Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 4

Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 4
Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 www.jeep.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 JEEP GRAND CHEROKEE MEST VERÐLAUNAÐI JEPPI Í HEIMI ® Staðalbúnaður m.a: Led/BI-Xenon framljós, 8,4” snertiskjár með bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, hiti í sætum, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifin framsæti, stillanleg aftursæti, tölvustýrð sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, regnskynjari, aðgerðastýri, raddstýrt útvarp o.mfl. DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING HÁTT OG LÁGT DRIF VERÐ FRÁ: 8.690.000 KR. Sý nd ur b íll á m yn d G ra nd C he ro ke e Su m m it. B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r.VERÐLÆKKUN Efnahagsmál Miðstjórn ASÍ ákvað í gær að Alþýðusambandið myndi ekki taka sæti í þjóðhagsráði, þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að útvíkka erindi ráðsins og ræða félagslegan stöðugleika ásamt efna- hagslegum stöðugleika. Það er mat miðstjórnar ASÍ að fram undan séu átök um grund- vallarmál eins og fjármögnun vel- ferðarkerfisins, skattamál, launa- stefnu og jöfnuð. Umræða um þessi mál fer ekki fram í þjóðhagsráði, að mati miðstjórnar, heldur í beinum tengslum við gerð nýrra kjarasamn- inga í haust. Ákvörðun um stofnun þjóðhags- ráðs var tekin árið 2015, m.a. að frumkvæði ASÍ. Tæp tvö ár eru síðan þjóðhagsráð kom fyrst saman en það hefur hingað til starfað án samtaka launafólks. – jhh ASÍ hundsar þjóðhagsráð stjórnsýsla Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, hefur undirritað nýja reglu- gerð um skráningu afla á opinber- um sjóstangveiðimótum en slík mót eru haldin víða um land á hverju sumri á vegum sjóstangveiðifélaga. Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að með reglugerðinni sé leitast við að einfalda framkvæmd afla- skráningar en sjóstangveiðifélög- unum eru með lögum um stjórn fiskveiða tryggðar fullnægjandi aflaheimildir vegna mótanna og skal tekjum af sölu aflans ráðstafað til að standa á móti kostnaði við mótshaldið. . - jhh Nýjar reglur um sjóstangveiði Gylfi Arnbjörnsson. mEnntun Verzlunarskóli Íslands ætlar í apríl að leggja próf fyrir nem- endur sem eru að ljúka námi eftir þriggja ára nám og þá sem eru að ljúka námi eftir fjögurra ára nám. Prófað verður í íslensku og stærð- fræði. „Við tókum ákvörðun og lögðum mikla vinnu í að stytta námið um eitt ár. Nú er komið að því að fyrsti árgangurinn er kominn í gegnum allt og við útskrifum núna næstum helming allra nemenda skólans, 540 nemendur,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskólans. Ingi segir að skólinn hefði helst viljað fá utanaðkomandi aðila til að vinna verkefnið. „Það er alltaf hætta á að hverjum þyki sinn fugl fagur. Ég hafði áhyggjur af því að við sæjum ekki veikleikana sjálf og svo fram- vegis,“ segir Ingi. Það hafi aftur á móti ekkert komið frá ráðuneytinu varðandi þetta. „Menntamálastofn- un ætlaði að gera það en svo hættu þeir við. Það sem þeir gera hins vegar er að þeir láta okkur í té gömul próf. Við fáum aðgang að prófabanka hjá þeim,“ segir Ingi. Kennarar skólans muni þá velja úr þessum banka og búa til próf fyrir nemendur í íslensku og stærðfræði. „Þetta á að leggja fyrir báða árgangana og reyna að meta hvort þau standi jafnfætis í þessu,“ segir Ingi. Til viðbótar mun skólinn vera með rýnihópa þar sem talað er við nemendur sem eru að ljúka þriggja ára náminu og hugsanlega líka ein- hverja sem eru að ljúka fjögurra ára náminu. „Svo verðum við með rýni- hópa þar sem talað verður við kenn- ara,“ segir Ingi og bætir við að sér- fræðingar hjálpi til við verkið. – jhh Meta árangur af þriggja ára kerfinu með prófum Húsnæði Sundhallarinnar stendur við Framnesveg 9 í Keflavík. Lóðirnar eru í eigu feðga sem ætla í framkvæmdir. Ingi Ólafsson. kirkjumál Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, hefur framlengt leyfi sr. Ólafs Jóhannssonar, sóknar- prests í Grensáskirkju, ótímabund- ið. Hefur hann verið í leyfi nánast sleitulaust frá því í maí á síðasta ári. Háttsemi sr. Ólafs í garð tveggja kvenna var talin ósiðleg af úr- skurðar nefnd þjóðkirkjunnar og biskupi gert að ljúka einu málinu. Biskupsritari segir Agnesi ætla að vinna málið vandlega. – sa Séra Ólafur áfram í leyfi skipulagsmál Bæjarstjórn Reykja- nesbæjar staðfesti á fundi sínum á þriðjudag ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs sveitarfélagsins um deiliskipulag fyrir Framnesveg 9 til 11. Sundhöll Keflavíkur stendur við Framnesveg 9. Húsið er hannað af Guðjóni Samúelssyni og hefur Ragn- heiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra, sett á stofn samtök um varðveislu þess. Ákvörðunin felur í sér að Sundhöllin verður rifin. Í fundargerð umhverfis- og skipu- lagsráðs frá 13. mars segir: „Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag 2015-2030 en á þessu svæði er áætluð íbúðabyggð með 3-5 hæðum. Sundhöllin er ekki friðuð og samræmist ekki notkun svæðisins samkvæmt Aðalskipulagi Reykjanesbæjar allt frá árinu 2006.“ Fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð- unum tveimur hlaupa á nokkrum milljörðum króna en Sundhöllin hafði verið til sölu um nokkurra ára skeið þegar Landsbankinn seldi hana til eignarhaldsfélags feðganna fyrir 36,5 milljónir í apríl í fyrra. Ekki var til deiliskipulag fyrir lóð- ina. Kaupandinn mun hafa keypt í þeirri von að nýtt deiliskipulag yrði gert, en aðalskipulagið gerir ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu. Fyrir áttu feðgarnir einnig lóðina að Framnesvegi 11 og óskað var heimildar hjá umhverfis- og skipu- lagsráði til deiliskipulagsvinnu fyrir þá lóð í nóvember 2014. Una María Unnarsdóttir, bróður- dóttir eiganda lóðanna, sem á sæti í umhverfis- og skipulagsráði sat hjá við afgreiðslu málsins. Í nóvember 2017 ákvað umhverf- is- og skipulagsráð að auglýsa deili- skipulagstillöguna og aftur sat Una María hjá við afgreiðslu málsins. Í hvorugu tilvikinu bera fundargerðir með sér að skiptar skoðanir séu um afgreiðslu málsins. Við fyrrgreinda afgreiðslu deili- skipulags fyrir lóðirnar í síðustu viku brá hins vegar svo við að Una María sat ekki hjá líkt og áður heldur myndaði meirihluta fyrir tillögunni með tveimur öðrum fulltrúum ráðsins. Tveir fulltrúar greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni og vísuðu í bókun til mögulegrar skaðabótaskyldu sem sveitarfélagið gæti skapað sér færi svo að Sundhöllin yrði skyndifriðuð af Minjastofnun. Minjastofnun hefur þegar skilað áliti um málið þess efnis að stofn- unin muni ekki beita sér fyrir frið- lýsingu hússins og sé það í höndum sveitarfélagsins að ákvarða framtíð þess. Una María vísaði sem fyrr segir til lögfræðiálits um hæfi sitt og segir engin tengsl milli sín og eigenda lóðanna þrátt fyrir skyldleikann. „Ég átti samtöl líka við minn flokk, Beina leið, og í þeim samtölum kom fram að það hefði verið alveg sama hver hefði setið fundina fyrir flokk- inn, niðurstaðan hefði alltaf verið sú sama,“ segir Una. adalheidur@frettabladid.is Hafa tekið ákvörðun um að rífa Sundhöllina í Keflavík Ákvörðun hefur verið tekin um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina þar sem Sundhöllin í Keflavík stendur. Fyrr- verandi ráðherra hefur mótmælt áformum um að rífa húsið. Atkvæði frænku eiganda lóðarinnar réð úr- slitum. Minjastofnun hefur ákveðið að beita sér ekki fyrir friðlýsingu hússins. Bærinn ákveði framtíð þess. Sundhöllin er ekki friðuð og samræmist ekki notkun svæðisins samkvæmt Aðalskipulagi. Úr fundargerð umhverfis- og skipu- lagsráðs frá 18. mars 2 2 . m a r s 2 0 1 8 f i m m t u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 4 -D F A 8 1 F 4 4 -D E 6 C 1 F 4 4 -D D 3 0 1 F 4 4 -D B F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.