Fréttablaðið - 16.03.2018, Síða 20
Ég held að fólk sé
almennt til í að
breyta til og prófa eitt-
hvað nýtt. Hver og einn
kýs að hafa sinn eigin stíl,
frekar en að vera eins og
allir hinir. Það er mjög
mikil breyting frá því sem
áður var, þegar allir voru
með sítt hár og liði.
Edda Sif Guðbrandsdóttir
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ég sé fram á að hártískan í vor verði mjög skemmtileg. Við eigum eftir að sjá talsvert
hlýrri liti en undanfarið og minna
af gráum tónum sem hafa verið
vinsælir í ljósu hári í vetur. Frísk-
andi kopar-, pastel- og ferskjutón-
ar verða áberandi, líkt og dökkt,
náttúrulegt hár með hlýjum blæ,“
segir Edda Sif Guðbrandsdóttir
hársnyrtimeistari en hún hefur
starfað í faginu í tuttugu ár.
„Stytturnar koma aftur inn og
það verður nokkuð um ’70s áhrif
þar. Mikið verður um toppa og svo
er mullettið að koma aftur fram en
með nútímalegri blæ en áður. Við
erum ekki að tala um gamla, góða
mullettið þar sem hárið er stutt
að framan og sítt að aftan heldur
dálítið mýkra. Hárið hjá strák-
unum er að síkka og margir láta
lýsa á sér hárið fyrir sumarið. Það
er mjög gaman að sjá að strákarnir
eru ófeimnir við að breyta til.“
Fylgihlutir vinsælir
Spennur, hárbönd og nælur sem
festar eru í hárið eiga einnig eftir
að setja sinn svip á hártískuna í
vor og segir Edda Sif slíka fylgi-
hluti njóta sívaxandi vinsælda.
Greiðslur eru líka mikið í tísku,
svo sem fléttur, snúðar og liðir hjá
fermingarstúlkum. „Allir fylgi-
hlutir hafa farið stækkandi undan-
farið, líka í hártískunni sem mér
finnst mjög hressandi. Label.M er
t.d. með mjög flottar nælur í hárið,
sem fást t.d. í Hárakademíunni.“
Fleiri fara eigin leiðir
Flestir eru með heiminn í höndun-
um í símanum og fylgjast vel með
nýjum tískustraumum á Instagram
og Snapchat. Edda Sif segir það
vissulega hafa áhrif á hártískuna.
„Ég held að fólk sé almennt til í að
breyta til og prófa eitthvað nýtt.
Hver og einn kýs að hafa sinn eigin
stíl, frekar en að vera eins og allir
hinir. Það er mjög mikil breyting
frá því sem áður var, þegar allir
voru með sítt hár og liði,“ rifjar
hún upp.
Þurrsjampó ómissandi
Þegar Edda Sif er spurð hvernig
best sé að hugsa vel um hárið
segir hún mikilvægt að nota góð
Hlýir og frískandi litir
og styttur í hárið
Edda Sif á von á að spennur, hárbönd
og nælur verði vinsælt hárskraut í
vor. MYND/STEFÁN
Hárskraut verður áberandi í hártískunni. Gráir tónar víkja fyrir mildum, hlýjum litum.
Hártískan í vor
einkennist af
hlýjum kopar-,
ferskju- og pastel-
litum. Styttur
í hárinu koma
sterkar inn og
fylgihlutir verða
áberandi, að sögn
Eddu Sifjar Guð-
brandsdóttur hár-
snyrtimeistara.
sjampó og næringu til að halda
hárinu heilbrigðu. „Svo hjálpar til
að nota góðar mótunarvörur til
að ná fram því lúkki sem maður
vill. Núna er DRY sjampó, eða
þurrsjampó, mjög heitt til að
ná fram þéttleika í hársrótinni.
DRY sjampóið er púðurkennt og
er galdraefni til að halda hárinu
hreinu og eins til að stækka hárið.
Það er í miklu uppáhaldi hjá mér
en það er líka gott að eiga gamla,
góða hárlakkið. Svo mæli ég með
að fá góð ráð frá klipparanum
sínum um hárumhirðu og -vörur.“
Ánægð með ævistarfið
Edda Sif er mjög ánægð með að
hafa valið sér hárgreiðslu að ævi-
starfi. „Ég ákvað strax sem lítil
stelpa að verða hárgreiðslukona.
Það er svo gaman að kynnast
skemmtilegu fólk í gegnum starfið
og fá að gleðja fólk í stólnum. Ég
myndi ekki vilja gera neitt annað
og mæli heilshugar með þessu
starfi fyrir þá sem eru flinkir
í höndunum og þykir gaman
að umgangast fólk. Ég fer út á
sýningar a.m.k. einu sinni á ári
til að halda mér ferskri í faginu
og þá aðallega til London. Það er
nauðsynlegt að halda sér á tánum
og svo er alltaf skemmtilegt að
sjá eitthvað nýtt í hártískunni. Ég
er svo heppin að hafa unnið með
frábæru fólki í gegnum tíðina, sem
hefur veitt mér mikinn innblástur
og verið gott að umgangast.“
Edda Sif er nýlega komin úr
fæðingarorlofi og vinnur hjá
Hárakademíunni, sem er einkarek-
inn hárgreiðsluskóli í Mörkinni 1.
„Við verðum einmitt með opið hús
frá kl. 17.00-20.00 þann 20. mars
fyrir fermingarbörn og þeirra
aðstandendur. Þá er hægt að koma
og prófa að gera í sig krullur og fá
góð ráð. Við verðum með tilboð
á öllum HH Simonsen járnum og
Label.M vörunum fyrir þá sem
vilja greiða sér sjálfir á fermingar-
daginn.“
MACY’S AT 34TH STREET
Tommy Hilfiger úrin fást hjá eftirtöldum verslunum
GÞ. skartgripir & úr, Bankastræti 12 | Michelsen úrsmiðir, Kringlunni 8-12 | Jón & Óskar, Laugavegi 61 | Jón&Óskar, Kringlunni 8-12
Jón&Óskar, Smáralind | Meba Kringlunni 8-12 og Meba Smáralind | Klukkan Hamraborg | Halldór Ólafsson, Glerártorgi Akureyri
Klassík, Egilstöðum | Guðmundur B. Hannah, Akranesi | Tímadjásn, Grímsbæ
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
6
-D
7
A
0
1
F
3
6
-D
6
6
4
1
F
3
6
-D
5
2
8
1
F
3
6
-D
3
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K