Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörmung-
arnar, mann-
fyrirlitningin
og sú algjöra
vanvirða sem
grundvallar-
mannrétt-
indum hefur
verið sýnd í
átökunum er
án fordæma.
Nú þegar borgin kemur undan snjónum sést bágt ástand gatna og göngustíga vel. Við-hald hefur verið of lítið og sums staðar eru
götur bókstaflega í molum. Það blasir við að í þessum
efnum þarf önnur og breytt vinnubrögð. Þrátt fyrir
að vindar blási hressilega er svifryk með mesta móti
miðað við erlendar borgir. Uppruni svifryksins er að
mestu leyti úr götum borgarinnar eða 49% úr malbiki.
Næst á eftir kemur sót sem er 31% og á uppruna sinn
að miklu leyti úr dísilknúnum farartækjum.
Svifryk þarf að stórminnka í borginni. Fara þarf í
fyrirbyggjandi aðgerðir eins og kostur er. Við getum
dregið úr svifryksmengun með því að leggja slit-
sterkara malbik á göturnar en nú er gert. Skoða þarf
hvort unnt sé að draga enn frekar úr svifryki með því
að steypa umferðarþyngstu göturnar. Jafnframt þarf
Reykjavíkurborg að sópa götur og gangstéttir oftar
og skola með vatni eftir þörfum. Svifryk endar inni í
húsum fólks og lungum þess. Þessu þarf að breyta.
Reykjavík getur gert betur
Annað mál sem er ekki síður mikilvægt er sorphirða
og flokkun á sorpi. Hér getur Reykjavík gert betur.
Við sjáum önnur sveitarfélög þar sem meiri metn-
aður er lagður í flokkun og sorphirðu. Höfuðborgin
Reykjavík, langstærsta sveitarfélag landsins, á að sýna
gott fordæmi og vera leiðandi í sorphirðu. Í öðrum
sveitarfélögum hefur flokkun verið meiri á sorpi en í
Reykjavík í mörg ár og þar af leiðandi minni urðun.
Til að mynda á Akureyri. Þar munu þrír af hverjum
fjórum strætisvögnum ganga fyrir metangasi sem
annars gufaði upp af sorphaugunum til skaða fyrir
andrúmsloftið.
Í Reykjavík gætu Strætó og Sorpa unnið betur saman
og minnkað bæði uppgufun metangass af sorphaug-
unum sem og losun dísilvéla strætó. Rafmagnsstrætis-
vagnar eru áhugaverð lausn en enn hefur enginn vagn
komið til landsins. Allt eru þetta mál sem skipta okkur
Reykvíkinga máli. Í vor gefst tækifæri til að breyta um
stefnu í þessum málum. Gerum betur. Vilji er allt sem
þarf.
Vorhreinsun
Eyþór Arnalds
í 1. sæti Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík
Skoða þarf
hvort unnt sé
að draga enn
frekar úr
svifryki með
því að steypa
umferðar-
þyngstu
göturnar.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Við andlát þurfa aðstandendur að glíma við ýmis praktisk mál
sem fylgja því að loka lífi ástvinar. Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðingur fjallar um þessi mál á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar
þann 14. mars kl. 20.00 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Allir velkomnir.
og dánarbússkipti
Erfðamál
Pírati eins og ég
Píratar hafa blásið í herlúðra.
Þannig hefur stjörnublaða-
maðurinn Atli Þór Fanndal verið
ráðinn sem ráðgjafi og verður
meðal annars einstökum fram-
bjóðendum innan handar. Þá er
kvikmyndaleikstjórinn Róbert
Ingi Douglas orðinn kosninga-
stjóri höfuðborgarsvæðisins.
Hann er einna þekktastur fyrir
bíómyndirnar Íslenski draumur-
inn, Maður eins og ég og heim-
ildarmyndina Mjóddin. Næstu
vikur mun mikið mæða á þessum
kempum svo íslenskur draumur
Pírata, sem eru eins og þeir eru,
megi rætast.
Að þroskast eða ekki …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
festi sig rækilega í sessi sem for-
maður Viðreisnar á landsþingi
flokksins um helgina. Þar varaði
hún við Sjálfstæðisflokknum. Sá
boðskapur hljómaði einkenni-
lega í eyrum veitingamannsins
Björns Inga Hrafnssonar sem er
með næma pólitíska bragðlauka.
„Magnað að heyra boðskap for-
manns Viðreisnar í dag þess efnis
að Sjálfstæðisflokkurinn megi
ekki komast til valda í Reykjavík
eftir næstu kosningar. Þar til fyrir
skemmstu var Þorgerður Katrín
varaformaður og ráðherra þessa
sama Sjálfstæðisflokks,“ skrifaði
Björn Ingi á Facebook. Stjórn-
málaskýrandinn Össur Skarp-
héðinsson svaraði að bragði og
sagði alla hafa rétt til að þroskast.
thorarinn@frettabladid.is
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur geisað í sjö ár. Í mars 2011 var fjöldamótmælum, sem beindust gegn ríkjandi valdhöfum, svarað með ofbeldi og síðan þá hefur hörmungunum hvergi linnt. Rúmlega hálf
milljón manna liggur í valnum. Í kringum 85 prósent
þeirra sem farist hafa í átökum stríðandi fylkinga
eru óbreyttir borgarar. Helmingur allra Sýrlendinga
hefur þurft að yfirgefa heimili sín.
Þeir glæpir sem framdir hafa verið af vígasveitum
Assads Sýrlandsforseta eru svívirða. Efnavopnum og
klasasprengjum hefur verið beitt gegnum borgurum.
Skólar, leikskólar og spítalar hafa verið jafnaðir við
jörðu, og í þeim umsáturshernaði sem stríðandi
fylkingar hafa stundað undanfarin misseri hefur vel-
ferð íbúa verið hervædd og misnotuð.
Hörmungarnar, mannfyrirlitningin og sú algjöra
vanvirða sem grundvallarmannréttindum hefur
verið sýnd í átökunum er án fordæma. Þessa mann-
fyrirlitningu má finna víða í tengslum við átökin í
Sýrlandi. Hana er að finna á vígvellinum, þar sem
óbreyttir borgarar, lífsnauðsynlegir innviðir og jafn-
vel sjálfboðaliðar hjálparsveita eru skotmörk víga-
manna, en einnig í viðbrögðum alþjóðasamfélagsins
sem hefur brugðist í hvívetna. Sagnfræðinga fram-
tíðarinnar bíður það verðuga verkefni að rýna í það
hvernig okkur mistókst svo stórkostlega að koma
Sýrlendingum til aðstoðar.
Það upplýsingastríð sem geisar um borgarastyrj-
öldina er síðan svívirða af öðrum toga. Áróðursvél
rússneskra og sýrlenskra yfirvalda hefur sáð fræjum
efasemda um flestallt sem viðkemur átökunum og
ýtt undir þær með hjálp samsæriskenningasmiða
og nettrölla. Tilraunir þessara einstaklinga og hópa
hafa sannarlega borið árangur. Öll umræða um
átökin í Sýrland er orðin þvæld og nánast óskiljan-
leg. Í þessari mannfjandsamlegu heimssýn er ekkert
til sem heitir Staðreynd, aðeins áróður og sérhags-
munir. Jafnvel Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu
þjóðanna lýgur í átökum upplýsingastríðsins þar
sem Hvítu hjálmarnir eru málaliðar Al-Kaída.
Þeir sem bera út boðskap rússneskra yfirvalda
hafa stuðlað að enn frekara aðgerðaleysi. Almenn-
ingur, sem sannarlega hefur burði til að krefjast
aðgerða, hefur nú takmarkaðri aðgang að stað-
reyndum en áður.
Það er augljóslega margt sem við vitum ekki um
átökin í Sýrlandi og eðlilegt er að ræða mismunandi
hugmyndir og sjónarmið þegar tilurð og tilgangur
þessara flóknu, fjölþjóðlegu átaka er annars vegar.
Hins vegar er það aðeins til þess fallið að gera illt
verra að vilja „opna umræðuna“ með því að hefja
hana á forsendum þeirra sem tala fyrir áframhald-
andi mannvonsku og hörmungum.
Það var raunin í Safnahúsinu á dögunum þegar
áhrifamikill bloggari, Vanessa Beeley, sem telur SÞ
ljúga um átökin í Sýrlandi, var fengin til að halda
erindi á fundi sem bar yfirskriftina „Er verið að segja
okkur satt um stríðið í Sýrlandi?“.
Hálfri milljón mannslífa seinna, þegar forn og
göfug þjóð mætir hörmungunum einangruð og ein-
sömul, er þetta umræðan sem við erum hvött til að
taka.
Upplýsingastríð
1 3 . m a r s 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-4
D
4
8
1
F
2
C
-4
C
0
C
1
F
2
C
-4
A
D
0
1
F
2
C
-4
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K