Fréttablaðið - 16.03.2018, Qupperneq 13
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron sameinar tvo heima
Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron hefur átt mikilli velgengni að fagna.
Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með
fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.
50 kílómetra drægni á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir
en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar
er samanlögð heildardrægni allt að 940 km.
Verð frá 4.270.000 kr.
Þórlindur
Kjartansson
Í dag Það sem þú ert um það bil að fara að lesa gæti komið til með að breyta menningarsögu Vestur-
landa til frambúðar.
Á þessum hæversku orðum hófst
lokaritgerð vinar míns í íslenskum stíl
í menntaskóla fyrir rúmum tuttugu
árum. Þótt engin ástæða sé til þess að
efast um ágæti ritgerðarinnar þá hafa
örlögin einhvern veginn æxlast þannig
að einungis einn maður las hina áhrifa-
miklu ritsmíð vinar míns—kennarinn
sem neyddist til þess, starfs síns vegna.
Því má álykta að annaðhvort hafi
vestræn menning verið rænd ódauð-
legu listaverki—eða, sem er sennilegra,
engum öðrum en höfundinum hafi
fundist sérstaklega mikið til ritgerðar-
innar koma.
Þrátt fyrir að þessi tilraun vinar
míns til þess að skrá nafn sitt á spjöld
menningarsögunnar hafi misheppnast
þá má hann þó eiga að hún var nógu
eftirminnileg til þess að um hana væri
skrifað í dagblaðapistli rúmlega tuttugu
árum síðar. Það má kallast ævintýra-
legur árangur fyrir skólaritgerð, þótt
markið hafi í upphafi verið sett mun
hærra.
Ekkert mikilvægara
Hugmynd vinar míns um að skóla-
ritgerð hans gæti átt sér eitthvert
framhaldslíf var vitaskuld sett fram
í hálfkæringi og átti að vera fyndin. Í
hugsuninni leynist þó sá sannleikur að
fyrir höfundinum sjálfum var ekkert
mikilvægara í heiminum þennan dag
heldur en einmitt það að skila af sér
góðu dagsverki í ritgerðarsmíð. Fyrir
prófið hafði hann undirbúið sig. Hann
reyndi hvað hann gat til þess að vera
vel upplagður þegar prófið var haldið.
Í prófinu sjálfu hélt hann algjörri ein-
beitingu. Og þegar prófinu lauk taldi
hann sig mega með góðri samvisku
njóta vorblíðunnar um hríð áður en
undirbúningur fyrir næstu prófraun
tók við.
Hið sama gilti vitaskuld um mörg
þúsund nemendur í skólum landsins
þetta vor, eins og öll önnur. Þeir hafa
leyfi til þess að borða eintóman skyndi-
bita vikum saman, sleppa því að fara í
bað og greiða sér, klæðast sömu þægi-
legu íþróttalörfunum dag eftir dag og fá
meira að segja að sleppa því að mæta í
fermingarveislur hjá frændsystkinum
sínum.
„Nei, hún kemst því miður ekki. Hún
er alveg á kafi í próflestri,“ er eitt af
örfáum trompum sem hægt er að spila
út til þess að losna undan öllum sam-
félagslegum skyldum. (Hin trompin eru
„Hún er að keppa með landsliðinu“ og
„Nei, hann er með hlutverk í Game of
Thrones og er á tökustað“).
Af öllu hjarta
Þótt árangur í prófum sé mikil-
vægur þá gerum við örugglega meira
úr honum en tilefni er til. Það er hins
vegar bráðnauðsynlegt að geta sann-
fært sjálfan sig um að allt sem maður
tekur sér fyrir hendur sé mjög mikil-
vægt og þess virði að gera eins vel og
maður getur. Ef mannskepnan hefði
ekki ríka hneigð til þess að ljá tilvist
sinni og viðfangsefnum æðri tilgang,
þá hefðum við líklega aldrei skriðið út
úr hellunum—og kannski ekki einu
sinni skriðið inn í þá.
Þegar börn og unglingar keppa í
íþróttum, æfa sig fyrir tónleikahald,
taka próf eða skila ritgerðum leggja
þau alla sína krafta og alla sína sál
í verkefnin. Í þeirra huga er ekkert
mikilvægara—ekki staðan fyrir botni
Miðjarðarhafs, ekki efnahagsástandið
á Íslandi, ekki svifryksmengun, ekki
aksturspeningar þingmanna.
Það er einmitt vegna þess hversu
alvarlega börn og unglingar taka við-
fangsefni sín að kennarar og íþrótta-
þjálfarar eru yfirleitt með áreiðan-
legasta fólki. Engum kennara dytti í
hug að gengisfella metnað nemenda
sinna með því að gleyma að mæta með
prófblöð á auglýstum prófdegi af því að
það sé ekki svo nojið hvort prófið sé í
dag eða á morgun. Og engum þjálfara
dytti í hug að segja við liðið sitt að taka
það bara rólega af því það er hvort sem
er eiginlega öllum sama hvernig leikur
Vals og Fram í 4. flokki karla fer.
Með hálfum hug
Glórulaus metnaður fyrir tilgangs-
litlum hlutum er nefnilega forsenda alls
þroska og framfara. Hlutverk skólakerf-
isins er meðal annars að útbúa þessum
glórulausa metnaði heilbrigðan farveg
svo börn og unglingar tileinki sér þekk-
ingu og þroski með sér hæfileika sem
gagnast þeim í framtíðinni.
Í þessu ljósi er áhugavert að velta
fyrir sér hversu góð hugmynd það var
að fela amerískum þjónustuaðila að
sjá um að leggja rafræn samræmd próf
fyrir íslenska nemendur. Ef allt fer í
handaskolum, eins og gerðist í síðustu
viku, þá raskar það vissulega ró nokk-
urra tæknimanna, en þeir þurfa ekki
að horfa framan í unglingana sem hafa
lagt nótt við nýtan dag í undirbúning
fyrir prófið. Í staðinn er send fréttatil-
kynning, undirrituð af markaðsstjóra,
þar sem klúðrið er harmað—og svo
snýr markaðsstjórinn sér að næsta máli
á dagskrá.
Hörð viðbrögð
Sem betur fer hafa viðbrögðin við
klúðri Menntamálastofnunar verið
hörð. Það skilur nefnilega himinn og
haf á milli þess metnaðar og vandvirkni
sem nemendurnir hafa lagt í sinn
undirbúning og þess sem skipuleggj-
endur prófsins hafa lagt í sinn.
Hvort sem samræmdu prófin eru
besta leiðin til þess að meta stöðu nem-
enda eða ekki, þá eru þau samt sem
áður það stærsta og mikilvægasta sem
nemendur 9. bekkjar undirbúa sig fyrir
og glíma við í heilt skólaár. Jafnvel þótt
úrlausnirnar séu ólíklegar til þess að
hafa áhrif á menningarsögu heimsins
þá eiga nemendur skilið að metnaður
þeirra og vinna sé ekki lítilsvirt með
þeim hætti sem gert var.
Glórulaust metnaðarleysi
Sem betur fer hafa viðbrögðin
við klúðri Menntamálastofn-
unar verið hörð. Það skilur
nefnilega himinn og haf á milli
þess metnaðar og vandvirkni
sem nemendurnir hafa lagt í
sinn undirbúning og þess sem
skipuleggjendur prófsins hafa
lagt í sinn.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 6 . m a R S 2 0 1 8
1
6
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
3
6
-B
0
2
0
1
F
3
6
-A
E
E
4
1
F
3
6
-A
D
A
8
1
F
3
6
-A
C
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K