Fréttablaðið - 13.03.2018, Side 35
13. mars 2018
Tónlist
Hvað? KexJazz // Leila Olivesi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu
Á næsta Jazzkvöldi Kex hostels,
þriðjudaginn 13. mars, kemur fram
kvartett franska píanóleikarans
Leila Olivesi. Auk hennar skipa
kvartettinn þeir Sigurður Flosa-
son á saxófón, Þorgrímur Jónsson
á kontrabassa og Donald Kon-
tomanou á trommur. Leila býr og
starfar í París þar sem hún hefur
unnið til ýmissa verðlauna fyrir
hljóðfæraleik sinn og tónsmíðar.
Tónlistin á Kexi hosteli hefst kl.
20.30 og er aðgangur ókeypis.
Hvað? Sigmar Þór Matthíasson –
Áróra
Hvenær? 21.00
Hvar? Harpa
Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthí-
asson stefnir á útgáfu sinnar fyrstu
sólóplötu síðar á þessu ári en upp-
tökur fara fram í Sundlauginni um
miðjan marsmánuð. Sigmar ætlar
að prufukeyra efnið með hljómsveit
sinni á næstu tónleikum Múlans í
Hörpu. Tónlistinni, sem öll er frum-
samin, má lýsa sem kraftmikilli
blöndu af djassi, poppi og rokki
sem ber keim af nokkurri ævintýra-
mennsku en þó stöðugleika á köfl-
um. Hljómsveitina skipa auk Sig-
mars þeir Jóel Pálsson, Helgi Rúnar
Heiðarsson, Snorri Sigurðarson,
Kjartan Valdemarsson og Magnús
Trygvason Eliassen.
Viðburðir
Hvað? Inniræktun matjurta – Út-
gáfuhóf
Hvenær? 17.00
Hvar? Garðyrkjufélag Íslands, Síðu-
múla
Bókin Inniræktun matjurta er gefin
út af Forlaginu og þýdd af Helgu
Jónsdóttur. Bókin er margþætt með
leiðbeiningum um ræktun ýmissa
jurta eins og grænmetis, krydds og
ávaxta, meðal annars uppsetningu
þeirra á heimilum og hvernig má
nota þær í matargerð. Jóhanna B.
Magnúsdóttir mun flytja erindi um
sýn sína á notkun bókarinnar fyrir
heimili og leikskóla og um ræktun
innanhúss almennt. Jóhanna hefur
um árabil lagt leikskólum lið við
að nýta matjurtagarða sína. Með
hennar hjálp sá börnin og fylgjast
með þegar fræ verður að plöntu.
Hvað? Rafrettur – kostir og gallar
Hvenær? 20.00
Hvar? Icelandair Hotel Reykjavík
Natura, Nauthólsvegi
Fræðslunefnd Náttúrulækninga-
félags Íslands efnir til málþings á
Icelandair Hotel Reykjavík Natura,
þingsal 2 í dag. Ávarp flytur: Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Fundarstjóri: Dr. Bryndís Björk
Ásgeirsdóttir, dósent og sviðsstjóri
sálfræðisviðs HR.
Sýningar
Hvað? Computer spirit at Gallery
Port & Ekkisens
Hvenær? 16.00
Hvar? Ekkisens, Bergstaðastræti og
Gallery Port, Laugavegi
Computer Spirit býður ykkur
inn í veröld óséðra tengsla milli
tölvunnar og mannsins, að hliði
sýndarveruleikans þar sem dreginn
er fram rafmagnaður andi andans,
íklæddur holdi af innri hugbúnaði.
Hvað? Önnur sæti – verðlaunatillög-
ur arkitekta að þekktum byggingum
Hvenær? 17.00
Hvar? Arion banki, Borgartúni
Á sýningunni er að finna verðlauna-
tillögur arkitekta að þekktum bygg-
ingum á Íslandi, hugmyndir sem
hlutu viðurkenningu í arkitekta-
samkeppnum en ekki var byggt
eftir. Sýningunni er ætlað að varpa
ljósi á arkitektúr, ólíka valmögu-
leika og öðruvísi framtíðarsýn,
hvernig hlutirnir hefðu mögulega
getað orðið.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
Önnur sæti
Sýning á verðlaunatillögum arkitekta
Við bjóðum þér á opnun sýningarinnar Önnur sæti í höfuðstöðvum Arion
banka, Borgartúni 19 í dag kl. 17.
Á sýningunni er að finna verðlaunatillögur arkitekta að þekktum bygging-
um á Íslandi, hugmyndir sem hlutu viðurkenningu í arkitektasamkeppnum
en ekki var byggt eir.
Sýningin er unnin í samstarfi við Önnu Dröfn Ágústsdóir sagnfræðing og
Guðna Valberg arkitekt, höfunda bókarinnar Reykjavík sem ekki varð sem
kom út árið 2014 og vakti mikla athygli. Auk þess hefur grafíski
hönnuðurinn Viktoria Buzukina hjá Hvíta húsinu teiknað heillandi mynd-
heim úr byggingunum, reistum og óreistum, sem verður hluti af sýningunni.
Arion banki er stoltur samstarfsaðili Hönnunarmiðstöðvar og er sýningin
hluti af dagskrá HönnunarMars 2018.
Allir hjartanlega velkomnir
Hilton Nordica
14. mars kl. 09:00
NÝIR TÍMAR
VORFUNDUR LANDSNETS
Þegar horft er fram á veginn má sjá að straumar nýrra tíma liggja í raforkumálum. Erum við tilbúin að takast á við áskoranir
framtíðarinnar? Verið velkomin á vorfund Landsnets á Hilton Nordica, miðvikudaginn 14. mars kl. 09:00 – 10:30.
Skráning fer fram á landsnet.is.
Boðið verður upp á léttan morgunverð
frá kl. 08:30. Fundurinn verður sendur
út í beinni útsendingu á www.landsnet.is.
Þar verður einnig hægt að senda fyrirspurnir
og athugasemdir með myllumerkinu #nyirtimar
Ávarp ráðherra
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir
Ferðamála-, iðnaðar- &
nýsköpunarráðherra
Nýir tímar
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Forstjóri
Landsnets
Rafmagn án rifrildis
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Stjórnarformaður
Landsnets
Ávarp ráðherra
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Umhverfis- og
auðlindaráðherra
Energy Transition
Where are we heading?
Alicia Carrusco
Sérfræðingur í orkustefnu
og markaðsmálum.
Fyrrum forstöðumaður
hjá Tesla,
EMEA og Siemens
Fundarstjóri
Steinunn
Þorsteinsdóttir
Upplýsingafulltrúi
Landsnets
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J U D A g U R 1 3 . m A R S 2 0 1 8
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-6
5
F
8
1
F
2
C
-6
4
B
C
1
F
2
C
-6
3
8
0
1
F
2
C
-6
2
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K