Fréttablaðið - 29.03.2018, Síða 40
Leikskólaföt
kvennanna í
Prjónafjelaginu
eru stælleg, hlý
og þægileg.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Að grípa í prjónana jaðrar við að vera jóga,“ segir flugum-ferðarstjórinn Heiðrún Erla
Guðbjörnsdóttir.
Heiðrún er í Prjónafjelaginu sem
gaf á dögunum út prjónabókina
Leikskólaföt 2, sem er framhald af
hinni geysivinsælu bók Leikskóla-
föt.
„Prjónafjelagið varð til utan um
ástríðuverkefni fjögurra vinkvenna
sem vildu búa til prjónabók,“
útskýrir Heiðrún sem smitaðist
fyrst af prjónabakteríunni þegar
hún eignaðist börn en hún er
fjögurra barna móðir.
„Okkur Evu Mjöll Einarsdóttur
flugumferðastjóra varð vel til vina
í vinnunni í gegnum sameiginlegt
prjónaáhugamál okkar og þrædd-
um saman prjónabúðirnar, þar á
meðal Litlu prjónabúðina í Faxa-
feni. Hún er hálfgerð félagsmiðstöð
kvenna sem koma þangað inn í leit
að garni en eru, áður en þær vita af,
sestar niður, byrjaðar að fitja upp
og farnar að prjóna í skemmtilegum
félagsskap annarra prjónakvenna,“
upplýsir Heiðrún sem kynntist þar
einmitt Prjónafjelagskonunum
Sigurlaugu Elínu Þórhallsdóttur
og Dagbjörtu Guðmundsdóttur,
eiganda Litlu prjónabúðarinnar.
„Sigurlaug hreif okkur Evu með
jákvæðni sinni og skemmtileg-
heitum, og Dagga (Dagbjört) er
einkar yndisleg stelpa sem laðar
fólk að sér,“ segir Heiðrún um ein-
staka vináttu sem myndast hefur
í Prjónafjelaginu. „Þetta er algjör-
lega flekklaust samband og gengur
aðeins of vel miðað við fjórar
stelpur, sem gengur nú ekki alltaf
upp. Þá er alveg sérstaklega gott að
búa að sérfræðikunnáttu Döggu um
prjónaskap og sem hefur hannyrðir
að atvinnu.“
Mættu þörf fyrir börnin
Hugmyndin að bók um leikskólaföt
kviknaði í einu prjónakaffinu.
„Þá kom upp úr dúrnum að
það sárvantaði prjónauppskriftir
að leikskólafatnaði og þörfin var
mikil. Því ákváðum við að hanna
falleg munstur og flíkur fyrir börn á
aldrinum tveggja til sex ára og setja í
eina bók, en svo komumst við að því
að það væri ekki sniðugt því prjóna-
konan þarf létta bók sem hún
getur stungið ofan í tösku og er úr
Prjónaskapur er eins og jóga
Prjónafjelagið er félagsskapur fjögurra vinkvenna sem hafa yndi af prjónaskap. Saman hafa þær
skapað dásamlega bók með nytsamlegum og fallegum prjónafötum fyrir börn á leikskólaaldri.
Heiðrún,
Dagbjört og
Sigurlaug með
leikskólaföt í
Litlu prjónabúð-
inni. Á myndina
vantar Evu Mjöll.
MynD/StEfÁn
36
Lamauld
endingargóðum pappír,“ segir Heið-
rún um ástæðu þess að bækurnar
eru orðnar tvær.
Meðal efnis í Leikskólafötum 2
eru uppskriftir að sokkum, húfum,
vettlingum, peysum og samfest-
ingum.
„Við höfðum í huga hvað nýtist
leikskólabarninu best. Það eru hlý
föt en líka létt inn á milli og sem
gagnast á öllum árstíðum. Verkefnin
eru fjölbreytt, allt frá einföldum
uppskriftum fyrir byrjendur yfir
í flóknari uppskriftir fyrir vant
prjónafólk, og hægt er að velja um
margs konar garn, þótt íslenska
ullin sé vinsælasti valkosturinn,“
segir Heiðrún, en vinsælasta upp-
skriftin um þessar mundir er hlýr
og dásamlegur samfestingur undir
pollagalla.
Draumur Prjónafjelagskvenna er
að gefa út fleiri prjónabækur.
„Þetta er ástríðu- og gæluverkefni
okkar allra og það er gaman að
gera bækur. Það gerir maður ekki
á hverjum degi,“ segir Heiðrún en
viðtökur við báðum bókunum hafa
verið frábærar.
„Það er alltaf í móð að prjóna
enda einkar notaleg iðja. Prjóna-
skapur og hannyrðir sameina fólk
eins og í baðstofunni forðum og yfir
prjóneríinu skapast tækifæri til að
spjalla um áhugamálið og kynnast
skemmtilegu fólki.“
25
Cascade 220
Léttlopi
10 KynnInGARBLAÐ fÓLK 2 9 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
6
-A
1
D
C
1
F
5
6
-A
0
A
0
1
F
5
6
-9
F
6
4
1
F
5
6
-9
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K