Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 32
L i l j a A l f r e ð s d ó t t i r , mennta- og menningar-málaráðherra, segist standa frammi fyrir krefjandi áskorunum. „Við erum á ákveðnum
tímamótum. Við stöndum okkur
ekki nógu vel í samanburði við
aðrar þjóðir hvað varðar grunn-
færni í lesskilningi, náttúrulæsi og
stærðfræði. Einnig er nýliðunar-
vandi í kennarastéttinni, ef ekkert
verður að gert mun vanta 2.000
kennara árið 2030,“ segir Lilja og
bætir við að ljóst sé að við munum
ekki stuðla að hugverkadrifnu og
skapandi samfélagi ef ekki verði
sköpuð sterk umgjörð í kringum
kennara.
Meirihluti félagsmanna í Félagi
grunnskólakennara felldi nýgerðan
kjarasamning FG og Sambands
íslenskra sveitarfélaga í vikunni. Nei
sögðu 68,52% en já sögðu 29,74%.
„Það þarf að skapa þjóðarsátt
um menntun á Íslandi. Nú felldu
kennarar kjarasamninga. Það
þarf að fara vel yfir þau atriði sem
urðu til þess. Allar þjóðir sem ná
miklum árangri í menntamálum
hlúa vel að umgjörðinni í kringum
kennara og endurmenntun þeirra.
Ég horfi til ríkja sem gera þetta vel,
eins og Finnlands og Kanada. Ég
lærði í Suður-Kóreu og horfi því
líka þangað. Þó við séum gerólíkar
þjóðir eigum við margt sameiginlegt
í markmiðum okkar og sögu,“ segir
Lilja sem stundaði nám í austrænni
stjórnmálasögu í Ewahwa-háskóla
í Seúl. Hún tók einnig að sér ensku-
kennslu í borginni á þessum tíma og
þekkir því til menntakerfisins þar.
„Í Kóreu er lögð gríðarleg áhersla
á menntun og læsi og það á sér skýr-
ingar í sögunni. Kóreubúar notuðu
kínversk tákn fram á miðja 16. öld.
Konungur þess tíma vildi auka
læsi og lét þróa sérstakt letur í stað
táknanna. Með því jókst almennt
læsi í landinu. Konungurinn var
staðráðinn í að lágstéttin og konur
skyldu læra að lesa. Kórea var eitt
fátækasta ríki veraldar eftir stríðið
1953 en hagsæld þar jókst með auk-
inni áherslu á menntun,“ segir Lilja.
Er ekki mikilvægt að horfast í
augu við mistök? Hvernig stendur
á því að helmingur grunnskóla fékk
að innleiða lestraraðferð sem athug-
anir Menntamálastofnunar sýna og
virtir fræðimenn segja einnig að sé
ekki ákjósanleg til lestrarkennslu á
byrjendastigi, Byrjendalæsi? „Það
er ávallt mikilvægt að horfast í
augu við mistök og við eigum að
vera gagnrýnin þegar við tölum um
menntun og breytta aðferðafræði.
Það verða að vera góðar vísinda-
legar rannsóknir að baki breyttum
aðferðum. Við þurfum að skoða
hvar þessi börn standa núna. Það
innleiddu ekki allir skólar þessa
aðferð. Hafi þetta mistekist þá þarf
að viðurkenna það,“ segir Lilja og
ítrekar að þá þurfi strax að snúa af
rangri braut.
„Mér finnst einnig skorta sam-
vinnu á milli skólastiga. Það á að
vera ein samfella frá leikskóla upp
í háskóla. Góður lesskilningur er
grunnforsenda þess að þú getir til-
einkað þér aðra færni á leið þinni
í gegnum skólakerfið. Þessi færni
hefur aldrei verið mikilvægari en nú
þegar við undirbúum okkur undir
fjórðu iðnbyltinguna,“ segir hún.
Lilja segist trúa því að íslenskir
nemendur eigi mikið inni hvað
varðar niðurstöður úr PISA-könn-
unum. Með hvatningu og kynn-
ingu á prófinu muni þau standa sig
betur. „Ég er viss um að hæfnin er
meiri. Ég held að við höfum ekki
lagt nógu mikla áherslu á að kynna
prófin og tilgang þeirra fyrir for-
eldrum og börnum. Nú sýnum við
til að mynda hvatningarmyndbönd
þar sem nemendur eru brýndir til
að taka prófin alvarlega og gera sitt
besta.“
Lilja segir að þjóðarátak um
menntun feli í sér hugarfarsbreyt-
ingu og virkari þátttöku foreldra.
„Íslenskir foreldrar eru duglegir
Enginn verður
skilinn eftir
Íslenskt menntakerfi stendur á tímamótum að sögn Lilju Alfreðs-
dóttur menntamálaráðherra sem lítur til Finnlands og Kanada. Börn
af erlendum uppruna megi ekki vera jaðarsett og skorti aðstoð.
„Í Kóreu er lögð gríðarleg áhersla á menntun og læsi og það á sér skýringar í sögunni,“ segir Lilja. FréttabLaðið/SteFán
að styðja við börnin sín. Þeir fylgja
þeim í tómstundastarfi, fara með
þeim í keppnisferðalög og fleira. Ég
vil að við yfirfærum þessa ástríðu
og sýnum hana gagnvart náminu
og skólunum líka. Ég held það gæti
haft mikil áhrif til góðs,“ segir hún.
Gæti það orðið okkur til fram-
dráttar að draga úr eða minnka vægi
samræmdra prófa? Finnar mæla
samræmt aðeins einu sinni á náms-
ferli barna. Þurfum við svona margar
mælingar? „Finnar notast við fá
próf, Kóreubúar styðjast við mörg
próf. Ég held að það verði okkur til
framdráttar að treysta kennurum til
að meta sína nemendur. Það þarf
að vera ákveðin breidd í náminu og
mat kennara á nemendum sínum er
mikilvægt. Það er mikið brotthvarf
í framhaldsskólum sem gefur okkur
vísbendingar um að þau komi ekki
nægilega undirbúin til náms eða séu
ekki á réttum stað; að námið henti
þeim ekki.
Einstaklingsmiðað nám er rétta
leiðin, til þess að það geti gengið
upp þurfum við að treysta skóla-
samfélaginu okkar.
Ég setti af stað vinnuhóp sem á að
skila tillögum um framtíðarskipu-
lag samræmdra prófa á Íslandi. Það
er mikilvægt að nota tækifærið og
rýna í framkvæmdina og framtíð-
ina,“ segir Lilja. Hún segist hafa lagt
brýna áherslu á að þarfir nemenda
yrðu settar í forgang. „Því sumir
nemenda gátu klárað prófið, aðrir
ekki. Þessi árgangur fær ekki sam-
ræmt mat á sínum árangri,“ segir
Lilja.
„Mér finnst að kennarar og skólar
eigi að hafa meira um það að segja
hvernig námsmat fer fram, hvernig
fyrirlögnin er. Í þeim ríkjum sem
standa sig best er kennurum und-
antekningarlaust treyst til að meta
nemendur sína.“
Lilja hefur mikinn áhuga á vel-
gengni Finna. „Ég hef kynnt mér
menntakerfi þeirra, sér í lagi hvern-
ig það hefur þróast í kreppum eða
niður sveiflum í efnahagslífinu. Í
þeirra anda ætti mottóið okkar líka
20%
Þeirra sem fara í iðn-
nám fá ekki samning
og eru í óvissu um
sitt nám.
Finnland
Finnsk börn verja,
samkvæmt OECD,
minni tíma en börn
allra annarra OECD-ríkja í skólastofu.
l Eitt samræmt próf alla skyldu-
skólagönguna. Kennarar fara yfir,
ekki tölvur.
l Nemendur fá meiri tíma fyrir
sig sjálfa utan kennslustofunnar.
Heimanám minna en gengur og
gerist innan OECD. Fá einnig lengri
frímínútur. Nemendum því leyft
að leika sér meira.
l Kennarar á neðri skólastigum
njóta álíka virðingar og háskóla-
prófessorar og fá greitt í samræmi
við það.
l Samkvæmt TED fær einn af
hverjum tíu sem sækja um kenn-
aranám í Finnlandi inngöngu.
l Áhersla sett á samfélagslegan
þroska nemenda. Skólar bjóða
upp á ýmsar tómstundir og eru
nemendur hvattir til þátttöku.
l Gagnvirk kennsla. Kennarar hvattir
til rökræðna og samræðna við
nemendur sína í stað fyrirlestra
einna saman.
l Sem nemur 8.519 Bandaríkjadöl-
um varið í hvern nemanda á ári.
Kanada
Menntakerfið
mismunandi eftir
fylkjum. Sé horft til Al-
berta, Bresku-Kólumbíu og Quebec
væru fylkin á meðal fimm efstu
ríkja í PISA-könnunum þegar horft er
til raunvísindamenntunar.
l Andreas Schleicher, framkvæmda-
stjóri menntamálasviðs OECD,
sagði við BBC í fyrra að leiðar-
stefið í kanadískum mennta-
málum væri jafnrétti. Þrátt fyrir
mismunandi áherslur fylkja hefðu
þau öll að leiðarljósi að veita
nemendum jöfn tækifæri.
l Þetta endurspeglast í því að börn
innflytjenda í Kanada mælast jafn
vel og börn innfæddra. Slíkt er
sjaldgæft.
l Mikil áhersla lögð á læsi. Skýr for-
gangsröðun.
l Í Ontario er til að mynda þrennt í
forgangi: Læsi, stærðfræði og að
útskrifa sem flesta úr framhalds-
skóla.
l Sem nemur 9.130 Bandaríkjadöl-
um varið í hvern nemanda á ári.
Fyrirmyndarríkin
að vera: Við skiljum engan eftir.
Það sem þeim hefur tekist og við
verðum að gera er að beita snemm-
tækri íhlutun. Við þurfum að for-
gangsraða með skilvirkari hætti í
þágu þeirra sem mæta áskorunum
í menntakerfinu. Samfélagslegur
ábati þess er margfaldur. Það mun
skila árangri. Við erum að gera þetta
í öfugri röð. Það er lítil snemmtæk
íhlutun til að byrja með hjá okkur
en svo eykst hún með aldri nem-
enda. Þessu þurfum við að breyta,“
segir Lilja.
Hvað með stuðning til nemenda?
LÍN? Það eru mun færri sem halda
nú út til náms. „Ég hugsa að það sé
tvennt sem gerir það að verkum að
færri fara út að læra. Það er aukið
námsframboð hér á landi og það
er ódýrara. Þá gætu kjör lána hjá
LÍN haft áhrif. Ég er með málefni
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
til skoðunar og vil kanna kjörin í
samanburði við kjör nemenda í
nágrannalöndum. Íslenskir nem-
endur taka frekar lán hjá norræn-
um lánasjóðum en hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna ef þeir geta.
Þarna er hætta á ferð, speki lekinn
gæti orðið mikill.“
Lilja segir að aðgerðir gegn brott-
hvarfi nemenda séu þegar farnar að
skila árangri. „Snemmtæk íhlutun
mun þó skipta mestu máli hvað
varðar brotthvarf. Við þurfum einn-
ig að efla starfs- og námsráðgjöf. Við
stefnum að því að 60% þeirra sem
fara í framhaldsskóla útskrifist.
Tölur yfir brautskráða hafa verið að
færast úr 48% í 55%. Brotthvarfið er
mun meira hjá strákum. En mögu-
leikarnir eru margir, til dæmis í
fjarnámi. Þá er ráðuneytið komið
í samstarf við heilbrigðisráðuneyti
um bætta sálfræðiþjónustu í fram-
haldsskólum.“
Lilja segist vilja sjá meiri teng-
ingu milli efnahags- og mennta-
mála. „Hvaðan er fólk að útskrifast?
Hvernig verður atvinnulífið 2030?
Hvaða menntun verður eftirsóknar-
verð? Við vitum að við þurfum að
efla þátt verk-, iðn- og starfsnáms
og tæknigreina. Líka nýsköpunar og
lista. Gott dæmi eru verkefni Sjávar-
klasans, þar hefur orðið mikil fram-
þróun.“
Hin svokallaða 25 ára regla var
sett í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks árið
2015 þar sem 25 ára og eldri eru
settir aftar í forgangsröðina þegar
nemendur eru innritaðir í fram-
haldsskóla. Fjöldatakmarkanirnar
tóku síðan gildi áramótin 2015-
2016. Lilja vill fella þessa reglu úr
gildi. Hvers vegna? „Ég vil senda þau
skilaboð að menntun skipti máli,
fyrir alla. Þú hefur tækifæri í fram-
tíðinni þótt þú hafir horfið frá námi.
Nemendur eldri en 25 ára geta líka
sótt sér framhaldsmenntun og eiga
að gera það. Fólk verður að finna að
það hafi aðgengi að menntun. Svo
höfum við líka aukið fjármagn til
framhaldsskólanna og fjármunir á
hvern nemanda aukast vegna stytt-
ingar námstímans,“ segir Lilja.
Hvað er brýnast í verkefnum
fram undan? „Ég vil að við stönd-
um okkur betur í alþjóðlegum
samanburði. Ég vil sjá brotthvarfið
minnka. Ég vil sjá háskólastigið efl-
ast. Ég vil þjóðarsátt um menntun
á Íslandi. Ég vil meiri stuðning við
kennarana okkar. Ég vil að öll börn
njóti menntunar. Börnum af erlend-
um uppruna vegnar ekki jafn vel og
innfæddum. Þau mega ekki vera
jaðarsett og þar skortir bæði náms-
efni og aðstoð. Ég vil bæta árangur
okkar í verk-, iðn- og tækninámi
og auka samvinnu við atvinnulífið.
Um 20% þeirra sem fara í iðnnám
fá ekki samning og eru í óvissu um
sitt nám, það er ólíðandi. Í skýrslu
frá Samtökum iðnaðarins kemur
fram að mun fleiri sækja tækninám í
Þýskalandi en á Íslandi. Við verðum
að huga betur að fjölbreytninni.
Ég hef einfaldlega þá staðföstu
trú að ef við einblínum ekki og fjár-
festum í menntun þá munum við
dragast verulega aftur úr í öllum
skilningi. Menntun er gríðarlegt
hreyfiafl, við höfum tækifærin í
hendi til að gera betur. En við þurf-
um öll að vinna að þessu saman.“
Ég er með málefni lána-
sjóðs íslenskra náms-
manna til skoðunar
og vil kanna kjörin í
samanburði við kjör
í nágrannalöndum.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-F
9
6
8
1
F
4
C
-F
8
2
C
1
F
4
C
-F
6
F
0
1
F
4
C
-F
5
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K