Fréttablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 10
S TA Ð S E T N I N G :
H Ó T E L R E Y K J AV Í K N AT U R A
T Í M A S E T N I N G
2 3 . M A R S K L . 12
S K R Á N I N G F E R F R A M Á
I S AV I A . I S/ V E I T I N G A R E K S T U R
K Y N N I N G A R F U N D U R V E G N A
Ú T B O Ð S Á R Ý M I U N D I R
V E I T I N G A R E K S T U R Í S U Ð U R -
B Y G G I N G U F L U G S T Ö Ð V A R
L E I F S E I R Í K S S O N A R
Isavia leitar að aðila með góða reynslu af veitingarekstri og hefur
yfir að ráða vörumerki sem býður upp á afgreiðslu á mat úr fersku
hráefni á innan við tveimur mínútum. Gerð er krafa um að viðkom-
andi bjóði upp á pítsur í sneiðum, fersk salöt o.fl.
Nánari upplýsingar verða kynntar á fundinum.
V I Ð S K I P T A T Æ K I F Æ R I Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I :
G E T U R Þ Ú E L D A Ð F Y R I R
M I L L J Ó N I R F A R Þ E G A ?
Bandaríkin Tveir hafa fallið og sex
særst í röð sprengjuárása í Austin,
höfuðborg Texas-ríkis Bandaríkj-
anna. Mark Anthony Conditt, sem
grunaður er um aðild að málinu, féll í
umfangsmikilli lögregluaðgerð í gær.
Árásirnar hófust 2. mars síðastlið-
inn þegar sprengja sprakk á heimili
29 ára manns í borginni. Maðurinn
lét lífið í sprengingunni. Annað
fórnar lamb dó svo ellefu dögum síðar
en nýjasta árásin var gerð á þriðju-
dag. Særðist þá einn lítils háttar.
Lögreglan í Austin komst á
snoðir um meintan árásarmann á
þriðjudaginn þegar farið var yfir
myndbandsupptökur úr útibúi
póstfyrirtækisins FedEx í úthverfi í
suðurhluta borgarinnar. Þar hafði
sprengja þriðjudags sprungið. Um
póstsprengju var að ræða sem átti
að senda inn í borgina.
Eftir að hafa skoðað vafrasögu
hins grunaða, sem innihélt leitir að
fyrirtækjum sem sæju um pakka-
sendingar, náði lögregla að finna
bifreið hans. Í gærmorgun tóku
lögregla og alríkislögregla sér svo
stöðu í kringum bílastæði við hótel
í bænum Round Rock.
Hinn grunaði keyrði á brott á
meðan lögregla beið eftir liðsstyrk
Hinn grunaði féll fyrir
eigin hendi í Texas-ríki
Mark Anthony Conditt, grunaður um að standa að sex sprengjuárásum í Texas,
féll fyrir eigin hendi þegar lögregla veitti honum eftirför í gær. Tveir fórust í árás-
unum sex. Bandaríkjaforseti segir lögreglu hafa unnið mikið þrekvirki.
afganistan Þótt hryðjuverkasam-
tökin sem kenna sig við íslamskt ríki
hafi misst nærri allt það landsvæði
sem þau sölsuðu undir sig á undan-
förnum árum eru þau enn fær um
að valda gífurlegu tjóni. ISIS-liðar
lýstu yfir ábyrgð á tveimur árásum
sem gerðar voru í gær. Önnur þeirra
var gerð í norðurhluta Íraks og hin í
afgönsku höfuðborginni Kabúl.
ISIS-liðinn Talha al-Bish-
awri sprengdi sig í loft upp í Kabúl
þar sem sjíamúslimar voru að fagna
nowruz, íranska nýárinu. Íslamska
ríkið, sem og önnur hryðjuverka-
samtök, telja að íranska nýárið
stangist á við íslam. Í ábyrgðar-
yfirlýsingu samtakanna segir að
um hundrað hafi farist en afganskir
miðlar segja að 26 hafi fallið hið
minnsta.
Ashraf Ghani, forseti Afganistans,
fordæmdi árásina harðlega í gær.
Sagði hana glæp gegn mannkyninu.
„Forsetinn hefur skipað viðeigandi
aðilum að gera allt sem hægt er til
að græða sár þeirra særðu og vottar
aðstandendum fórnarlamba samúð
sína,“ sagði í yfirlýsingu.
Samtökin réðust einnig á
sjíamúsl ima í Írak, nánar tiltekið á
veginum á milli Bagdad og Kirkuk
í norðurhluta landsins. ISIS-miðill-
inn Amaq greindi frá því að skotið
hafi verið á fórnarlömbin með sjálf-
virkum rifflum á meðan þau voru
um borð í rútu sinni og dóu 35 eða
særðust í árásinni. – þea
ISIS felldi tugi í tveimur
árásum í Írak og Kabúl
Baráttunni gegn ISIS er ekki lokið þótt samtökin hafi misst höfuðvígi „Kalífa
dæmisins“. Myndin er úr safni. NordIcphotoS/AFp
Lögregla safnar gögnum í útibúi FedEx sem varð fyrir árás. NordIcphotoS/AFp
og ákváðu lögreglumennirnir að
elta hinn grunaða. Þegar bíll hans
stoppaði loks gengu vopnaðir lög-
reglumenn að bílnum. Hinn grunaði
sprengdi hins vegar sprengju sína
og svipti sig þannig lífi með þeim
afleiðingum að einn lögreglumaður
særðist.
Lögregla beindi þeim tilmælum
til borgarbúa að vera vel á varð-
bergi og gera yfirvöldum viðvart ef
þeir fyndu grunsamlega pakka. „Við
vitum ekki hvar hinn grunaði hefur
verið undanfarinn sólarhring. Það
er mögulegt að fleiri sprengjur séu í
dreifingu,“ sagði Brian Manley lög-
reglustjóri.
„GRUNAÐI ÁRÁSARMAÐURINN
Í AUSTIN ER DÁINN. Lögregla vann
frábært starf !“ tísti Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna, um málið.
thorgnyr@frettabladid.is
2 2 . m a r s 2 0 1 8 f i m m t U d a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
5
-0
2
3
8
1
F
4
5
-0
0
F
C
1
F
4
4
-F
F
C
0
1
F
4
4
-F
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K