Fréttablaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 36
Samkvæmt 4. gr. fellur neðan-talið undir séreign fjöleignar-húss: 1. Allt afmarkað húsrými sem gert er að séreign samkvæmt þing- lýstum heimildum og allt sem liggur þar innan veggja. 2. Allt innra byrði umliggjandi veggja, gólfa og lofta, þar á meðal einangrun. 3. Allir milliveggir sem ekki eru jafn- framt burðarveggir. 4. Öll tæki, búnaður og þess háttar inni í séreignarhluta, þótt tengd séu sameiginlegu kerfi eða lögnum. 5. Sá hluti gluggaumbúnaðar sem er inni í séreign, svo og gler í gluggum og hurðum. 6. Hurðir sem skilja séreign frá sameign, svo og svalahurðir, en húsfélag hefur ákvörðunarvald um gerð og útlit. 7. Lagnir og tilfæringar, hverju nafni sem þær nefnast og hvar sem þær eru, sem eingöngu þjóna þörfum viðkomandi séreignar. 8. Innra byrði svalaveggja og gólfflötur svala, en húsfélag hefur ákvörðunarvald um allar breytingar, búnað og annað á svölum sem áhrif hefur á útlit hússins og heildarmynd. 9. Hluti lóðar, t.d. bílastæði, sem er séreign samkvæmt þinglýstum heimildum eða eðli máls, svo sem einkabílastæði fyrir framan bílskúr. 10. Aðrir hlutar húss eða lóðar, bíl- skúr á lóð húss eða búnaður og lagnir sem þinglýstar heimildir segja séreign eða teljast það samkvæmt eðli máls, svo sem ef viðkomandi hefur kostað það, sbr. 9. gr. Heimild: althingi.is  Séreign í fjölbýli Gæludýr geta orðið friðar-spillar í fjölbýli. Um dýra-hald gilda reglur sem betra er að kynna sér áður en seppi flytur inn. Hunda- og kattahald í fjöleign- arhúsi er háð samþykki ⅔ hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Þegar svo háttar getur húsfélag eða húsfélagsdeild með samþykki ⅔ hluta eigenda veitt annaðhvort almennt leyfi til hunda- og/eða kattahalds eða einstökum eig- endum slíkt leyfi vegna tiltekins dýrs. Getur húsfélagið bundið slíkt leyfi skilyrðum. Eigandi skal afla samþykkis ann- arra eigenda og fá leyfi fyrir dýrinu samkvæmt reglum viðkomandi sveitarfélags, þar sem það á við, áður en dýrið kemur í húsið. Skal eigandi láta húsfélagi í té ljósrit af leyfinu. Samþykkið er óafturkallanlegt að óbreyttum forsendum en þing- lýsingar er þörf til að það haldi gagnvart síðari eigendum í góðri trú. Skemmri heimsóknir hunda og katta eru heimilar ef enginn mót- mælir en vistun eða dvöl þeirra yfir nótt er óheimil nema fyrir liggi leyfi skv. 1. og 2. mgr. Þessar takmarkanir gilda ekki þegar um hjálparhunda er að ræða, sbr. 33. gr. d.] 1) Það er skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi í fjöleignarhúsum að búið sé vel að dýrunum og vel sé hugsað um þau. Jafnframt skal þess gætt í hvívetna að þau valdi öðrum íbúum hússins ekki ama, ónæði eða óþægindum. www.althingi.is Leyfi þarf fyrir loðnum íbúum Heima er best. Líka í sam-eigninni. Eða þannig á það allavega að vera. Í sambýli fólks er mikilvægt að sýna náunga- kærleik og vera vingjarnlegur í viðmóti. Stirð samskipti gera and- rúmsloft á milli manna óþægileg á meðan ljúf samskipti fylla loftið notalegheitum og léttleika. Þá er almenn kurteisi að heilsa nágrönnum sínum þegar mæst er í sameign og sjálfsagt að bjóða fram hjálp eða aðstoð þar sem við á. Góðir nágrannar eru viljugir að skiptast á vikum í sameigninni í sumarfríum og vera á varðbergi gagnvart eignum nágranna sinna þegar þeir fara að heiman. Þá er sjálfsögð gestrisni og gerir alla káta að bera fram nýbakaðar kleinur eða annan bakstur með kaffisopanum á húsfundum. Góðir nágrannar gulli betri 8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . m A R s 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RsAmeIGNIN 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 6 -7 A 5 C 1 F 5 6 -7 9 2 0 1 F 5 6 -7 7 E 4 1 F 5 6 -7 6 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.