svæð- ið og afhenda stjórnarliðum. Hins vegar hafa talsmenn uppreisnar- hreyfinganna á svæðinu sagt að það sé með öllu ósatt. Uppreisnarmenn ætli að verja Austur-Ghouta og að engar viðræður hafi átt sér stað. „Fylkingarnar í Austur-Ghouta og hermenn þeirra ætla að halda þessu landi. Við munum verja það,“ sagði Hamza Birqdar, einn talsmanna Jaish al-Islam, við Reuters í gær. Þá greindu Rússar einnig frá því í gær að þeir hefðu aðstoðað þrettán almenna borgara við að flýja svæðið í gær. Var þeim hleypt upp í tóma bíla í bílalest hjálparsamtaka sem hafði fengið að fara inn á svæðið með nauðsynjar á mánudag. Um var að ræða fyrstu bílalestina sem kemur til Austur-Ghouta til að aðstoða almenna borgara frá því að átökin hófust í núverandi mynd. Sagði rússneski herinn jafnframt að hann hefði notað dróna til að fylgj- ast með því hvort lestinni tækist að komast á leiðarenda. thorgnyr@frettabladid.is Kljúfa Austur-Ghouta í tvennt Stjórnarherinn er nálægt því að kljúfa Austur-Ghouta í tvennt og hefur tekið næstum helming svæðisins. Nærri 800 hafa fallið í átökum nýverið og hundruð hermanna til viðbótar komu til Austur-Ghouta í gær. Sameinuðu þjóðirnar Grunnstoðir lýðræðisins rotna í Venesúela og yfir- völd í Egyptalandi grafa undan lýð- ræðinu. Þetta er á meðal þess sem kom fram í ræðu og skýrslu Zeid Ra’ad al-Hussein, mannréttindastjóra Sam- einuðu þjóðanna, frá því í gær. Forsetakosningar fara fram í Venesúela í maí en stjórnarandstaðan sniðgengur þær vegna óánægju með aðgerðir forsetans, Nicolas Maduro. „Umgjörð kosninganna uppfyllir á engan hátt lágmarksskilyrði um frjálsar og traustar kosningar,“ sagði Hussein í gær. Hvatti hann mann- réttindaráð SÞ til að álykta um að rannsaka skuli mannréttindabrot í Venesúela. Egyptar ganga til forsetakosninga síðar í þessum mánuði og þykir næsta víst að Abdel Fattah al-Sisi nái endur- kjöri. Hussein sagði ríkisstjórn hans nú reyna að ala á ótta. Lögregla hafi handtekið og pyntað stjórnarand- stæðinga og þaggað niður í óháðum fjölmiðlum. „Þrýst hefur verið á frambjóðendur að draga framboð sín til baka. Sumir hafa verið handteknir. Lög hafa verið sett sem banna frambjóðendum að skipuleggja baráttufundi og rúmlega 400 vefsíðum fjölmiðla og félagasam- taka hefur verið lokað.“ – þea Harðorður í garð Venesúela og Egyptalands Særð stúlka fær læknisaðstoð í Austur-Ghouta. Fjölmörg börn hafa dáið og særst í átökunum. NordicphotoS/AFp Zeid ra’ad al- hussein, mann- réttindastjóri SÞ. Suður-Kórea Sendinefnd suður- kóreskra erindreka mun koma einkaskilaboðum frá Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, til Bandaríkjastjórnar þegar sendi- nefndin ferðast til höfuðborgar- innar Washington síðar í vikunni. Kim afhenti erindrekunum skila- boðin á fundi þeirra í norðurkór- esku höfuðborginni Pjongjang en óljóst er hvort erindrekarnir fundi með Donald Trump, forseta Banda- ríkjanna, sjálfum. „Við getum ekki sagt fjölmiðlum frá öllu en við fengum upplýsingar um ýmsar skoðanir og viðhorf Norður-Kóreumanna sem við munum upplýsa Bandaríkjamenn um í heimsókn okkar,“ sagði Chung Eui-yong erindreki við suðurkór- eska miðilinn Yonhap. Á fundinum í Pjongjang sagðist Kim reiðubúinn að styðja afvopnun á Kóreuskaga gegn því að öryggi ein- ræðisstjórnarinnar yrði tryggt. Trump sagði á samskiptamiðlin- um Twitter að mögulega væri árang- ur að nást í því að losa um spennuna á Kóreuskaga í fyrsta skipti í mörg ár. Hins vegar gæti verið um fals- vonir að ræða. „En Bandaríkin eru tilbúin að beita sér af hörku, hvernig sem fer.“ Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, sagði í gær að þótt viss árangur væri nú að nást yrði ekki slakað á við- skiptaþvingunum gagnvart Norður- Kóreu áður en leiðtogar ríkjanna funda á landamærunum í apríl. „Miðað við það sem ég sé á Twitt- er virðist Trump jákvæður eftir heimsóknina. En þar sem þetta er bara upphafið held ég að það sé ótímabært að vera bjartsýnn,“ sagði Monn Jae-in í gær. – þea Koma með einkaskilaboð frá Kim til Bandaríkjastjórnar Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. NordicphotoS/AFp 8 . m a r S 2 0 1 8 F i m m T u d a G u r18 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 0 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 4 -E 1 9 4 1 F 2 4 -E 0 5 8 1 F 2 4 -D F 1 C 1 F 2 4 -D D E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.