Fréttablaðið - 29.03.2018, Qupperneq 24
Gleðilega
páska
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
OPIÐ
Í DAG
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Ingunn Lára segist ekki eiga neina fasta tískufyrirmynd. „Ég hugsa hins vegar oft um
persónur og klæði mig eins og
þær. Einn daginn er það Norma
Desmond í Sunset Boulevard og
annan daginn er það Burlington
Bertie frá Bow! Ég byrja stundum
daginn á því að finna mér karakt-
er og þá finnst mér mikilvægt
að klæða mig eins og hann. Ég
hef ekkert vit á tísku en ég elska
allt leikrænt og persónulegt. Ég
er líka mjög hrifin af tískunni í
London á níunda áratugnum,
svona gangandi listaverkum eins
og Leigh Bowery. Já, og ég elska
Cambridge Satchel töskuna mína
frá London. Ég lét skera fangamark
mitt í hana.“
Hversdags fylgir Ingunn for-
dæmi fjölda Íslendinga og klæðist
helst svörtu. „Og svo er ég alltaf
til í föt sem ég get vafið utan um
mig.“ Hún segist helst kaupa föt
í Fatamarkaðinum, Corner Shop
og Cos. „Mér finnst líka gaman að
kaupa föt á mörkuðum. Og svo í
Handprjónasambandinu, ekkert
jafnast á við góða lopapeysu.“
Ingunn segist ekki vera með fata-
dellu. „En ég viðurkenni alveg að
þegar ég á pening þá finnst mér
gaman að kaupa föt. Akkúrat núna
er græna bandapeysan mín í miklu
uppáhaldi því hún er geðveikt
skemmtileg. Uppáhaldshönnuð-
irnir mínir eru Ýr Jóhannsdóttir
eða Ýrúarí á Íslandi, peysurnar
hennar eru afskaplega skemmti-
legar og koma á óvart. Á heimsvísu
er það Irene Sharaff, búninga-
hönnuðurinn sem hannaði fötin í
næstum allar gömlu Hollywood-
myndirnar!“
Sokkabuxur eru eitt af því sem
Ingunn lætur eftir sér þótt hún eigi
nóg af þeim. „En það er reyndar
því ég fæ alltaf gat á sama stað. Ég
er með fáránlega stóra stórutá.“
Stóra táin hindrar hana þó ekki
í að ganga í uppáhaldsskónum
sínum. „Það eru Irregular Choice
skórnir sem ég keypti á Carnaby
Street fyrir löngu og verð aldrei
leið á.“ Aðspurð segist Ingunn Lára
luma á einni skemmtilegri sögu af
fatakaupum. „Ég var að leita mér
að púkó jólapeysu í Texas árið
2012 og kíkti inn í fjölskyldurekna
búð sem seldi alls kyns kjánalegar
peysur. Ég var mjög glöð og sagði
afgreiðslukonunni að ég væri ótrú-
lega ánægð með að hafa loksins
fundið „ugly Christmas sweater
store“. Kom í ljós að þetta var
eigandinn og henni sárnaði mjög
þessi lýsing. Fyrir henni voru þetta
mjög vandaðar og alls ekki kald-
hæðnislegar peysur með miklum
jólaanda. En ég meina … hún var
með peysur með mynd af Jesú-
barninu að skíra jólasveininn!“
Eins og áður sagði er margt á
döfinni hjá Ingunni þessa dagana.
„Ég verð plágulæknir og skáld hjá
Rauða skáldahúsinu í kvöld í Iðnó!
Þemað er dauðasyndirnar sjö og
aðalskáld kvöldsins er Sjón! Fram
undan eru svo æfingar og sýningar
á óperu sem ég skrifa og leikstýri.
Hún heitir #bergmálsklefinn og er
Twitter-ópera sem verður frum-
sýnd 25. maí í Tjarnarbíói.“
Græna uppáhaldspeysan er frá Corner Shop og að sögn Ingunnar mjög skemmtileg, einkum fyrir
litlar frænkur sem eru alltaf að tosa í spottana. MYNDIR/ANDRI MARINO
Síðkjólinn
keypti Ingunn í
„vintage“ búð í
Edinborg til að
vera í í brúð-
kaupi en hann
nýtist líka vel
þegar skapa skal
persónu.
Kjólfötin voru keypt á Camden-markaðinum í London en hér leikur Ingunn Lára sér með gervi
breskrar aðalsmanneskju og þar leika te og teketill að sjálfsögðu stórt hlutverk
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
6
-A
1
D
C
1
F
5
6
-A
0
A
0
1
F
5
6
-9
F
6
4
1
F
5
6
-9
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K