Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 30
Við getum létt undir
Umönnun foreldra er gefandi en getur tekið á vegna annríkis í daglegu lífi.
Við getum létt undir með sveigjanlegri aðstoð á heimilinu og ráðgjöf.
Heimahreyfing
– sérsniðin styrktarþjálfun
Aðstoð við böðun
Innlit
Viðvera
Aðstoð við heimilishald
Útréttingar og bæjarferðir
PO
RT
h
ön
nu
n
(
HEIMA
Heilsa Vellíðan Daglegt líf
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sími 563 1400
soltunheima@soltunheima.is
www.soltunheima.is
Hjúkrunarfræðingur kemur heim og saman finnum
við þjónustuúrræði fyrir þínar þarfir. Fyrsta heimsókn
án skuldbindingar og kostnaðar.
Persónuleg og sveigjanleg þjónusta
V ið höfum verið að fara ítarlega í gegn-u m f ra m k væ m d samræmdra könn-unarprófa,“ segir Arnór Guðmunds-
son, forstjóri Menntamálstofnun-
ar, sem hefur verið gagnrýnd fyrir
framkvæmd slíkra prófa nýverið.
Í ár settu tæknilegir annmarkar
prófin úr skorðum. Tæknifyrirtæki
sem annast framkvæmd prófanna
axlaði alla ábyrgð á mistökunum
í vikunni og bað yfirvöld og alla
hlutaðeigandi afsökunar.
„Flestar þjóðir hafa einhvers
konar samræmt námsmat. Mönn-
um hættir til að tala um samræmd
próf sem upphaf og endi alls. En
það er svo fjölbreytt námsmat sem
fer fram í skólum. Fjölbreytt mat
er best til að mæla getu. Mér finnst
ágæt líking sem Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, notaði: Hvernig
mælir þú rós? Það segir ákveðið um
rósina ef þú mælir til dæmis lengd-
ina á stilknum en það segir ekkert
um fegurð hennar,“ segir Arnór.
Arnór leggur áherslu á að tilgang-
ur samræmdra könnunarprófa sé
fyrst og fremst að meta hvort mark-
miðum aðalnámskrár hafi verið
náð og veita endurgjöf til nemenda,
foreldra, yfirvalda og kennara um
þekkingu og hæfni nemenda.
Niðurstaðan geti verið mikilvæg
skilaboð um námið. Hann bendir
á að undanfarið hafi verið unnið
að því að gera samræmdu könn-
unarprófin einstaklingsmiðuð. „Þá
fylgir prófakerfið eftir getu hvers og
eins nemanda. Prófin verða mann-
eskjulegri. Nemendur sem sýna
fram á góða hæfni fá hærra hlut-
fall erfiðra prófspurninga. En þeir,
sem skortir hæfni, fá hærra hlutfall
auðveldari spurninga. Slík próf eru
öllum til hagsbóta, þau byggja á
stórum banka af fjölbreyttum próf-
spurningum. Því höfnuðum við því
upphaflega að gera prófspurningar
opinberar,“ segir Arnór frá. „En
fyrir okkur vakti að gæta þess að
hægt væri að nota prófspurningar
í þennan prófabanka.“
Arnór vísar í gagnrýni foreldra
sem vildu sjá próf og prófúrlausnir
barna sinna en úrskurðarnefnd
um upplýsingamál hefur í tvígang
kveðið upp úrskurð um að Mennta-
málastofnun þurfi að veita foreldr-
um barna aðgang að úrlausnum
þeirra í samræmdum könnunar-
prófum en stofnunin hafði neitað
að afhenda bæði prófin og úrlausn-
irnar.
Meiri sveigjanleiki
„Við munum að sjálfsögðu hlíta
úrskurðinum og ætlum að birta
prófin á heimasíðu okkar. Svo erum
við að skoða fleiri möguleika á því
hvernig við getum birt niðurstöður
nemenda í þessum prófum,“ segir
Arnór.
Er þörf á öllum þessum samræmdu
prófum? Er ekki bara hægt að halda
þau einu sinni, á svipaðan hátt og
Finnar gera? „Ég held að það hafi
verið þörf á upplýsingum um gæði
skólastarfsins síðustu ár. En annars
er best að treysta á kennara og skóla.
Í framtíðinni verður meiri sveigjan-
leiki og kennarar og skólar hafa
meira um fyrirlögnina að segja.“
Námsgögn ekki boðin út
Stofnunin gegnir margþættu hlut-
verki sem viðkemur menntun
barna. Til dæmis er hún ábyrg fyrir
allri framleiðslu námsgagna. Afar
sjaldan fer slík framleiðsla í útboð
heldur leita ritstjórar stofnunarinn-
ar til höfunda sem þeir treysta fyrir
gerð námsefnisins.
„Við erum með ritstjóra sem
eru yfir tilteknum greinum. Það er
haft samráð við fagfélög kennara
um hvar vantar námsefni, hvaða
námsefni þarf að endurnýja og
svo framvegis. Á grundvelli þess er
búin til útgáfuáætlun fyrir hvert ár.
Stundum gerum við samninga við
erlenda útgefendur um að þýða og
staðfæra þeirra efni. Námsefnið er
skrifað utanhúss og ritstjórar leita
til höfunda. Það er ekki um auðugan
garð að gresja hvað varðar hverjir
geta skrifað námsefni,“ segir Arnór.
Hvers vegna er þetta ekki boðið
út? „Þetta er hefð sem er arfleifð
frá Námsgagnastofnun og þetta
eru verkefni sem eru undir útboðs-
skyldu. Ég held það sé frekar farið
eftir ráðleggingum fagfélaga um
hverjir gætu verið best til þess
fallnir að semja efnið. En þetta er í
endurskoðun. Við erum að vinna í
nýrri stefnu hvað þetta varðar.“
Það virðist vera að það vanti
námsgögn sem miða að innflytj-
endum. Og þá sérstaklega þeim sem
eru nýkomnir til landsins. „Það er
mjög lítið til af efni fyrir þennan
hóp, því miður. Nýlega hóf störf hjá
okkur sérfræðingur í þessum efnum.
Hún hefur farið yfir okkar námsefni
og greint hvað vantar. Niðurstaðan
er sú að það bráðvantar slíkt efni. Í
Svíþjóð er sérstakt móttökunáms-
efni og sérstakt námsefni samið
fyrir hóp innflytjenda. Við erum að
skoða það í samstarfi við sveitar-
félög að útbúa slíkt námsefni. En
það er á byrjunarstigi.“
Hvernig mælir þú rós?
með meistarapróf í námssálfræði
og hefur mikla reynslu af kennslu og
stefnumótun í námi.
Hún segist talsmaður mælinga og
telur að það eigi að mæla árangur í
öllum kerfum sem samfélagið setur
fjármuni í. „Markmiðin þurfa hins
vegar að vera skýr. Samræmdu
prófin á Íslandi eru barn síns tíma
og markmið þeirra óskýr. Þau eru öll
tekin á sama tíma sem er úrelt krafa
og setur þannig prófin í forgrunn
hjá börnum, foreldrum og skóla-
fólki. Þau mæla heldur ekki þær
kröfur um árangur sem við setjum
á skóla í aðalnámskrá og lögum um
grunnskóla,“ segir Þorbjörg Helga
og segir námsmatið byggt á úreltum
viðmiðum.
„Það er liðin tíð að fólk geti lært
próf utan að. Kröfur um gott nám
eru af allt öðrum toga og það lærir
enginn utan að algebrudæmi án
þess að annaðhvort kunna algebru
eða æfa sig mjög vel fyrir prófið. Og
þá er árangrinum náð, ekki satt?
Ég vil líka sjá finnska kerfið, sem
skoðar með tilviljunarkenndum
hætti kennslu í ólíkum fögum til að
ná utan um fleiri fög. Og hver segir
að það sé ekki hægt að halda sam-
ræmt próf í textíl fyrir þá nemendur
sem vilja?“
Þorbjörg Helga segir að þótt
tekist hafi verið á um mennta-
kerfið undan farið séu vandamálin
ekki óyfirstíganleg. „Þó það brenni
eldar alls staðar, þá eru þeir ekkert
risastórir. Það gerir mig bjartsýna
á að við getum byggt aftur upp
frekar hratt. Það sem þarf að laga
helst eru þeir rammar sem skóla-
starf eru læst í, rammar samninga,
reglugerða, skriffinnskuskyldu og
ótrúlega ómarkviss starfsþróun
kennara. Við höfum í mörg ár sett
stefnumótun um mjög byltingar-
kenndar breytingar, innleitt reglur
og lög en ekki sett krónu né aur til
að fylgja breytingunum eftir. Hvaða
fyrirtæki myndi gera slíkt? Að bylta
starfsumhverfinu en fjárfesta ekki í
breytingunni? Það er kominn tími
fjárfestinga,“ segir Þorbjörg Helga.
Hún segist vilja sjá miklu meira
samstarf skóla og samfélags. „Áður
fyrr var skólinn tvísetinn en það
hafa ekki margar „kennslustundir“
bæst við. Getum við ekki skapað
umhverfi þar sem nemendur eru í
þemastarfi í samfélaginu og kenn-
arar skipta með sér að vinna undir-
búningsvinnu fyrir næstu lotu á
meðan? Ég held að það verði að
brjóta skólastarf upp með róttækum
hætti til að breyta. Síðan kemst nýtt
jafnvægi á,“ nefnir hún.
Skorar á ráðherra
Þorbjörg Helga skorar á Lilju
Alfreðsdóttur mennta- og menn-
ingarmálaráðherra að losa um
reglugerðir og auka frelsi kennara og
skólastjórnenda til muna. „Þá fá þeir
meiri tíma til að breyta skólastarfi
að innan. Ég vil sjá miklu sterkara
eftirlit og úrræði fyrir börn sem
lenda í vandræðum á yngsta stigi
grunnskóla.
Leikskólinn stendur sig afburða
vel en ramminn fyrir þessi börn
brotnar þegar þau koma á næsta
skólastig. Þessi börn eru þau sem eru
líklegust til að falla brott úr fram-
haldsskóla, úrræðin þurfa að færast
neðar í skólakerfið því í framhalds-
skóla er það því miður orðið of seint
fyrir flesta,“ segir Þorbjörg Helga og
deilir sinni sýn á hvað þurfi að ráð-
ast í núna.
„Við verðum að horfa til tækni-
byltingarinnar í að einfalda öll
ferli í starfsumhverfi skóla. Það á
að stefna á að byggja upp rafrænan
gagnabanka verkefna og prófa til
að nemendur geti haft aðgang að
þessum gögnum hvenær sem er og
tekið prófin næstum þegar þau vilja.
Kennarar eiga að fá miklu öflugri
starfsþróun og upplýsingar í gegn-
um veflæg námskeið. Okkur skortir
verulega efni og miðlægt setur til að
styrkja allt kerfið í íslenskukennslu
fyrir börn af erlendu bergi brotin.“
Blómaskeið í framhaldsskólum
Dóttir Þorbjargar Helgu útskrifast
líklega árið 2030 úr framhaldsskóla,
þá nítján ára gömul. „Ég er mjög
bjartsýn fyrir hennar hönd því fram-
haldsskólinn er að breytast í rétta
átt. Þverfagleg vinnubrögð eru nú
auðveldari með breyttu umhverfi
kennara og ég held að hann muni
upplifa blómaskeið næstu tvo
áratugi. Ég er því bjartsýn á að
útskriftar árgangurinn 2030 verði
tilbúinn í framtíðina sem við erum
öll smá smeyk við þar sem enginn
veit hvaða störf verða í boði.“
Arnór Guðmunds-
son, forstjóri
Menntamálastofn-
unar, segir samræmd
könnunarpróf ekki
upphaf og endi alls.
Fjölbreytt námsmat í
skólum sé best til að
mæla getu nemenda.
Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar. FréttABlAðið/ANtoN BriNk
Prófin verða mann-
eskjulegri. nemendur
sem sýna fram á góða
hæfni fá hærra hlut-
fall erfiðra Próf-
sPurninga. en þeir,
sem skortir hæfni, fá
hærra hlutfall auð-
veldari sPurninga.
Fréttablaðið.is Lengri útgáfa af
greininni er á frettabladid.is.
↣
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
4
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-F
E
5
8
1
F
4
C
-F
D
1
C
1
F
4
C
-F
B
E
0
1
F
4
C
-F
A
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K