Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 30

Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 30
Úr sýningunni LoveStar eftir Andra Snæ Magnason. Þarna er Edda í hlutverki sínu. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 Edda Sól Jakobsdóttir er frá Grindavík en ákvað að ganga menntaveginn á Akureyri og er mjög ánægð með þá ákvörðun. Leikfélagið vakti mikla athygli í fyrra fyrir uppfærslu sína á söngleiknum Anný en Edda Sól lék einnig í því verki. LoveStar er söngleikjagerð vísindaskáld- sögu eftir Andra Snæ sem Einar Aðalsteinsson leikstýrir. Edda er á lokaári í Menntaskólanum á Akureyri og útskrifast í vor. „Stjórn leikfélagsins ákvað að setja þetta verk upp í samráði við leikstjórann. Við breyttum handritinu töluvert og gerðum verkið að söngleik. Andri Snær var mjög opinn fyrir því að við gerðum það sem við vildum með verkið, breyttum til dæmis karlahlutverkum í kvenhlutverk og öfugt. Við frumsýndum 9. mars við mjög góðar undirtektir gesta í Hofi. Þetta er búið að vera frábært ferli og æðislegt tækifæri fyrir okkur í menntaskólanum að koma fram í Hofi sem er meiriháttar salur. Auk þess er leikritið skemmtilegt og við leikendur höfum skemmt okkur vel,“ segir Edda Sól. Andri Snær kom á frumsýningu verksins og Edda segir að hann hafi verið mjög sáttur. „Það var æðislegt að hitta Andra og rabba við hann. Það var líka gaman hvað hann var ánægður með sýninguna,“ segir Edda. Um fimmtán manns koma fram í sýningunni, leikarar, dansarar og kór. „Það er mikill áhugi á leik- listarfélaginu í skólanum. Margir nemendur koma í prufur. Ég er búin að vera í leikfélaginu öll árin mín hér og þar sem þetta er síðasta árið mitt er ekki leiðinlegt að enda á svona flottri sýningu,“ segir Edda sem stefnir á fjölmiðlafræði í Háskólanum á Akureyri næsta ár. „Þrátt fyrir leiklistaráhugann langar mig meira í fjölmiðlafræði,“ segir hún. „Ég hef líka mikinn áhuga á framkomu og hef lært margt um hana í leiklistinni. Leiklistin kemur alltaf að góðum notum og ég vonast til að halda áfram í áhugamanna- leikhúsi.“ Nemendur útskriftarbekkjar fóru í útskriftarferð til Króatíu á síðasta Frábær tækifæri hjá MA á Akureyri Leikfélag Menntaskólans á Akureyri verður með síðustu sýningu á LoveStar eftir Andra Snæ Magnason í Hofi í kvöld. Edda Sól Jakobsdóttir leikur eitt aðalhlutverkið. ári. „Hefð er fyrir því að fara í ferða- lag á þriðja ári en það mun væntan- lega breytast þegar menntaskólinn styttist í þrjú ár. Þetta eru búin að vera fjögur góð ár á Akureyri og margt að gerast. Ég hef eignast fullt af vinum og líður vel hérna.“ Edda Sól er Grindvíkingur en ákvað að fara til Akureyrar í menntaskóla. „Heimavistin gerði mér kleift að vera hér í námi. Ég sé alls ekki eftir að hafa valið þennan skóla. Ég hef fengið fullt af góðum tækifærum í leiklistinni, ég er rit- stjóri skólablaðsins og hef verið í skemmtinefnd. Það hefur því verið nóg að gera og mjög skemmtilegur tími. Mér finnst góð tilbreyting að prófa að búa annars staðar á land- inu. Ég sé líka betur hvað foreldrar mínir gera mikið fyrir mig.“ AKUREYRI THERMAL POOL Enjoy the Water World Every Icelander Loves SUNDLAUG AKUREYRAR Va t n a v e r ö l d f j ö l s k y l d u n n a r www.visitakureyri.isSími: 461 4455 Opið á skírdag, föstudaginn langa, laugardag og páskadag 9.00-19.00. Annar í páskum opið 9.00-18.30. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R NoRÐuRLANd 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 4 -E 4 9 8 1 F 4 4 -E 3 5 C 1 F 4 4 -E 2 2 0 1 F 4 4 -E 0 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.