Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 29.03.2018, Qupperneq 2
Veður Austan- og suðaustanátt og rigning eða slydda með köflum austan til í dag en annars hæg breytileg átt og þurrt að kalla. Milt veður að deg- inum, einkum syðra. sjá síðu 26 Börnin á Furugrund í páskafílingi Gul og glöð Börnin á leikskólanum Furugrund í Kópavogi voru einbeitt að leik og starfi í gær þar sem þau nýttu síðasta tækifærið fyrir páskafrí til að útbúa glæsilegt páskaföndur til að færa foreldrum og forráðamönnum. Guli liturinn var allsráðandi enda gulur dagur í skólanum að gefnu tilefni. Páskaungar voru vinsælt myndefni hjá listamönnunum ungu sem vafalaust eiga framtíðina fyrir sér á vettvangi listmálunar. Fréttablaðið/Vilhelm Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400 GrillbúðinPÁSKATILBOÐ • 4 brennarar • Brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Kveikja í öllum tökkum • Tvöfalt einangrað lok • Stór posulínshúðuð efri grind • Gashella - Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Fáanlegt með niðurfellanlegum hliðarborðum - Nr. 12952 - Svart • Grillflötur 65 x 44 cm 79.900 Verð áður 89.900 • Afl 14,8 KW Fáanlegt með niðurfellanlegum hliðarborðum Frá Þýskalandi Opið skírdag 12-16 Laugardag 11-16 Nr. 12952 - Án gashellu - Svart Opið Skírdag Kl. 12-16 Kjaramál Forstjóri Bankasýslu ríkisins fær rúmlega 1.100 þúsund krónur á mánuði samkvæmt upp- lýsingum frá fjármálaráðuneytinu. Meintum ofurlaunum Jóns Gunnars Jónssonar, forstjóra Bankasýslunnar, upp á rúmar 4,5 milljónir króna var slegið upp í skoðanapistli á vefsíðu Hringbrautar á dögunum og hlaut færslan nokkra dreifingu á samfélags- miðlum auk þess sem hún var birt á vef Eyjunnar. Þar gerði pistlahöfundurinn Róbert Trausti Árnason, fyrrverandi sendi- herra, sem skrifar undir höfundar- nafninu Náttfari, að umtalsefni grein Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Flokks fólksins, um stofnunina og þá skoðun hans að hana hefði átt að leggja niður í ágúst 2014. Róbert bætir við upplýsingum um rekstrarkostnað Bankasýslunnar og fullyrðir að laun forstjórans nemi 4,5 milljónum króna á mánuði og vísaði í tekjublað DV í fyrra því til staðfest- ingar. Hið rétta er að farið var manna- villt í blaðinu. Hinar áætluðu tekjur tilheyrðu alnafna forstjóra Banka- sýslunnar, einum æðsta stjórnanda Actavis á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu fær forstjóri Bankasýslunnar enn sömu laun og kjararáð ákvarðaði honum áður en hann færðist undan úrskurðarvaldi þess með lagabreytingum í júlí 2017. Stjórn Bankasýslunnar hefur ekki breytt launum forstjórans síðan. Laun forstjórans þykja því hófstillt í rúmum 1.100 þúsund krónum á mánuði enda þýðir það að hann fær talsvert minna greitt en flestir þing- menn. Þar á meðal Karl Gauti Hjalta- son, sem fær rúmar 1.300 þúsund krónur á mánuði í þingfararkaup og fastar kostnaðargreiðslur. – smj Engin ofurlaun í Bankasýslunni Jón Gunnar Jónsson fótbolti „Ég er þegar kominn með nokkrar stelpur í þetta verkefni,“ segir knattspyrnuþjálfarinn Birgir Breiðdal en verkefni á hans vegum í Valencia fyrir næsta skólaár er í fullum gangi. Búið er að stofna kvennadeild TNGS (The Next Generation Sports) fyrir íslenskar stúlkur í Valencia og stofnað hefur verið kvennaknattspyrnulið sem mun taka þátt og keppa í spænsku deildinni næsta vetur undir stjórn spænskra þjálfara. TNGS er alþjóðlegur heimavistar- skóli sem hefur verið starfræktur í sjö ár og býður upp á einstaklings- miðaða þjálfun í knattspyrnu og nám á framhaldsskólastigi. Þá er áhersla lögð á að undirbúa unga leikmenn andlega og líkamlega fyrir framtíðina. Boðið er upp á níu mánaða nám veturinn 2018-2019, sniðið að íslenska keppnistímabilinu og íslenska menntaskólakerfinu. „Það er gott fyrir fólk að vita að Íslendingar verða þarna á svæðinu. Ég og konan mín, sem er kennari, verðum starfandi við skólann og stelpunum innan handar. Stelp- urnar geta valið um að læra sam- kvæmt bandarísku kerfi og geta þá farið í bandarískan háskóla ef þær taka öll þrjú árin. Þær geta líka tekið þetta í skiptinámi frá Íslandi. Þetta passar vel við íslenska tímabilið því þær missa ekki úr neinn leik yfir sumarið,“ segir Birgir. Stelpunum verður fylgt eftir og verður gerð þáttaröð um reynslu þeirra. Leikjunum verður streymt um veraldarvefinn og stefnan er að gera íslensku valkyrjurnar að alþjóðlegum stjörnum. Birgir þarf 16 til 22 stelpur fæddar 2000 til 2002, til að draumurinn um að fara út með tvö fullskipuð lið rætist. „Það verður ótrúlega spennandi að sjá hvernig þær munu tækla spænsku deildina.“ Stúlkurnar munu æfa tvisvar á dag við bestu skilyrði með pro-licence- þjálfurum auk þess að fá einstakl- ingsgreiningu og mat samkvæmt þjálfunarkerfi TNGS. Gerð verður markmiðaáætlun fyrir hvern leik- mann með sérstaka áherslu á stöðu leikmanns á vellinum og ætlunin er að öll þessi vinna muni skila til baka betri leikmönnum til félagsliðanna á Íslandi. benediktboas@365.is Býður stelpum upp á fótboltanám í Valencia Birgir Breiðdal, sem hefur getið sér gott orð sem þjálfari yngri flokka hjá Þrótti, ætlar að bjóða sextán til átján ára stelpum upp á fótboltanám í Valencia, þar sem þær keppa í spænsku deildinni. Draumurinn er að fara út með 22 stelpur. birgir stefnir á að láta stelpur spila fótbolta í Valencia. Fréttablaðið/ernir Stelpurnar geta valið um að læra samkvæmt bandarísku kerfi og geta þá farið í banda- rískan háskóla ef þær taka öll þrjú árin. Þær geta líka tekið þetta í skiptinámi frá Íslandi. Þetta passar vel við íslenska tímabilið því þær missa ekki úr neinn leik yfir sumarið. Birgir Breiðdal lögreglumál Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu minnir fólk á að ganga tryggilega frá heimilum sínum áður en það fer í frí um páskana. Mælt er með því að skilja ljós eftir í görðum og láta nágranna vita ef stefnt er á ferðalög. Þá er einnig minnt á að auglýsa ekki fjarveru sína á samfélags- miðlum. Lögreglan verður með hefðbundið eftirlit um páskana og mun fylgjast með íbúðarhverfum eins og kostur er, en segir mikilvægt að fólk fylgist með og tilkynni óvenjulegar mannaferðir. Gott er að taka ljósmyndir og skrifa hjá sér bílnúmer eða lýsingar á fólki. Lögreglan segir innbrotsþjófa gjarnan fylgjast með húsum áður en þeir láti til skarar skríða. Eins og frettabladid.is greindi frá í gær hafa verið óvenjulegar mannaferðir á Sel- tjarnarnesi og í Vesturbænum þar sem menn hafa sést taka myndir af húsum. – la Lögreglan varar við innbrotum 2 9 . m a r s 2 0 1 8 f i m m t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 6 -5 C B C 1 F 5 6 -5 B 8 0 1 F 5 6 -5 A 4 4 1 F 5 6 -5 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.