Fréttablaðið - 22.03.2018, Side 34
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . m A R s 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R NoRÐuRLANd
Eimskips gámastökkið er stærsti viðburður hátíðarinnar. mYNd/ERLENduR ÞÓR mAGNÚssoN
Það er fjör í sjallanum þegar AK Extreme fer fram. mYNd/HREGGVIÐuR ÁRsÆLssoN
Eimskips gámastökkið er stærsti viðburðurinn. mYNd/ERLENduRÞÓRmAGNÚssoN
AK Extreme er snjóbretta- og tónlistarhátíð sem fer fram 5.-.8 apríl næstkomandi og
hefur verið haldin næstum árlega
síðan 2002, með örfáum hléum,“
segir Hreggviður Ársælsson, einn af
aðstandendum AK Extreme. „Þetta
byrjaði sem veisla, en hefur aldeilis
undið upp á sig og notið aukinna
vinsælda, bæði sem skemmtun á
svæðinu og afþreying fyrir fólk fyrir
norðan almennt.“
Alls kyns vetraríþróttavið-
burðir
„Hátíðin byrjar á fimmtudagskvöld-
inu með brunkeppni í boði Origo
sem endar svo í grillveislu í Hlíðar-
fjalli,“ segir Hreggviður. „Það mega
allir taka þátt í brunkeppninni og
renna sér á skíðum, snjóþotu, bretti
eða hverju sem er sem kemst niður
brekkuna. Svo höldum við grill-
veislu með tónlist, gleði og góðri
stemningu.
Á föstudagskvöld er svo mót í
Gilinu á Akureyri, sem heitir Burn
jib keppni,“ segir Hreggviður. „Það
er keppni sem er svolítið skyld
hjólabrettakeppni. Við setjum
upp handrið til að renna sér á og
það er stokkið yfir bíla og annað
slíkt, þannig að þetta er svona
göturennsli, sem er orðið mjög vin-
sælt um allan heim. Allir sem hafa
reynslu af að taka þátt í jib mótum
eru velkomnir, án þess að skrá sig
eða neitt, en eftir um klukkutíma
rennsli velur dómnefnd, sem fylgist
vel með því sem fer fram á svæðinu,
nokkra aðila til að keppa til úrslita.
Á laugardagskvöld er svo stærsti
viðburðurinn, Eimskips gáma-
stökkið, þar sem keppt er bæði á
snjósleða, skíðum og snjóbrettum,“
segir Hreggviður. „Það fær enginn
að taka þátt í því nema hafa verið
boðið sérstaklega af dómnefndinni
okkar. Ástæðan er sú að við viljum
ekki senda neinn upp á gámana
nema þeir hafi reynslu. Þannig að
bara þau færustu fá að taka þátt.
Fjöldi keppenda kemur til
Akureyrar til að taka þátt í íþrótta-
viðburðunum, bæði íslenskir og
erlendir,“ segir Hreggviður. „Í ár
verðum við með þó nokkra erlenda
keppendur, meðal annars AK Ex-
treme kónginn, Zoltan Strcula frá
Slóvakíu, sem vann í fyrra á snjó-
bretti. Við fáum líka þrjá erlenda
skíðakeppendur sem ætla að taka
þátt í gámastökkinu.
Sunnudagurinn er svona rólegi
dagurinn okkar, sem flestir gestir
nota til að skemmta sér í Hlíðar-
fjalli, og þá heldur Fimleikafélag
Akureyrar líka AK Extreme
Parkour-mót sem fer ört stækk-
andi,“ segir Hreggviður.
Öflug tónlistardagskrá
Auk íþróttaviðburðanna verður
öflugt skemmtanalíf í bænum á
meðan hátíðin stendur yfir. „Í ár
ætlum við aftur að hefja hátíðina
Einstök snjóbretta- og
tónlistarhátíð á Akureyri
Dagana 5.-8. apríl verður snjóbretta-
og tónlistarhátíðin AK Extreme
haldin á Akureyri. Hátíðin er reglu-
legur gestur sem býður upp á frábæra
skemmtun fyrir alla aldurshópa og
setur fjörlegan brag á bæinn.
á Græna hattinum með tónleikum
og partíi á fimmtudagskvöldinu.
Þar ætla Une Misère og Dr. Spock
að bomba í nokkur desíbel,“ segir
Hreggviður. „Þannig að eftir gott hlé
verður hið ógleymanlega byrjunar-
partí AK Extreme haldið aftur. Þetta
hafa verið epísk kvöld eins og elstu
menn muna. Það hefur líka aldrei
verið eins ódýrt inn á Græna hatt-
inn eins og þetta kvöld, það kostar
bara 1.500 kall.
Yfir helgina spilar svo rjóminn
af íslensku hipphoppsenunni á
tveggja daga hátíð í Sjallanum. Þar
má nefna Jóa Pé og Króla, Aron Can,
Birni, Flona, Young Karin, Emmsjé
Gauta og fleiri,“ segir Hreggviður.
Í ár lofar Burn svo að bjóða upp
á kraftmikla og glæsilega eldvörpu-
sýningu á föstudags- og laugar-
dagskvöld,“ segir Hreggviður. „Þeir
sem þekkja til vita að Burn hefur
verið með glæsilegar eldvörpur á
svæðinu hingað til, en í ár er lofað
stærra og skemmtilegra kerfi en
hefur nokkru sinni verið sýnt áður
í Gilinu.“
Einstök stemning
„Það sem gerir AK Extreme einstaka
hátíð er samstarfsvilji allra fyrir-
tækja og vina okkar sem vinna að
þessu með okkur,“ segir Hreggviður.
„Þetta er einstakt snjóbrettamót út
af þessari fjölskyldustemningu sem
er ráðandi. Menn eru allir af vilja
gerðir að hjálpa og við fáum gríðar-
legan stuðning.
Við viljum endilega þakka öllum
sem koma að þessu innilega fyrir
allt. Það eru allir svo glaðir og það
gengur allt svo vel að við gætum
ekki verið ánægðari með hvernig
þetta hefur gengið. Við höfum líka
fengið mikið hrós fyrir og ég held að
Akureyringar í heild sinni séu bara
nokkuð ánægðir með okkur,“ segir
Hreggviður að lokum.
Hægt er að fylgjast með AK Ex-
treme á facebook.com/akextreme-
iceland/.
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
4
-D
5
C
8
1
F
4
4
-D
4
8
C
1
F
4
4
-D
3
5
0
1
F
4
4
-D
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K