Fréttablaðið - 29.03.2018, Page 12
KATLA FUND
Société d'Investissement à Capital Variable
9, boulevard Prince Henri, L-1724 Luxembourg
R.C.S. Luxembourg B 96 002 - (the “SICAV”)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors convenes the Shareholders of the SICAV to attend the Annual General Meeting to be
held at the registered office of the company on April 19, 2018 at 10:00 with the following agenda :
1. Report of the Board of Directors and of the Authorised Auditor
2. Approval of the Financial Statements as at December 31, 2017
3. Allocation of Results
4. Discharge to the Directors
5. Appointment of the Authorised Auditor
6. Statutory Elections
The Shareholders are advised that no quorum is required and that decisions will be taken by a simple majority of
the votes cast.
The Shareholders who wish to attend the Meeting must inform the Board of Directors (domiciliation@conventum.lu)
at least five business days before the Meeting.
Fallnir hermenn snúa aftur heim
Kínverskir hermenn sjást hér halda á kistum með jarðneskum leifum fallinna landa sinna. Við athöfn í Incheon í Suður-Kóreu í gær afhentu suður-
kóreskir hermenn Kínverjum leifar 20 fallinna kínverskra hermanna frá tímum Kóreustríðsins sem stóð yfir frá 1950 til 1953. Nordicphotos/Getty
Egyptaland Þeir Egyptar sem ekki
tóku þátt í forsetakosningunum
sem lauk í gær verða sektaðir um
500 egypsk pund, andvirði um 3.000
króna. Þetta tilkynnti talsmaður
yfirkjörstjórnar í gær. „Lögum sam-
kvæmt verður hver sá kjósandi sem
ekki tekur þátt í lýðræðisferlinu
samstundis sektaður um 500 pund,“
hafði ríkismiðillinn Stöð 1 eftir tals-
manninum.
Nærri 60 milljónir Egypta eru á
kjörskrá. Búist er við því að Abdel
Fattah al-Sisi forseti nái endurkjöri
en andstæðingur hans er hinn lítt
þekkti Moussa Mostafa Moussa. Sá
safnaði meðmælum fyrir framboð
Sisi og hafa stjórnmálaskýrendur og
stjórnarandstæðingar kallað hann
strengjabrúðu Sisi. Hann sé í fram-
boði til að láta kosningarnar líta út
fyrir að vera lýðræðislegar og til þess
að auka kjörsókn. Aukinheldur leik-
ur vafi á að hann hafi greitt sjálfum
sér atkvæði. – þea
Sekta þá sem
kusu ekki
Vi ðski pti Framkvæmdastjóri
Félagsbústaða segir 12,6 milljóna
króna hækkun á samtölu launa
hans og stjórnar félagsins milli ára
í ársreikningi eiga sér skýringar í
mikilli hækkun stjórnarlauna árið
2016, breytingu á greiðslufyrir-
komulagi þeirra, launahækkun og
yfirvinnuálagi hans í fyrra og yfir-
sjón við að gera grein fyrir bílastyrk
hans í ársreikningi 2016.
Í ársreikningi Félagsbústaða fyrir
árið 2017 segir í skýringu að laun
vegna stjórnarsetu árin 2016 og
2017 og laun framkvæmdastjóra
árið 2017 hafi numið 30,8 milljón-
um samanborið við 18,2 milljónir
árið áður. Engar frekari skýringar
eða sundurliðun er gefin á þessum
breytingum.
Auðun Freyr Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir
þessa framsetningu vissulega gagn-
rýniverða enda gefi hún ekki glögga
mynd af skiptingu þeirra liða sem
undir hana falla í svari við fyrir-
spurn Fréttablaðsins. Hækkunin
milli ára eigi sér þó eðlilegar skýr-
ingar.
Í fyrsta lagi hafi stjórnarlaun
vegna ársins 2016 verið hækkuð úr
47.917 krónum á mánuði í 122.000 á
mánuði, eða um ríflega 154 prósent.
Hækkunin hafi verið liður í sam-
ræmingu hjá Reykjavíkurborg. Sam-
hliða þessari hækkun var ákveðið
að breyta greiðslufyrirkomulagi
stjórnarlauna. Horfið var frá því að
greiða þau öll í einu eftir á í fyrir-
framgreiðslu mánaðarlega. Þetta
hafði gert það verkum að árið 2017
væri í ársreikningi bókuð tvöföld
stjórnarlaun, sem skekki myndina.
Þá hafi framkvæmdastjórinn
fengið 10 prósenta launahækkun í
fyrra, fór úr 1.328 þúsund krónum
á mánuði í 1.458 þúsund. Þá hafði
láðst að gera grein fyrir bílastyrk
framkvæmdastjórans í skýringu við
ársreikning 2016 en hann fær 1.680
þúsund krónur á ári í slík hlunnindi.
Loks fékk framkvæmdastjórinn á
síðasta ári 1,4 milljónir greiddar í
yfirvinnu „vegna mikils og óvenju-
legs álags í tengslum við breytt laga-
umhverfi fjármögnunar fyrirtækis-
ins og útgáfu skuldabréfa á vegum
þess“. Ekki sé um fasta greiðslu að
ræða. mikael@frettabladid.is
Stjórnarlaun Félagsbústaða
hækkuðu um 150 prósent
Launakostnaður stjórnenda Félagsbústaða hækkaði um 12,6 milljónir milli ára. Framkvæmdastjórinn segir
hækkun stjórnarlauna 2016, breytt greiðslufyrirkomulag þeirra, launahækkun sína og yfirvinnugreiðslu
vegna mikils álags skýra hækkunina. Stjórnarlaun hækkuðu úr 47 þúsundum í 122 þúsund á mánuði.
Auðun Freyr ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða.
myNd/FélAGsbústAðir
Rússland Alið er á ótta á samfélags-
miðlum og lygum dreift þar um
harmleikinn í síberísku borginni
Kemerovo, þar sem að minnsta
kosti 64 fórust í eldsvoða í verslun-
armiðstöð á sunnudag. Þetta sagði
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
þegar hann fundaði með Alexander
Bastríkín, sem leiðir rannsóknina á
brunanum, í gær.
Mótmæli hafa geisað á götum
Kemerovo undanfarna daga þar
sem kallað hefur verið eftir afsögn
Pútíns. Hafa mótmælendur kennt
yfirvöldum um að jafn illa fór og
raun ber vitni. Sumir telja jafnvel
að mun fleiri hafi farist, allt að 400
og að yfirvöld séu að fela lík þeirra.
Pútín sagði það að auki að
kanna þyrfti hverja einustu stað-
hæfingu. „Við höfum tekið eftir því
að röngum upplýsingum er dreift
á samfélagsmiðlum, aðallega af
erlendum aðilum. Það er gert til að
ala á ótta og vantrausti í garð yfir-
valda.“ – þea
Pútín segir alið
á ótta í Síberíu
Vladímír pútín, forseti rússlands.
FréttAblAðið/epA
Rússland Þrátt fyrir að rúmlega
tuttugu ríki hafi vísað rússneskum
erindrekum úr landi eru Rússar ekki í
öngstræti. Þetta sagði Dmítrí Peskov,
talsmaður Rússlandsforseta, í gær.
Rússar hafa mætt mótbyr eftir að
ráðist var á gagnnjósnarann fyrrver-
andi Sergei Skrípal og dóttur hans
með taugaeitri í Salisbury í Bret-
landi fyrr í mars. Er Rússum kennt
um árásina en þeir neita sök.
„Ég held við séum ekki komin í
öngstræti. Tuttugu eða þrjátíu ríki
eru bara hluti af heiminum,“ hafði
Interfax, stærsti einkarekni miðill
Rússlands, eftir Peskov.
Talsmaðurinn sagði enn fremur
að á meðal þeirra ríkja sem tóku
afstöðu með Bretum væru ríki sem
hefðu þá skoðun að málstaður Breta
væri veikur. Sönnunargögnin væru
ekki nægilega mikil til þess að saka
Rússa um svo alvarlegan glæp.
Svartfellingar bættust í gær í hóp
ríkja sem vísa Rússum úr landi. Svart-
fellski miðillinn Cafe del Monte-
negro greindi frá því að einum erind-
reka hefði verið vísað úr landi.
Samskipti Rússlands og Svart-
fjallalands hafa verið einkar stirð frá
því rússneskir þjóðernissinnar voru
sakaðir um áform um að ráða Milo
Djukanovic forsætisráðherra af
dögum árið 2016. – þea
Segir Rússa ekki komna í öngstræti
154%
var hækkun stjórnarlauna á
einu bretti árið 2016 vegna
samræmingar hjá fyrirtækj-
um Reykjavíkurborgar.
dmítrí peskov,
talsmaður rúss-
landsforseta
500
egypskum pundum, andvirði
3.000 króna, þurfa Egyptar
sem ekki kusu að punga út.
2 9 . m a R s 2 0 1 8 F i m m t U d a g U R12 F R é t t i R ∙ F R é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
6
-7
F
4
C
1
F
5
6
-7
E
1
0
1
F
5
6
-7
C
D
4
1
F
5
6
-7
B
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K