Fréttablaðið - 13.03.2018, Side 8
Náttúruleg vörn gegn
óþægindum á kynfærasvæði
Liljonia
Hylki í leggöng
Rosonia
Froða fyrir ytri kynfæri
Rosonia og Liljonia frá Florealis byggja á vísindalegum
grunni og hafa viðurkennda virkni gegn kláða, sviða og
bólgum á ytra kynfærasvæði og í leggöngum.
Rosonia og Liljonia má nota saman ef einkenni eru
bæði á ytri og innri kynfærum.
Sjá meira á florealis.com
Aðalfyrirlesari
BRETLAND Eitrið sem notað var til að
reyna að ráða Sergei Skripal, rúss-
neskan njósnara á eftirlaunum, og
dóttur hans af dögum kom frá Rúss-
landi. Þetta tilkynnti Theresa May,
forsætisráðherra Bretlands, í ræðu
á breska þinginu í gær. Talið er að
málið geti reynt á þolmörk sam-
bands Breta og Rússa.
Umræddur Skripal og dóttir hans
fundust meðvitundarlaus á bekk í
Salisbury þann 4. mars síðastliðinn.
Þau voru flutt á sjúkrahús en rann-
sóknir leiddu í ljós að þau höfðu
komist í tæri við taugaeitur. Efnið
sem var notað er úr hópi svokall-
aðra „novichok“-efna en þau voru
þróuð af Sovétmönnum á áttunda
og níunda áratugnum.
„Annaðhvort var þetta bein
aðgerð Rússa á breskri grund eða
rússnesk stjórnvöld hafa misst stór-
hættulegt taugaeitur í hendur ann-
arra,“ sagði May í ræðu sinni.
Hún sagði enn fremur að utan-
ríkisráðuneytið hefði verið í sam-
bandi við stjórnvöld í Moskvu út af
málinu. Kreml hefði til dagsloka í
dag til að senda frá sér „trúverðugt
svar“, ella myndu Bretar álykta
að um ólögmæta notkun valds á
erlendri grund hefði verið að ræða.
Muni ekkert svar liggja fyrir mun
fulltrúadeild breska þingsins ræða
málið á fundi á morgun.
Skripal, sem er fæddur árið 1951,
starfaði sem njósnari Rússa frá
1990 til ársins 2004. Þá var hann
handtekinn af rússneskum öryggis-
yfirvöldum þar sem hann stundaði
einnig gagnnjósnir fyrir Breta. Hann
var sakfelldur fyrir landráð en síðar
framseldur til Bretlands í skiptum
fyrir rússneska njósnara sem hand-
teknir höfðu verið af Bretum og
Bandaríkjamönnum. Bæði Skripal
Skripal-leik Rússa og Breta fram haldið
Þjóðaröryggisráð Breta fundaði í gær vegna málsins. Hér sést Theresa May
forsætisráðherra íhugul að fundinum loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
og dóttir hans eru á batavegi og sömu
sögu er að segja af lögreglumanni
sem hlúði að þeim í Salisbury.
Hingað til hafa stjórnvöld í
Moskvu látið kröfur Breta sem vind
um eyrun þjóta. Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, var til að mynda
spurður um hver aðild Rússa að mál-
inu væru. Pútín svaraði spurning-
unni á þann veg að Bretar þyrftu að
„komast til botns í málinu“. Aðeins
þá væri hægt að ræða málið.
Maria Zakharova, talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins, bætti
um betur að ræðu May lokinni en að
hennar mati var um að ræða „sirkus-
sýningu í fulltrúadeild breska þings-
ins“.
Það hefur löngum andað köldu
milli ríkjanna tveggja og ekki er
talið líklegt að atvikið verði þess
valdandi að samskiptin batni.
Undanfarna viku hafa ráðamenn
sent pillur milli landa. Boris
Johnson, utanríkisráðherra Breta,
líkti málinu við mál Alexanders
Litvinenko en Breta hefur lengi
grunað Rússa um að vera á bak við
morðið á honum. Fyrrnefnd Zakh-
arova sakaði Breta þá um að nota
harmleikinn sem áróðursefni gegn
Rússum.
„Hvernig getur maður sem fer
með stjórn utanríkismála sent
slíkar yfirlýsingar frá sér?“ spurði
Zakharova. joli@frettabladid.is
Forsætisráðherra Bret-
lands tilkynnti þinginu
í gær að annaðhvort
stæðu Rússar að baki
morðtilraun á fyrr-
verandi njósnara eða að
þeir hefðu látið stór-
hættulegt taugaeitur af
hendi. Rússar láta sér
fátt um finnast og kalla
uppákomuna sirkus.
Komist til botns í
málinu. Síðan
getum við rætt það.
Vladimír Pútín,
forseti Rússlands
1 3 . m A R s 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R8 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-6
1
0
8
1
F
2
C
-5
F
C
C
1
F
2
C
-5
E
9
0
1
F
2
C
-5
D
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K