Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 22
Á þessum degi fyrir 70 árum kom út skáldsagan Atómstöðin eftir Halldór Laxness. Hún seldist upp hjá forlaginu samdægurs. Bókin, sem er ein af 14 skáldsögum sem Halldór gaf út, segir frá bóndadótturinni Uglu að norðan sem kemur til Reykjavíkur til að læra á orgel. Hún ræður sig í vist hjá þing- manninum og heildsalanum Búa Árland og lærir hjá Organistanum. Atómstöðin var mjög umdeild við útgáfu enda snerti hún á mörgum hita- málum samfélagsins. Halldór sjálfur lýsti Atómstöðinni sem innleggi „inn í pólitískt hitamál“. Þann 7. ágúst árið 1949 var skrifað um bókina í Alþýðublaðið. Þar sagði meðal annars: „Atómstöðin er misheppnaðasta skáldsaga Hall- dórs Kiljans Laxness. Eina persóna bókarinnar, sem höfundurinn leggur sig fram við að lýsa og metur einhvers er burgeisinn og „landsölumaðurinn“ Búi Árland. Kristinn E. Andrésson og „bókmenntafræðingarnir“ Bjarni Benediktsson frá Hofteigi og Magnús Kjartansson myndu áreiðanlega for- dæma jafn borgaralega skáldsögu og Atómstöðina, ef höfundurinn væri ekki kjósandi kommúnistaflokksins og einlægur aðdáandi rússnesku kúgunarinnar.“ Árið 1984 var gefin út kvikmynd eftir Atómstöðinni. Leikstjóri var Þorsteinn Jónsson og með aðalhlutverk fóru þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Kvikmyndin Atómstöðin var sýnd á fjölmörgum kvikmyndahá- tíðum erlendis, meðal annars Cannes Internation Film Festival. Þ etta g e r ð i st 2 2 . m a r s , 1 9 4 8 Atómstöðin eftir Halldór Laxness kom út og seldist upp 1867 Borgarnes við Brákarpoll verður löggiltur verslunar- staður. Borgarnes hlýtur kaupstaðarréttindi 24. október 1987. 1924 Ríkisstjórn Jóns Magnússonar, sú þriðja undir forsæti hans, tekur við völdum. Hún situr þar til í júlí 1926. 1972 Í ljós kemur að Geirfugladrangur, vestur af Eldey, hafði hrunið eða sokkið í sæ. Drangurinn, sem er grunnlínu- punktur landhelginnar, var áður um tíu metra hár en kemur nú aðeins upp úr sjó á fjöru. 1982 Geimskutlan Columbia heldur í sína þriðju geimferð. 1986 Kvikmyndin Eins og skepnan deyr frumsýnd í Reykja- vík. 1993 Intel setur fyrsta Pentium-örgjörvann á markað. 1995 Valeríj Poljakov snýr aftur til jarðar eftir að hafa dvalið 438 daga í geimnum. 1996 Fyrsti tölvuleikurinn í leikjaröðinni Resident Evil kemur út í Japan. Merkisatburðir skemmtikrafturinn og uppi-standarinn rökkvi Vésteinsson fagnar 40 ára afmæli í dag. Hann er ekki mikið afmælisbarn að eigin sögn og ætlar ekki að halda upp á stórafmælið. „Nei, ég ákvað að gera það ekki, ég ætla frekar að reyna að gleyma því að ég sé orðinn svona gamall,“ segir rökkvi og hlær þegar hann er spurður út í hvort hann ætli ekki að halda afmælisveislu í tilefni dagsins. „Ég meina, ef bíll myndi keyra yfir mig í dag þá myndi koma frétt um að maður á fimmtugsaldri hefði lát- ist. Hugsaðu þér.“ rökkvi ætlar þó að halda uppistand undir yfirskriftinni Fertugur gamall fauskur reynir að vera fyndinn á laugar- daginn sem hann segir vera hálfgert afmælisuppistand. Í uppistandinu mun hann koma inn á hræðslu sína við aldur- inn. „Ég verð með uppistand á akranesi á laugardaginn í Dularfullu búðinni, það má segja að ég sé pínu að halda upp á hvað ég er orðinn gamall með því. Ég ætla meðal annars að segja frá því þegar manni fór að finnast maður gamall fyrst. Það var þegar maður fór að horfa á eftir einhverjum sætum gellum en þær voru allar að ýta á undan sér barnavögnum. Og það eru 20 ár síðan, og þetta verður alltaf verra og verra,“ segir rökkvi og hlær. „svo eru núna að koma til mín ein- hverjir fullorðnir menn og segjast hafa verið aðdáendur einhvers sem ég gerði þegar þeir voru krakkar. Það er alltaf verið að minna mann á aldurinn.“ spurður út í hvort hann hafi alltaf verið svona hræddur við aldurinn segir rökkvi: „Ég held að maður reyni bara að hugsa sem minnst út í það. en þegar maður er fertugur grínisti þá fer maður að hugsa með sér hvort maður ætti ekki að fara að hegða sér eins og maður.“ rökkvi er minna spenntur fyrir þess- um tímamótum sem hann stendur á og meira spenntur fyrir helginni. „akranes er í miklu uppáhaldi hjá mér, skaga- menn hlæja nefnilega bara að öllu, líka hlutum sem flestir myndu bara hneyksl- ast á,“ segir hann kíminn. gudnyhronn@frettabladid.is Alltaf verið að minna hann á hækkandi aldurinn Grínistinn Rökkvi Vésteinsson er fertugur í dag. Hann ætlar ekki að halda upp á afmælið í dag enda er hann ekki mikið afmælisbarn. Hann ætlar þó að halda uppistand um helg- ina í staðinn þar sem hann mun meðal annars fjalla um tímamótin sem hann stendur á. Grínistinn Rökkvi Vésteinsson er fertugur í dag en er ekki beint hoppandi kátur með þennan merkilega áfanga. Ég ætla frekar að reyna að gleyma því að ég sé orðinn svona gamall. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Betu Einarsdóttur Langholtsvegi 39. Sérstakar þakkir til starfsfólks 5. hæðar á Skjóli fyrir góða umönnun og hlýju. Fjalarr Sigurjónsson Anna Fjalarsdóttir Gísli Skúlason Máni Fjalarsson Anna Einarsdóttir barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir og hlýhugur til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Önnu Hjörleifsdóttur Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Grund fyrir alveg sérstaklega faglega og kærleiksríka umönnun. Sigdís Sigmundsdóttir Hjördís Sigmundsdóttir Kristinn Waagfjörð Benedikt Sigmundsson Erna Þórunn Árnadóttir Lárus Sigmundsson Þóra Arnheiður Sigmundsd. Jóhannes Oddsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Hermannsson fyrrverandi tollstjóri, Hlíðarhúsum 3-5, áður Álftamýri 39, lést þriðjudaginn 13. mars. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 27. mars kl. 13.00. Ragna Þorleifsdóttir Þóra Björnsdóttir Jón H.B. Snorrason Gústaf Adolf Björnsson Guðrún Gunnarsdóttir Hermann Björnsson Eiríka Ásgrímsdóttir Jónas Björnsson María Markúsdóttir Hlín Brynjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, Skúli Sveinsson frá Hvannstóði, er lést 4. mars að heimili sínu, Borg, Borgarfirði eystra, verður jarðsunginn frá Bakkagerðiskirkju laugardaginn 24. mars kl. 14.00. Systkinin frá Hvannstóði. 2 2 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r22 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð I ð tímamót 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 4 -F D 4 8 1 F 4 4 -F C 0 C 1 F 4 4 -F A D 0 1 F 4 4 -F 9 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.