Fréttablaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 31
Um áramótin 2017 festi Parki kaup á Teppabúðinni/Lita-veri. Þar með lauk hálfrar
aldar samfelldri sögu Litavers við
Grensásveg og fluttist sérfræði-
þekking fyrirtækisins og sama góða
þjónustan yfir í glæsilegt húsnæði
Parka á Dalvegi.
„Teppabúðin/Litaver var elsta
sérverslun landsins með teppi, gólf-
dúka, veggfóður, skrautlista og hvers
kyns lausnir í gólfefnum, og með
samruna við Parka hefur fyrirtækið
orðið eitt það sterkasta í lausnum
og vöruflokkum fyrir meðal annars
sameignina,“ segir Bram Zomers,
sölufulltrúi hjá Parka. Hann þekkir
út í æsar hvað þarf til að gera sam-
eign fjölbýlishúsa að góðum, nota-
legum og fallegum stað.
„Parki býður húsfélögum upp
á heildarlausnir fyrir sameignina.
Sú mikla og haldgóða þekking úr
Teppalandi/Litaveri hefur nú bæst
við Parka og þar höldum við áfram
að bjóða framúrskarandi þjónustu,
frumkvæði, hagsýni í notkun
fjármagns og höfum ráð undir rifi
hverju,“ segir Bram innan um glæsi-
legt úrval af teppum á stigahús og
fyrir heimili, fyrirtæki og hótel.
„Við bjóðum upp á hágæða teppi
sem uppfylla allar kröfur Mann-
virkjastofnunar; þau eru í réttum
brunaflokki, afar slitsterk, raf-
magnast ekki, eru auðveld í þrifum
og fást í mismunandi verðflokkum,“
útskýrir Bram.
Hjá Parka hefur einnig bæst við
sú kærkomna nýjung að bjóða stiga-
húsateppi beint af lager.
„Það styttir biðtímann til muna og
verðin eru orðin hagkvæmari,“ segir
Bram. „Við gerum tilboð í verkið
húsfélögum að kostnaðarlausu ef
þau óska eftir því.“
Hágæða eldvarnarhurðir
Parki selur hágæða eldvarnarhurðir
í sameignir frá þýska framleiðand-
anum Grauthoff.
„Því miður eru enn margir stiga-
gangar hér á landi án eldvarnar-
hurða í sameign, og þá sérstaklega
í eldri byggingum,“ upplýsir Bram.
„Eldvarnarhurðirnar frá Graut-
hoff eru einkar gott dæmi um
þýskt hugvit. Þær eru yfirfelldar
með samlokukörmum sem tryggja
hljóðeinangrun og brunavörn sér-
staklega vel. Grauthoff-hurðirnar
hafa mun betri hljóðeinangrun en
áður þekktist og það veldur því að
íbúar verða minna varir við hljóð
inn og út úr íbúðum af stigagangi.
Við bjóðum upp á hurðir til endur-
nýjunar í sameign og erum líka með
öflugt teymi sem sér um afgreiðslu
til verktaka sem byggja nýjar blokkir
og vinnum gjarnan með allt sem
þarf fyrir sameignina í einu; hurðir,
teppi og hljóðísogslausnir til að
dempa utanaðkomandi hljóð í sam-
eignum sem mest.“
Traust hálkuvörn
Í Parka fæst glæsilegt úrval ítalskra
flísa sem henta jafnt á heimili, í sam-
eignir og fyrirtæki.
„Flísarnar, fyrir til dæmis sam-
eignir, eru með traustri hálkuvörn
sem er nauðsynleg þegar fólk kemur
inn af götunni og ber með sér bleytu
á gólfflötinn,“ segir Bram. „Í flísum
bjóðum við upp á hvaða lausn sem
er, hvort sem um endurnýjun gólf-
efnis er að ræða í eldri sameignum
eða nýbyggingar. Sameignarflísarnar
frá Parka þola mikinn umgang og
eru auk þess frábær kostur á bíl-
skúrsgólf og önnur rými þar sem álag
er mikið.“
Plötur fyrir góða hjóðvist
Parki býður upp á hljóðísogsplötur
frá Rockfon í sameignir og stigahús.
Þær eru framleiddar úr steinull og
veita hljóðísog í hæsta gæðaflokki.
„Hljóðísogsplötur draga mikið úr
bergmáli og skarkala í stigagöngum
og eru mikið notaðar í nýbyggingar
þar sem kröfur um slíkt eru orðnar
meiri en áður,“ útskýrir Bram en
markmiðið með hljóðísogsplötum er
að skapa sem mesta ró í sameignum.
„Við verðum nú vör við mikla
vitundarvakningu á meðal húsfélaga
um betri hljóðvist í stigahúsum og
þær koma í veg fyrir glymjanda og
áreiti sem berst utan frá sameign inn í
íbúðir. Plöturnar fást í mörgum litum,
stærðum og útfærslum sem auð-
velda hönnun og uppsetningu í jafnt
nýbyggingum sem eldra húsnæði.
Hljóðísogskerfi þykja nú orðið sjálf-
sögð þægindi í fyrirtækjum og nýjum
stigahúsum enda frábær kostur til
að fyrirbyggja hávaða af völdum
umgangs,“ segir Bram.
Parki er á Dalvegi 10-14 í Kópavogi.
Sími 595 0570. Sjá parki.is.
Með ráð undir rifi hverju
Með lausnum frá Parka verður sameignin glæsileg, hlý og hljóðlát. Hjá Parka fást dugandi vörumerki
fyrir gólf og hljóðvist í stigahúsum og traustar eldvarnarhurðir sem loka á hljóðmengun úr sameign.
Hágæða stigahúsateppi
Stigahúsateppin okkar eru slitsterk, ofnæmisprófuð og auðveld í þrifum. Gerum verðtilboð að kostnaðarlausu.
Komdu og sjáðu úrvalið. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
Bram Zomers með sýnishorn af sterkum teppum í sameignir. MYND/EYþór
KYNNINGArBLAÐ 3 F I M MT U DAG U r 2 9 . M a r S 2 0 1 8 sAMEIGNIN
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
6
-6
6
9
C
1
F
5
6
-6
5
6
0
1
F
5
6
-6
4
2
4
1
F
5
6
-6
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K