Fréttablaðið - 13.03.2018, Side 11
Jón Þór Ólason, formaður Stang-veiðifélags Reykjavíkur og lög-maður, skrifar grein í Frétta-
blaðið 6. mars og svarar grein sem
ég hafði ritað í sama blað. Greinar-
höfundur hafnar því að unnt sé að
stunda laxeldi í sjó í sátt við nátt-
úruna. Þetta er skýr og afdráttarlaus
skoðun og virðist fela í sér bann við
atvinnurekstri sem þegar er hafinn,
þar sem fjárfest hefur verið fyrir tugi
milljarða, hundruð starfa orðið til
og er orðinn burðarás í atvinnulífi
byggðarlaga á landsbyggðinni, svo
fátt eitt sé nefnt.
Meginforsenda greinarhöfundar
er röng og því fellur málflutningur
hans um sjálfan sig.
Fiskeldi umfangsmeira
en veiðar á villtum fiski
Hér á landi starfar fiskeldi sam-
kvæmt mjög ströngum reglum
sem byggjast á lagafyrirmælum
og reglugerðum sem ætlað er að
tryggja að hér megi byggja upp fisk-
eldi í góðri sátt við náttúruna. Fisk-
eldi er stundað um allan heim og
er snar þáttur í fæðuframboði sem
fer vaxandi með ári hverju. Þannig
stefna stjórnvöld hvarvetna að því
að auka fiskeldi sitt, jafnframt því
að setja strangar reglur um starf-
semina. Nú er svo komið að í gegn
um fiskeldi í heiminum verður til
meiri fiskframleiðsla en sem nemur
veiðum og vinnslu á villtum fiski. Á
síðasta ári nam laxeldi eitt og sér um
2,5 milljónum tonna í heiminum.
Fiskeldi á grundvelli
varúðarsjónarmiða
Hér á landi höfum við byggt upp
fiskeldi á grunni mikilla varúðar-
sjónarmiða. Árið 2004 var sett reglu-
gerð sem bannaði í raun sjókvíaeldi
á laxi í nágrenni við helstu laxveiði-
ár okkar. Þetta fyrirkomulag hefur
sannað gildi sitt.
Til viðbótar við þetta hafa verið
innleiddar strangar kröfur um
búnað, sem sannað hafa gildi sitt í
Noregi, þar sem búnaðurinn hefur
verið í notkun um árabil. Sést það
meðal annars á því að slysaslepp-
ingar á laxi eru nú brotabrot af því
sem áður var.
Hér á landi er gert burðarþols-
mat á fjörðum og hafsvæðum, sem
felur í sér „mat á þoli fjarða eða
afmarkaðra hafsvæða til að taka á
móti auknu lífrænu álagi án þess að
það hafi óæskileg áhrif á lífríkið og
þannig að viðkomandi vatnshlot
uppfylli umhverfismarkmið“, eins
og segir í lögum um fiskeldi.
Lítil áhrif á náttúrulega stofna
Í fyrrasumar gerði Hafrannsókna-
stofnun áhættumat vegna mögu-
legrar erfðablöndunar á milli
eldislaxa og náttúrulegra laxa-
stofna. Meginniðurstaða þess mats
var að „líkanið gerir almennt ráð
fyrir litlum áhrifum á náttúrulega
stofna fyrir utan nokkrar ár“. Og í
skýrslu stofnunarinnar er einmitt
vakin athygli á því að vegna þess
að sjókvía eldi getur eingöngu farið
fram hér við land fjarri helstu lax-
veiðiám sé staðan að þessu leyti allt
önnur en í ýmsum öðrum löndum
þar sem eldissvæðin séu „oft í mik-
illi nálægð við helstu laxveiðiár“.
„Lítill hluti strokulaxa nær að
synda upp í ár til að hrygna“
Í sömu skýrslu segir einnig: „Það
verður þó að hafa í huga að aðeins
lítill hluti strokulaxa nær að synda
upp í ár til að hrygna. Langflestir
strokulaxar eiga í erfiðleikum með
að afla sér fæðu í villtri náttúru
eða forðast afræningja. Afkomu-
möguleikar þeirra ráðast verulega
af nálægð sleppistaðar við árósa og
einnig af aldri við strok. Almennt
má þó segja að langflestir stroku-
laxar hverfi í hafi og syndi aldrei
upp í ár til að hrygna.“
Vöktun við veiðiár
Til viðbótar við þetta hafa laxeldis-
fyrirtækin lagt til, að fram fari vökt-
un við laxveiðiár svo að koma megi í
veg fyrir að eldislax valdi tjóni. Slíkt
fyrirkomulag er þekkt til að mynda í
Noregi og hefur gefist vel. Fram kom
í máli Kevins Glover, prófessors
við Björgvinjarháskóla í Noregi, á
fundi Erfðanefndar landbúnaðarins
nýverið að um þetta er gott sam-
starf á milli laxeldisfyrirtækjanna
og laxveiði aðilanna. Því verður ekki
trúað að hið sama verði ekki uppi á
teningnum hér, enda fara hagsmun-
irnir þarna augljóslega saman.
Fiskeldi er komið til að vera
Það er ljóst að fiskeldi hér á landi
er komið til að vera. Um fjögur
þúsund íbúar munu hafa afkomu af
fiskeldi og afleiddum störfum þegar
það verður komið upp í þau 71
þúsund tonn sem áhættumat Haf-
rannsóknastofnunar gerir ráð fyrir,
eins og sést af skýrslu sem Byggða-
stofnun vann um byggðaleg áhrif
fiskeldis og gefin var út 23. ágúst sl.
Í sátt við náttúruna
Sannarlega þarf að standa vel að
verki og vinna í góðri sátt við náttúr-
una, þar með talið villta laxastofna.
Til þess stendur vilji laxeldismanna
sem sammæltust um það með veiði-
réttareigendum og fulltrúum sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneytis
og umhverfisráðuneytis, að „framtíð
fiskeldis skuli grundvallast á vísinda-
legum rannsóknum, eldistilraunum
og vöktun í ám“. Og enn fremur:
„mikilvægt sé að íslensku fiskeldi
séu sköpuð bestu möguleg skilyrði til
uppbyggingar og verði þannig sterk
og öflug atvinnugrein.“
„Fiskeldi verði sterk og öflug atvinnugrein“
Einar K.
Guðfinnsson
formaður Lands-
sambands fisk-
eldisstöðva Það er ljóst að fiskeldi hér
á landi er komið til að vera.
Um fjögur þúsund íbúar
munu hafa afkomu af fisk-
eldi og afleiddum störfum
þegar það verður komið upp
í þau 71 þúsund tonn sem
áhættumat Hafrannsókna-
stofnunar gerir ráð fyrir.
Hann er kominn til landsins og tilbúinn í ævintýrin með þér; nýr KAROQ – með snjallar lausnir og
tækninýjungar sem gera aksturinn öruggari og skemmtilegri. Komdu og sjáðu nýjan ŠKODA KAROQ
og endurnýjaðu tengslin við það sem drífur þig áfram í lífinu. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is www.skoda.is
KAROQ OPNAR ÞÉR
NÝJAR LEIÐIR Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KAROQ KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
EK
LU
a
ð
up
pf
yl
ltu
m
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 1 3 . m A R S 2 0 1 8
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
C
-4
3
6
8
1
F
2
C
-4
2
2
C
1
F
2
C
-4
0
F
0
1
F
2
C
-3
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K