Fréttablaðið - 13.03.2018, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Kolbrún Kristínardóttir barna-sjúkraþjálfari hefur lengi haft áhuga á lýðheilsu, útivist og
hreyfingu. Hún flutti til Noregs
árið 2007 og lauk mastersprófi frá
Háskólanum í Lillehammer. Þegar
að því kom að velja lokaverkefni
ákvað Kolbrún að skoða hvaða
gildi og viðhorf íslenskir og norskir
foreldrar hafa til frítíma barna,
samveru fjölskyldunnar, náttúru-
stunda og útiveru.
„Niðurstöðurnar sýndu fram á
að norskir foreldrar lögðu mikla
áherslu á útivist og samverustundir
úti í náttúrunni og lýstu jákvæðum
áhrifum útiveru fyrir andlega- og
líkamlega vellíðan barna sinna.
Áhersla íslensku foreldranna var
hins vegar meiri á heilsuuppeldi í
gegnum skipulagða íþróttaiðkun,“
segir Kolbrún.
Hvað vakti áhuga þinn á þessu
verkefni? „Eftir að ég flutti til
Noregs tók ég eftir því að norskar
fjölskyldur virðast verja meiri
tíma saman utandyra en íslenskar
fjölskyldur. Mig langaði að kanna
hvers vegna útivist er rík í norskri
menningu en þar er t.d. svokall-
aður søndagstur, eða gönguferðir
á sunnudegi, nauðsynlegur hluti
af lífi margra fjölskyldna. Ég ákvað
því að kanna hvort það væri mikill
munur á þessum frændþjóðum í
þessum efnum.“
Um eigindlega rannsókn er að
ræða þar sem gögnum var safnað
með hálfopnum viðtölum við for-
eldra í Hafnarfirði og Lillehammer.
„Ég talaði við fimm fjölskyldur í
hvoru landinu. Niðurstöður voru
túlkaðar út frá lýðheilsusjónar-
miðum, kenningum um foreldra
sem fyrirmyndir og kenningum
um menningar- og samfélagsleg
áhrif. Í raun speglast þær í hinum
ýmsu viðjum samfélagsins, þar
með töldum lögum, reglugerðum,
skólanámskrám og tungumáli.
Foreldar í báðum löndum töldu að
útileikur barna væri hverfandi og
að frjálsi radíusinn, ef svo má segja,
í leiknum hefði minnkað,“ segir
Kolbrún sem hefur haldið fyrir-
lestra um rannsóknina í íslenskum
leik- og grunnskólum sem hafa
vakið mikla athygli.
Foreldrar mikilvæg
fyrirmynd
Að mati Kolbrúnar er mikilvægt
að fjölskyldan fari út og njóti þess
saman að vera í útivist. „Að foreldr-
ar stundi virka samveru, t.d. útivist,
með börnunum sínum hefur tölu-
vert forspárgildi um hvort þau velji
sér virkan lífsstíl síðar á lífsleiðinni.
Útivist hefur ekki aðeins góð áhrif
á líkamlega heilsu heldur einnig þá
andlegu. Þegar komið er út undir
bert loft talar fólk frekar saman
og síminn fer í pásu. Við þurfum
að vera saman, njóta og upplifa.
Foreldrarnir eru mikilvægasta
fyrirmynd barnanna og þau læra
best það sem þau upplifa og eru
þátttakendur í,“ segir hún.
Kolbrún telur að áhugi Íslend-
inga á útivist hafi almennt aukist
mjög undanfarin ár en segir að það
sé spurning um hvort fjölskyldan
sé öll saman í útivist. „Það virðist
vera sem fullorðnir stundi útivist,
svo sem fjallgöngur, og taki þátt í
keppnum á borð við Landvætti en
börnin eru kannski of sjaldan með
í útivistinni,“ segir hún.
Kolbrún vann einnig við sjúkra-
þjálfun barna í Noregi og var
meðal annars með börn í ofþyngd í
þjálfun. Hún segir að besti árangur-
inn hafi náðst þegar fjölskyldan fór
saman í göngutúra eða stundaði
aðra útivist.
Hreyfingarleysi
stórt vandamál
Kolbrún nefnir að samkvæmt
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
sé hreyfingarleysi eitt af stærstu
vandamálum heimsins í dag. „Það
hefur sýnt sig að áhugi og hvatning
fyrir hreyfingu er meiri utandyra
og víðtækur heilsuávinningur felst
í því einu að vera úti í náttúrunni.
Við á Íslandi erum svo lánsöm að
hafa aðgang að fallegri náttúru
allan ársins hring sem við getum
nýtt okkur vel. Það er alltaf hægt
að finna gönguleiðir sem passa
öllum í fjölskyldunni eða fara í
léttar fjallgöngur. Best er að miða
við getu þess yngsta í hópnum.
Foreldrar gegna lykilhlutverki í
mótun heilsuhegðunar barna sinna
og mótunarárin hafa stór áhrif á
heilsu þeirra síðar í lífinu.“
Þegar Kolbrún er spurð um ráð
til að koma reglulegri útivist inn
í þéttskipaða dagskrá flestra fjöl-
skyldan segir hún gott að byrja á að
setja sér raunhæf markmið. „Fyrst
þarf að koma sér yfir þröskuldinn.
Ég mæli með að setja sér hvorki of
stór né of háleit markmið. Það gæti
t.d. verið sniðugt að byrja á að fara í
nestisferð skammt frá heimilinu en
það ætti öllum að finnast skemmti-
legt. Það gerist eitthvað við að fara
út. Það verður einhver önnur nánd.
Allir verða afslappaðri því náttúran
hefur róandi áhrif á fólk. Vissulega
getur verið erfitt að koma sér út um
dyrnar en um leið og farið er af stað
breytist stemningin.“
Tjaldútilegur
allt árið um kring
Útivist er stór hluti af lífi Kolbúnar
og hennar fjölskyldu. Hún er gift
og á tvö börn, 9 og 14 ára, en þau
fluttu heim aftur fyrir einu og hálfu
ári. „Við förum saman í gönguferðir
og fjallgöngur, förum á gönguskíði
jafnt sem svigskíði, allt eftir tíma og
hvað hentar hverju sinni. Stundum
förum við bara rétt út fyrir bæjar-
mörkin og eldum okkur kvöldmat
úti á prímus eða bökum okkur
pönnukökur, enda bragðast allur
matur betur utandyra. Við förum
í tjaldútilegur allt árið um kring,
nú síðast fyrir þremur vikum. Við
vöknuðum í snjóhúsi, svo mikið
hafði snjóað um nóttina. Þetta er sá
lífsstíll sem börnin mín þekkja.“
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Stendur undir nafni
Við á Íslandi erum
svo lánsöm að hafa
aðgang að fallegri náttúru
allan ársins hring sem við
getum nýtt okkur vel.
Kolbrún segir oft erfiðast að fara yfir þröskuldinn en eftir það sé leikurinn
auðveldur. Hún mælir með að setja sér raunhæf markmið varðandi útivist.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni er hreyfingarleysi eitt af stærstu
heilsufarsvandmálum heimsins í dag, að sögn Kolbrúnar.
“Við förum saman í gönguferður og fjallgöngur, förum á gönguskíði jafnt sem svigskíði, allt eftir tíma og hvað hentar hverju sinni. Stundum förum við bara rétt
út fyrir bæjarmökrin og eldum kvöldmat úti á prímus,” segir Kolbrún sem hefur alltaf stundað mikla útivist. Hún segir börnin sín vön þessum lífsstíl.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . M A R S 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-5
C
1
8
1
F
2
C
-5
A
D
C
1
F
2
C
-5
9
A
0
1
F
2
C
-5
8
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K