Fréttablaðið - 08.03.2018, Side 57

Fréttablaðið - 08.03.2018, Side 57
BOSE QC35 II Hágæða þráðlaus heyrnar- tól með Acoustic Noise Cancelling tækni sem útilokar umhverfishljóð! iPHONE X 64GB Nýjasta útgáfa af hinum ofurvinsæla iPhone með betri skjá, meiri hraða og flottari myndavél Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 GRUB 2.1 BT Öflugir tölvuhátalarar með innbyggt Blue- tooth fyrir tónlist beint úr símanum;) Sérhannað fyrir leiki, tónlist og kvikmyndir 12.990 VERÐ ÁÐ UR 14.990 FERMING AR TILBOÐ SL MINI BK SOUNDLINK MINI Magnaður þráðlaus hátalari 22.990 HERSCHEL HERSCHEL Glæsilegt tilboð á töskum á verði frá: 7.693 30% AFSLÁTT UR GXT 860 LEIKJALYKLABORÐ Trust GXT 860 Semi mekanískt 6.990 IPAD I17 32G APPLE iPAD 9.7” spjaldtölva með WiFi og 32GB 48.990 1TB SG EXPAN 2TB ÚTGÁFA 14.990 4TB ÚTGÁFA 24.990 1TB FLAKKARI 2.5” Seagate Expansion flakkari 7.990 79.990ACER ASPIRE 3Glæsileg Acer Aspire með Bluelight Shield FHD skjá 15” FHD LED 1920x1080 ComfyView skjár AMD E2-9000 2.2GHz Turbo Dual Core örgjörvi 8GB minni DDR3 1866MHz 256GB SSD M.2 diskur 149.990 24.990RIG 800HD ÞRÁÐLAUSÖflug 24 tíma Lag-free þráðlaus leikjaheyrnartól DOLBY ATMOS 3D 24 TÍMA RAFHLAÐA 10M DRÆGNI MEMORY FOAM iPHONE SE 32GB Fermingartilboð verð áður 54.990 49.990 iPHONE 8 64GB Space og Gold litir fáanlegir 107.990 iPHONE X 64GB Nýjasta útgáfan frá Apple af þessum ofurvinsæla síma FERMINGARVEISLA BROT AF ÞVÍ BESTA ÚR 8BLS FERMINGARBÆKLINGNUM 48.990PS4 SLIM 1TBNý og endurhönnuð PS4 Slim með einum stýrip- inna og hinum sívinsæla Call of Duty WWII leik Einn stýripinni og Call of Duty WWII PLAYSTATION VR 52.990 VERÐ FR Á 39.990 PS4 Í ÚRVALI 69.990BENQ EL2870UFullko inn 4K leikjask- jár með kristaltæra HDR tækni, 1ms svartíma og FreeSync leikjatækni Einstakur HDR skjár með UHD 4K upplausn! 28” HDR UHD 3840x2160, 1ms, FreeSync 8. m ars 2018 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl Bækur Átta fjöll HHHHH Paolo Cognetti Þýðandi: Brynja Cortes Andrésdóttir Kápuhönnun: Moker Ontwerp Mál og menning 233 bls. „Fortíðin er niðri í dal, framtíðin uppi á fjalli. Svona hefði ég átt að svara pabba. Hver sem örlögin eru, þá búa þau í fjöllunum sem við höfum fyrir ofan okkur.“ Þetta er ein þeirra hugsana sem þjóta um huga hins unga Pietro, einka- s o n a r h j ó n a frá Mílanó sem ve r j a ö l l u m sínum frístund- um í að ganga á fjöll. Einkum e r f a ð i r i n n á s t r í ð u f u l l u r og kappsfull- ur fjallgöngumaður og sumrunum ver litla fjölskyldan í faðmi Alpa- fjallanna þar sem hann finnur áskoranir við nánast hvert fótmál. Fyrsta sumarið sem þau verja í afskekkta þorpinu Grana kynnist Pietro jafnaldra sínum Bruno og með þeim tekst sterk vinátta. Bruno er fjalladrengur inn að beini en hjá vini hans tilheyra fjöllin sumrinu og frelsinu sem því fylgir. Sagan hverfist um vinasamband þessara tveggja drengja og síðar manna í frásögn sögumannsins Pietro. Sagan skiptist í þrjá hluta þar sem fyrsti hlutinn hverfist um æskuna og ævintýrin í fjöllunum og með frásögn Pietro tekst Cognetti að varpa upp mynd af fjallalífinu af blússandi ástríðu sem er sérdeilis gaman að lesa. Reyndar minnir þessi fyrsti drengslegi hluti eilítið á stemninguna í þeirri frábæru bók Hvernig ég kynntist fiskunum, eftir hinn tékkneska Ota Pavel sem naut hér ágætra vinsælda árið 2011. Átta fjöll er hvorki flókin né fyrirferðarmikil skáldsaga. Þetta er látlaus, læsileg og eilítið tímalaus saga um vináttu og þroska tveggja drengja. Hún er uppfull af and- stæðuminnum sem við Íslendingar þekkjum eins og borgin og sveitin, að koma og fara, heim og heiman, ástin og einsemdin. Allt sett fram af smekkvísi og án þess að vera á ein- hvern hátt klisjukennt eða þröngv- að inn í frásögnina. Það er reyndar áþreifanlegt hversu mjúklega frá- sögnin líður áfram þó svo þar séu vissulega ris og átakafletir. En þessi mjúka nálgun fellur einkar vel að umhverfinu, kyrrð Alpafjallanna og náttúru þeirra sem höfundi tekst ákaflega vel upp við að lýsa. Að sama skapi er persónusköpunin vel heppnuð. Persónur trúverðugar og samkvæmar sjálfum sér án þess þó að verða klisjukenndar. Þessa styrkleika Átta fjalla er ekki síst að rekja til þess hversu vel heppnaður stíll er á verkinu. Þrátt fyrir mikilfenglegt umhverfi er aldr- ei skrúfað upp í tilgerð heldur fær einfaldleiki að ráða ríkjum. Þetta er stíll sem leikur líka í höndunum á Brynju Cortes Andrésdóttur sem skilar hér sem endranær vönduðu og góðu verki. Unnendur ítalskra samtímabókmennta sem eru ekki læsir á það ágæta mál eiga Brynju orðið mikið að þakka. Átta fjöll er ljúf og skemmtileg lesning en á sama tíma bók sem varpar fram spurningum um lífið sem við lifum og lífið sem við hefðum viljað lifa og margt fleira. Þetta er kannski ekkert ódauðlegt meistaraverk en það þarf enginn að láta sér leiðast í Ölpunum með Paolo Cognetti. Magnús Guðmundsson Niðurstaða: Ljúf og skemmtileg lesning um vináttuna og það að full- orðnast við ólíkar aðstæður. Í faðmi hárra fjalla Það kom söngfugl að sunnan er yfirskrift skemmtunar sem Krist- inn Sigmundsson bassasöngvari og Anna Guðný Guðmundsdóttir halda í Salnum næsta laugardag, 10. mars og hefst klukkan 14.30. Á efnis- skránni eru íslensk og erlend sönglög og aríur. „Þetta er svona aðgengileg uppá- haldsmúsík,“ segir stórsöngvarinn og telur þau Önnu Guðnýju hafa frekar líkan smekk. „Ég held að við séum að minnsta kosti bæði ánægð með pró- grammið,“ segir hann glaðlega. Á efnisskránni eru til dæmis lögin Tengdamæðurnar, Siesta, Vorið góða og Það kom söngfugl að sunnan eftir Atla Heimi Sveinsson og Kristinn nefnir líka bresk lög í útsetningum eftir Benjamin Britten. „Sum þeirra laga eru í þjóðlagastíl, hálfgerðir húsgangar sem Britten bjó til ansi skemmtilegt píanóundirspil við. Svo eru gamlar ítalskar aríur eftir Scarlatti, Durante og fleiri og við endum á Verdi. Það er aría Bancos úr Macbeth.“ Kristinn hefur starfað sem söngv- ari frá árinu 1984 og komið fram í flestum stærstu óperu- og tónlistar- húsum heims. Nú ætlar hann að taka nokkur þeirra laga sem hann hefur lengi haldið upp á og Anna Guðný að leika með. – gun Aðgengileg uppáhaldsmúsík segir Kristinn Sigmundsson Þau Anna Guðný og Kristinn munu gæla við hlustir gesta í Salnum á laugardaginn. hálfgerðir hús- gangar sem Britten Bjó til ansi skemmtilegt píanóundirspil við. m e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 45F i m m t u D a g u r 8 . m a r s 2 0 1 8 0 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 4 -F 5 5 4 1 F 2 4 -F 4 1 8 1 F 2 4 -F 2 D C 1 F 2 4 -F 1 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.