Fréttablaðið - 13.03.2018, Síða 2
Veður
Bjart veður um landið vestan- og
norðanvert, en skýjað og dálítil él
suðaustan- og austanlands. Allvíða
frostlaust yfir daginn á Suður- og
Vesturlandi, annars frost að 10
stigum, kaldast í innsveitum fyrir
norðan. sjá síðu 16
Góðir dagar undir glerinu
Þeir stækka ört græðlingarnir hjá Þorvaldi Snorrasyni garðyrkjufræðingi og starfsfólkinu í Flóru í Hveragerði. „Það er góður vöxtur undir gleri er
sólin skín eins og hún hefur gert síðustu daga,“ segir Þorvaldur sem, líkt og gróðurinn, hefur notið blíðunnar sem verið hefur. Fréttablaðið/Eyþór
Kjaramál „Þetta var hennar kosn-
ingasigur og ég vildi bara leyfa
henni að eiga þessa viku,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sem
kveðst hafa hringt í Sólveigu Önnu
Jónsdóttur, nýkjörinn formann Efl-
ingar stéttarfélags, og óskað henni
til hamingju með sigurinn. Gylfi
hefur ekki tekið ákvörðun um hvort
hann gefi kost á sér til endurkjörs á
Alþýðusambandsþingi í haust.
Nokkuð hefur verið fjallað um
þögn Gylfa og fráfarandi formanns,
Sigurðar Bessasonar, í garð Sólveig-
ar eftir sigur hennar á miðvikudag.
Sólveig staðfesti við Fréttablaðið.is
að hvorugur hefði þá haft samband
við hana eftir sigurinn, nokkuð sem
henni þótti svolítið skrýtið.
Gylfi kveðst í samtali við Frétta-
blaðið hafa verið staddur í Banda-
ríkjunum og því ekki gefið sér
tíma til að setja sig í samband við
Sólveigu Önnu, en segir mönnum
frjálst að túlka að vild. „Ég ætla ekki
að bera ábyrgð á því hvernig menn
hafa lesið í þessa þögn.“
Gylfi segir sigur Sólveigar vissu-
lega hafa verið glæsilegan og ljóst
að verkefnin fram undan séu ærin.
„Ég fagna því að fólk komi til
starfa á vettvangi hreyfingarinnar
fullt af eldmóði. Það er mikilvægt
fyrir hreyfinguna. Hér er kominn
nýr forystumaður að taka við Efl-
ingu, sem er okkar næststærsta
félag og þetta er flott niðurstaða
fyrir hana.“
Bandalag tveggja stærstu stéttar-
félaga ASÍ, VR og Eflingar, í félagi
við Framsýn á Húsavík og Verka-
lýðsfélag Akraness þýðir að félögin
eru samanlagt með ríflega 53 pró-
sent félagsmanna í ASÍ. Forystu-
Gylfi hringdi í Sólveigu
en framtíð hans óráðin
Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, ræddi við nýjan formann Eflingar í gær eftir
utanferð. Tekur ekki ábyrgð á túlkun á þögn hans eftir kjörið. Niðurstaðan sé
flott fyrir Sólveigu Önnu. Enn sé óákveðið hvort hann sækist eftir endurkjöri.
Sverrir
Hermannsson
látinn
Sverrir Hermanns-
son, fyrrverandi
alþingismaður
og ráðherra, lést
í gær, 88 ára að
aldri. Sverrir var
sonur Hermanns
Hermannssonar og Salóme
Rannveigar Gunnarsdóttur. Hann
var stúdent frá MA og viðskipta-
fræðingur frá HÍ.
Sverrir sat á Alþingi 1971 til
1988 fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og Frjálslynda flokkinn 1998 til
2003. Hann var iðnaðarráðherra
1983 til 1985 og menntamála-
ráðherra 1985 til 1987. Sverrir var
Landsbankastjóri 1988 til 1998.
Sverrir kvæntist Gretu Lind
Kristjánsdóttur 1953. Hún lést
2009. Þau eignuðust fimm börn
og eina fósturdóttur.
menn þessara félaga hafa þegar rætt
saman og stillt saman strengi sína
en þeir hafa undanfarin ár eldað
grátt silfur við Gylfa Arnbjörnsson
og forystu ASÍ.
Kjör Sólveigar Önnu gæti því hafa
verið síðasta púslið í að breytingar
kunni að vera í farvatninu í forystu
ASÍ á Alþýðusambandsþingi í haust.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, hafði lýst því yfir fyrir kosning-
arnar í Eflingu að ef Sólveig næði
kjöri yrði Gylfa ekki stætt lengur
sem forseta ASÍ.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, fagnaði
því í pistli á heimasíðu félagsins að
nú hefði nýr meirihluti náð yfir-
höndinni innan ASÍ.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins innan úr verkalýðshreyf-
ingunni líta margir svo á að Gylfi
sjái sæng sína upp reidda innan ASÍ.
Gylfi kveðst enga ákvörðun hafa
tekið um framtíð sína sem forseta.
„Ég hef ekki tekið neina ákvörðun
um það. Ég er alveg hættur að hafa
úthald í að tjá mig um það þegar
Ragnar Þór Ingólfsson finnur sér
tilefni til að hafa skoðun á mér. Ég
ætla ekki að elta ólar við það.“
mikael@frettabladid.is
„ég fagna því að fólk komi til starfa á vettvangi hreyfingarinnar fullt af eld-
móði,“ segir Gylfi arnbjörnsson. Sigur Sólveigar Önnu Jónsdóttur sé glæstur.
DÓmsmál Landsréttur hefur fellt
úr gildi 1,5 milljónar málskostn-
aðartryggingu sem Héraðsdómur
Reykjavíkur gerði Emmu Caroline
Fernandez að setja að kröfu Hjálm-
ars Friðrikssonar og Stundarinnar.
Emma, sem er læknir, var 2016
í Ungverjalandi dæmd í fimm ára
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
byrlað skólasystur sinni svefnlyf og
barið hana í höfuðið með hamri.
Árangurslaust fjárnám var gert
hjá Emmu í upphafi árs. Mál hafa
verið höfðuð gegn henni vegna
vanskila. Því féllst héraðsdómari á
kröfu Stundarinnar um málskostn-
aðartryggingu.
Í úrskurði Landsréttar segir að
þótt Emma sé líklega ekki borg-
unarmaður málskostnaðar, tapi
hún málinu, þá myndi tryggingin
takmarka stjórnarskrárvarinn rétt
hennar til að fá lausn fyrir dóm-
stólum. Var einnig vísað til dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu.
„Dómarinn í málinu er Jón Finn-
björnsson, sem Stundin hefur fjallað
ítrekað um, vegna þess að Sigríður
Andersen dómsmálaráðherra ákvað
að skipa hann dómara þótt hann
væri metinn 30. hæfasti umsækjand-
inn, langt frá þeim fimmtán hæfustu
sem óháð dómnefnd valdi. Hann
er eiginmaður fyrrverandi sam-
starfskonu dómsmálaráðherrans til
margra ára, sama ráðherra og skipaði
hann með ólögmætum hætti,“ skrifar
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stund-
arinnar, á Facebook vegna málsins.
„Þetta er annað málið sem sami
dómari dæmir gegn Stundinni á
innan við ári, eftir að umræður
hófust um skipun hans,“ bætir Jón
við. – jóe
Stundarritstjóri
hjólar í dómara
Jón trausti
reynisson
1 3 . m a r s 2 0 1 8 Þ r I ð j u D a G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-3
E
7
8
1
F
2
C
-3
D
3
C
1
F
2
C
-3
C
0
0
1
F
2
C
-3
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K