Fréttablaðið - 29.03.2018, Side 28

Fréttablaðið - 29.03.2018, Side 28
Nýjar vörur streyma inn Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Það er gaman að sjá hvernig tískuhönnuðir hjá Valentino raða saman litum. Pierpaolo Piccioli er listrænn stjórnandi Valentino og hefur starfað sem slíkur frá árinu 2008. Sagt er að hann kjósi að fara sína leið í tískuheiminum, hann segist trúa á jákvæðan kraft fegurðarinnar og sýnir þægilegan og frjálslegan fatnað. Róman- tíkin er þó aldrei langt undan hjá Piccioli. Hann vill meina að hver einstaklingur sé sterkur, per- sónulegur og með ástríðu fyrir lífinu. „Ég tel það styrkleika að vera blíður, ekki árásargjarn og ásakandi,“ segir hann. Piccioli er skapandi sem kemur vel fram í hönnun hans sem er lit- rík og skemmtileg fyrir haust og vetur 2018-2019. Fötin eru efnis- mikil, hann er ekki mikið að flíka beru holdi eins og sumir aðrir. Síðir kjólar og stórir jakkar eru einkennandi. Falleg mynstur og snið setja einnig svip á hönnun- ina frá Valentino. Valentino tískuhúsið hefur verið starfandi frá árinu 1960. Það er til húsa í Mílanó og á marga aðdáendur. Á undanförn- um árum hefur Valentino gengið mjög vel og innkoman árið 2015 var meira en einn milljarður Bandaríkjadala. Pierpaolo Piccioli ætlaði alltaf að verða kvikmyndaleikstjóri en þegar hann uppgötvaði tísku- heiminn ákvað hann að verða hönnuður. Eftir háskólanám í Róm fór hann að vinna fyrir Fendi. Hér á síðunni má sjá brot af því nýjasta frá Valentino sem sýnt var í París á dögunum. Valentino hræðist ekki liti Á tískuvikunni í París kom sterkt fram hversu undarlegir tímar eru í tískuheiminum. Stóru tískuhúsin fara eigin leið- ir og lítið samræmi virðist vera á milli helstu tískuhönn- uða. Valentino er óhræddur við liti og efnismikinn fatnað. Kjólarnir frá Valentino sem konur eiga að klæðast haust og vetur 2018-2019 eru efnismiklir og litríkir. KRINGLUNNI | 588 2300 til beige og svört 11.495 BAILEY peysa 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . m A R s 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 6 -8 9 2 C 1 F 5 6 -8 7 F 0 1 F 5 6 -8 6 B 4 1 F 5 6 -8 5 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.