Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 58
Nemendur Herdísar Egilsdóttur kennara í Ísaksskóla 1953 - 1999 ATHUGIÐ!
Laugardaginn 7. apríl næstkomandi frá kl. 14.00 - 17.00
ætla nemendur, foreldrar og Herdís að hittast og rifja upp gamlar minningar, gleðjast saman og njóta kaffiveitinga í Ísaksskóla.
Herdís kenndi í 45 ár og verður 84 ára í sumar - það segir sig sjálft að fjölmargir nemendur hafa notið x
leiðsagnar hennar og þess vegna þurfum við að vera vel undir það búin að margir hafi hug á að koma.
Nemendur/foreldrar eru því beðnir að senda SKILABOÐ á netfangið nemendurherdisar@gmail.com
eða hringja í Halldóru (dóttur Herdísar og nemanda) í síma 772 2408 til að tilkynna þátttöku eða senda kveðju.x
Þau sem vilja aðstoða við undirbúning eða eiga myndir eða minjagripi mega endilega láta vita af sér.
nemendurherdisar@gmail.com - s: 772 2408 Undirbúningsnefndin
Heilsan
okkar
Vísindarannsóknin
Áfallasaga kvenna
Edda Björk
Þórðardóttir
doktor í lýð-
heilsuvísindum
ErlEndar rann-
sóknir bEnda til
að mEiriHluti kVEnna
VErði fyrir alVarlEgu
Áfalli.
Nú stendur yfir ein stærsta vísindarannsókn sem gerð hefur verið á Íslandi
og ein sú umfangsmesta á þessu
sviði á heimsvísu: Áfallasaga
kvenna – Vísindarannsókn
Háskóla Íslands. Markmið henn-
ar er að kortleggja algengi áfalla
meðal kvenna hér á landi og
skoða áhrif áfalla á heilsu þeirra.
Væntingar standa til þess að sem
flestar fullorðnar konur á Íslandi
muni taka þátt í rannsókninni,
en allar konur 18-69 ára fá boð
um þátttöku með SMS-skilaboð-
um eða póstkorti. Þátttaka felst
í svörun á rafrænum spurninga-
lista sem nálgast má á vefsíðunni
www.afallasaga.is.
Heilsan okkar vill hvetja konur
til að leggja sitt af mörkum til að
auka þekkingarsköpun á þessu
sviði. Til þess að geta metið
algengi áfalla og áhrif þeirra á
heilsu er einnig nauðsynlegt að
hafa til viðmiðunar upplýsingar
frá konum sem ekki hafa upp-
lifað áföll. Því er mikilvægt að
sem flestar konur taki þátt, óháð
því hvort þær hafa orðið fyrir
áföllum eða ekki.
Ábyrgðarmaður rannsókn-
arinnar er Unnur Valdimars-
dóttir, prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands. Hún hlaut
styrk frá Evrópska rannsóknar-
ráðinu til að framkvæma Áfalla-
sögu kvenna og má geta þess að
hann er stærsti mögulegi styrkur
sem ráðið veitir afreksvísinda-
mönnum.
Erlendar rannsóknir benda til
að meirihluti kvenna verði fyrir
alvarlegu áfalli einhvern tímann
á lífsleiðinni, svo sem ofbeldi,
slysi eða ástvinamissi. Hingað
til hafa fáar rannsóknir skoðað
áföll meðal íslenskra kvenna
og þá með takmarkaðan fjölda
þátttakenda. Rannsókn af þess-
ari stærðargráðu veitir dýrmætt
tækifæri til að skoða tengsl áfalla
við margvísleg heilsufarsvanda-
mál. Niðurstöðurnar munu nýt-
ast til stefnumótunar og þróunar
skilvirkra forvarna gegn áföllum
svo sem ofbeldi. Auk þess munu
þær vonandi nýtast við þróun
nýrra meðferðarúrræða og skil-
virkari þjónustu fyrir þolendur
áfalla.
Fatahönnunarnemar á öðru ári í Listaháskóla Íslands hafa undanfarið varið tíma sínum í að vinna verkefni sem er eins konar andsvar við
vestrænni neyslumenningu. Verk-
efnið, sem ber heitið Misbrigði III:
Utangarðs, er unnið í samstarfið við
Fatasöfnun Rauða krossins á Íslandi.
Nemendur fá þar fatnað og textíl
sem hefur af einhverjum ástæðum
ekki þótt hæfur til sölu.
Með verkefninu vilja nemendur
vekja fólk til umhugsunar um meðal
annars textílsóun, neysluhegðun og
framleiðsluferli textíls undir leið-
sögn Katrínar Maríu Káradóttur,
aðjúnkts við hönnunar- og arki-
tektúrdeild.
Níu nemendur eru á öðru ári í
fatahönnun í LHÍ og öll hafa þau
velt vöngum yfir þeirri neyslu-
menningu sem einkennir vestrænan
heim. „Það er farið mikið inn á þetta
í náminu. Það er meðal annars á
okkar ábyrgð sem fatahönnuðir að
bæta neyslumenningu og viðhorf
fólks til fatnaðar. Fyrsta verkefnið í
áfanganum var að telja fötin í fata-
skápnum okkar og fjöldinn kom
stundum á óvart, það er eitthvað
sem allir hefðu gott af að gera,“ segir
Sigmundur Páll Freysteinsson, einn
nemandi úr hópnum.
Meðvituð um vistvænar lausnir
„Almennt eru nemendur í fata-
hönnun mjög meðvitaðir um
endurvinnslu og vistvænar lausnir
og hafa mikinn áhuga á þessu og
sú meðvitund eykst með frekari
þekkingu og reynslu. LHÍ hefur
lagt áherslu á að kenna nemendum
um umhverfisáhrif og hvernig má
minnka þau innan hönnunargeir-
ans,“ segir fatahönnunarneminn Þ.
Sunneva Elfarsdóttir.
Spurð út í vinnuferlið segir Sig-
mundur: „Við byrjum á rannsóknar-
vinnu þar sem við fáum hugmynd
um í hvaða átt við viljum taka lín-
una. Við fórum í heimsókn í Rauða
krossinn þar sem við sáum hversu
gríðarlega mikið magn af fötum þeir
fá. Þar á eftir fengum við fatnað og
textíl úr Rauða krossinum til að
vinna með, þróa hugmyndir og
form. Þá var næsta skref að teikna
upp línu og vinna að lokaútkom-
unni.“
N e m e n d a h ó p u r i n n sý n d i
afrakstur vinnunnar á tískusýningu
í Hörpu í gær. Þann 6. apríl opna
þau svo sýningu í húsnæði Lista-
háskólans, Þverholti 11, þar sem
fatalínur hópsins verða til sýnis og
verður sýningin opin yfir helgina.
gudnyhronn@frettabladid.is
allir hefðu gott af því að
telja fötin í fataskápnum
Nemendur á öðru ári í fatahönnun hafa undanfarið unnið að verkefni í samstarfi við Fata
söfnun Rauða krossins þar sem þau velta þau fyrir sér textílsóun, framleiðslu og neyslu
hegðun. Fyrsta verkefnið sem þau fengu var að telja fötin í sínum eigin fataskáp.
Kennararnir Katrín og Anna með nemendahópnum, Ingerði, Julie, Kristínu, Lauru, Lukreciju, Sigmundi, Sigríði, Steinunni og Þ. Sunnevu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nemendur fengu textíl frá Rauða krossinum til að vinna með. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
fyrsta VErkEfnið í
Áfanganum Var að
tElja fötin í fataskÁpnum
okkar og fjöldinn kom
stundum Á óVart.
2 2 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r38 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Lífið
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
5
-0
2
3
8
1
F
4
5
-0
0
F
C
1
F
4
4
-F
F
C
0
1
F
4
4
-F
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K