Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 36
Norðurland á sér afar merkilega sögu og þar eru fjölmörg söfn og fræða-
setur sem áhugavert er að skoða.
Síldarminjasafnið á Siglufirði er
eitt þeirra og þeir sem leggja leið
sína norður ættu ekki að láta safnið
fram hjá sér fara. Síldarminja-
safnið er eitt af stærstu söfnum
landsins. Sýningar þess eru í fimm
húsum, sem samtals eru 2.500
fermetrar. Safnið hefur frá því það
var opnað hlotið margvísleg verð-
laun og viðurkenningar, svo sem
Nýsköpunarverðlaun Ferðamála-
ráðs, Íslensku safnaverðlaunin og
Umhverfisverðlaun Ferðamála-
stofu. Á safninu fá gestir tækifæri til
að kynnast síldveiðum og vinnslu á
silfri hafsins en sú saga er samofin
sögu Siglufjarðar. Síldarminjasafn-
ið er opið alla daga frá maí og fram
í september en eftir samkomulagi
frá október og fram í apríl.
Verðlaunasafn á
Siglufirði
Síldarminjasafnið er heimsóknar-
innar virði. MYND/AUÐUNN NíelSSoN
Með sveigjanlegu vali dagsetninga getur þú tryggt
þér lægra verð hjá Air Iceland Connect. Enda hafa
Íslendingar alltaf kunnað að haga seglum eftir vindi.
Finndu rétta daginn fyrir þitt flug á airicelandconnect.is
Nú er lag
Ásbyrgi er stórkostleg náttúrusmíð með allt að 100 m háum hamraþiljum, sem hækka eftir því, sem innar kemur í
gljúfrið. Innst er Botnstjörn með mikilli grósku
allt um kring. Ásbyrgi er 3,5 km langt og um
1,1 km breitt. Í miðju þess er standberg, Eyjan,
sem er allt að 250 m breitt. Byrgið er skógi
vaxið, einkum birki og víði auk reynis. Nokkur
þúsund barrtré voru gróðursett þar og dafna
vel. Fýllinn verpir í þverhníptum hömrunum
en aðrir fuglar í trjáreitum og móum.
Talið er að Ásbyrgi hafi myndast við að
minnsta kosti tvö hamfarahlaup úr Vatnajökli,
annað fyrir 8-10 þúsund árum en hið síðara
fyrir u.þ.b. þrjú þúsund árum. Síðan hefur
Jökulsá fært sig til austurs. Þjóðsagan segir
að hinn áttfætti hestur Óðins, Sleipnir, hafi
stigið þar niður fæti þegar goðið var á yfirreið.
Ásbyrgi er í eigu Skógræktar ríkisins, en er
innan Vatnajökulsþjóðgarðs og í umsjá hans.
Nánar um Ásbyrgi og Vatnajökulsþjóðgarð,
www.vatnajokulsthjodgardur.is/
Merkileg náttúrusmíð
8 KYNNINGARBlAÐ 2 2 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R NoRÐURlAND
Síldin hefur lengi fylgt Norður-landi og mátti m.a. finna eina af aðalstöðvum síldveiða
landsins, snemma á 20. öldinni, á
Hjalteyri. Hér er einföld uppskrift
að heitreyktri síld.
Fyrir fjóra
4 stykki heil síld, slógdregin,
hreinsuð og hreistruð
Saltpækill:
2 lítrar vatn
400 g sjávarsalt
200 g púðursykur
2 hvítlauksgeirar, marðir
1 lárviðarlauf
1 teskeið svört piparkorn
1 stjörnuanís
Fyrir saltpækilinn: Blandið öllu
saman í potti og náið upp suðu.
Kælið pækil alveg niður og
setjið síldina í pottinn. Látið hana
marinerast í 5 klst. Takið síldina
úr pæklinum og látið þorna. Fyrir
reykingu: Raðið kolum í hálfhring í
botninn á kúlulaga kolagrilli. Hafið
röðina tvo kolamola á breidd og
tvo á hæð. Raðið viðarbútum ofan
á kolin. Kveikið í fimm öðrum
kolamolum og þegar þeir eru
orðnir gráir og heitir, setjið þá þétt
upp við annan endann á kolaröð-
inni. Setjið álform með vatni í hinn
hluta grillsins og leggið grindina
ofan á. Raðið fiskunum með
magann niður, þannig að þeir snúi
uppréttir, á þann hluta grillsins þar
sem kolin eru ekki. Lokið grillinu
og heitreykið síldina í um 4-6 tíma.
Berið fram með t.d. kartöflusalati
og ofnsteiktu grænmeti. Heimild:
www.hidblomlegabu.
Heitreykt síld
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
4
-E
9
8
8
1
F
4
4
-E
8
4
C
1
F
4
4
-E
7
1
0
1
F
4
4
-E
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K