Fréttablaðið - 16.03.2018, Side 6
Um 200 íslenskir karlmenn greinast árlega með krabbamein
í blöðruhálskirtli. Með því að kaupa Mottumarssokkana
leggur þú baráttunni gegn krabbameini í blöðruhálskirtli lið.
Pantaðu þitt par í vefverslun okkar á mottumars.is # mottumars
SLYS Kínverskur ferðamaður á ekki
rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu
ferðaþjónustufyrirtækis vegna and
láts eiginkonu sinnar hér á landi.
Kona hans lést í janúarlok 2016
eftir köfunarslys í Silfru. Ekki þótti
sannað að leiðsögumaður hjónanna
hefði borið sig rangt að. Þetta er
niður staða úrskurðarnefndar í
vátryggingamálum (ÚNVá).
Atvik málsins voru þau að kín
versku hjónin voru á leið í köfun
ina ásamt bandarískum hjónum og
leiðsögumanni. Eftir að þau höfðu
farið af stað synti leiðsögumaðurinn
á eftir hópnum og tók þá skyndilega
eftir því að konuna vantaði. Í sömu
mund sá hann miklar loftbólur
hinum megin við hrygg í gjánni sem
verið var að kafa í og lá konan þar á
syllu á um fimm metra dýpi.
„[Leiðsögumaðurinn] hafi þá
farið til hennar, þá hafi hann séð að
hún var með lungað á búningnum
uppi í munninum og ofandaði.
Leiðsögumaðurinn segir að þegar
hann hafi ætlað að ná sambandi
við konuna hafi hún brotist um og
slegið út úr sér lunganu,“ segir í lög
regluskýrslu málsins.
Á þeim tímapunkti var konan
með meðvitund og reyndi leiðsögu
maðurinn að koma lunganu upp í
hana á nýjan leik. Konan streittist
á móti með þeim afleiðingum að
hún féll af syllunni og um 30 metra
til botns í gjánni.
Með aðstoð bandaríska mannsins
náðist að koma konunni á land á ný
en þaðan var hún flutt með þyrlu á
sjúkrahús í Reykjavík. Þar lést hún
tveimur dögum síðar. Konan var á
þrítugsaldri.
Eiginmaður hennar krafðist
bóta úr ábyrgðartryggingu ferða
þjónustufyrirtækisins. Taldi hann
að leiðsögumaðurinn hefði brotið
gegn sérfræðiábyrgðarreglu bóta
réttarins sem og ákvæðum laga og
reglugerða um köfun. Of mikið blý
hafi verið notað til þyngingar konu
hans, viðbrögð leiðsögumannsins
við aðstæðum hafi verið röng og að
slysið megi rekja til gáleysis hans. Þá
hafi búnaðurinn sem notaður var
ekki uppfyllt lagaskilyrði.
Kínverski maðurinn bar svo við
að ekki hefði verið farið yfir öryggis
atriði köfunar áður en fólkið fór í
vatnið. Sá framburður stangaðist á
við frásögn leiðsögumannsins sem
og bandarísku hjónanna. Sögðu
þau að leiðsögumaðurinn hefði
farið „rækilega yfir notkun alls köf
unarbúnaðarins uppi á landi áður
en farið var í köfunina og hann hafi
sýnt notkun þurrbúningsins og farið
yfir öryggisatriði“.
Ekki þótti sýnt fram á að við
brögð leiðsögumannsins og
björgunaraðgerðir hans hafi verið
rangar. Þá stóðst köfunarbúnað
urinn allar skoðanir tæknideildar
lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu. ÚNVá taldi ekkert fram
komið sem benti til þess að rang
lega hefði verið staðið að ferðinni
og því skilyrði bóta úr ábyrgðar
tryggingunni ekki uppfyllt.
joli@frettabladid.is
Kínverskur ekkill fær ekki bætur
eftir lát konu sinnar í Silfru
Ekkert var athugavert við köfunarferð ferðaþjónustufyrirtækis í Silfru í janúar 2016. Kínversk kona lést eftir
slys í ferðinni. Kröfu manns hennar um bætur var hafnað af úrskurðarnefnd í vátryggingamálum.
Orsök slyssins er talin sú að konan hafi fjarlægt lungað úr munni sér og fengið við það sjokk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ViðSkipti „Þetta voru fréttir fyrir mig
líka, ég vissi ekki af þessu þannig að
við höfum ekki náð að skoða þetta,“
segir Árni Guðmundsson, fram
kvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs,
um launahækkanir forstjóra N1 sem
Fréttablaðið greindi frá í gær. Gildi
lífeyrissjóður er næststærsti hluthafi
N1.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í
gær hækkuðu laun og hlunnindi Egg
erts Þórs Kristóferssonar, forstjóra
N1, um sem nemur rúmri milljón á
mánuði í fyrra frá árinu áður. Málið
hefur vakið hörð viðbrögð úr röðum
verkalýðsforystunnar en hinir ýmsu
lífeyrissjóðir eiga rúm 50 prósent í
félaginu sem skráð er í Kauphöllina.
Stærstu hluthafar félagsins eru
Lífeyrissjóður verslunarmanna með
13,3 prósenta hlut og Gildi með 9,2
prósenta hlut. Fréttablaðið sendi
fyrirspurnir á framkvæmdastjóra
þeirra um hvort athugasemdir hefðu
verið gerðar við þessar hækkun, með
tilliti til meðal annars hluthafastefnu
sjóðanna.
Gildi samþykkti nýja hluthafa
stefnu fyrir stórar fjárfestingar
árið 2015, sem teljast 0,5 prósent
af heildareignum sjóðsins, 5 pró
sent eða meira í hverju félagi eða að
sjóðurinn sé meðal fimm stærstu
hluthafa. Í henni eru sett fram við
mið um upplýsingagjöf hvað varðar
starfskjör og starfskjarastefnu og
kveðið á um að stuðla að auknum
og gagnkvæmum samskiptum við
stjórnir félaga. Í stefnunni segir að
áhersla sé lögð á að ávallt liggi fyrir
„greinargóðar upplýsingar og rök
fyrir starfskjörum stjórnenda og
starfsmanna, m.a. árangurstengdum
launagreiðslum s.s. kaupaukum“.
Kjarabót forstjórans upp á rúm 20
prósent og fjögurra framkvæmda
stjóra upp á tæp 16 prósent virðist
hins vegar hafa komið forsvars
mönnum Gildis í opna skjöldu.
„Við eigum eftir að ræða þetta
innan sjóðsins þannig að ég get ekk
ert sagt eins og staðan er núna. Bara
„no comment“ í bili,“ segir Árni.
Guðmundur Þ. Þórhallsson, fram
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl
unarmanna, hefur ekki svarað fyrir
spurn Fréttablaðsins. – smj
Frétti af launahækkun forstjórans í fjölmiðlum
Árni
Guðmundsson.
Mest lesið
1 Trampólín s lys í Skypark: „Það
var allt í blóði“
2 Átak gegn vændi í gegnum Airbnb
3 Face book-boð í partí þótti ó tækt
máls gagn
4 Stjórnar- formaður
Borgunar segir
regluverkið ekki frítt
StjórnmáL Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra mun funda með
Angelu Merkel, kanslara Þýskalands,
á mánudaginn. Samkvæmt heim
ildum Fréttablaðsins fer fundurinn
fram í Berlín.
Angela Merkel endurnýjaði umboð
sitt sem kanslari Þýskalands fyrr í
mánuðinum eftir að Jafnaðarmanna
flokkurinn og Kristilegir demókratar
endurnýjuðu samstarf sitt.
Merkel hefur verið kanslari Þýska
lands frá árinu 2005. – jhh
Katrín hittir
Angelu Merkel
Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráðherra.
1 6 . m a r S 2 0 1 8 F Ö S t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
6
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
6
-D
2
B
0
1
F
3
6
-D
1
7
4
1
F
3
6
-D
0
3
8
1
F
3
6
-C
E
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K