Fréttablaðið - 24.03.2018, Síða 32

Fréttablaðið - 24.03.2018, Síða 32
L i l j a A l f r e ð s d ó t t i r , mennta- og menningar-málaráðherra, segist standa frammi fyrir krefjandi áskorunum. „Við erum á ákveðnum tímamótum. Við stöndum okkur ekki nógu vel í samanburði við aðrar þjóðir hvað varðar grunn- færni í lesskilningi, náttúrulæsi og stærðfræði. Einnig er nýliðunar- vandi í kennarastéttinni, ef ekkert verður að gert mun vanta 2.000 kennara árið 2030,“ segir Lilja og bætir við að ljóst sé að við munum ekki stuðla að hugverkadrifnu og skapandi samfélagi ef ekki verði sköpuð sterk umgjörð í kringum kennara. Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýgerðan kjarasamning FG og Sambands íslenskra sveitarfélaga í vikunni. Nei sögðu 68,52% en já sögðu 29,74%. „Það þarf að skapa þjóðarsátt um menntun á Íslandi. Nú felldu kennarar kjarasamninga. Það þarf að fara vel yfir þau atriði sem urðu til þess. Allar þjóðir sem ná miklum árangri í menntamálum hlúa vel að umgjörðinni í kringum kennara og endurmenntun þeirra. Ég horfi til ríkja sem gera þetta vel, eins og Finnlands og Kanada. Ég lærði í Suður-Kóreu og horfi því líka þangað. Þó við séum gerólíkar þjóðir eigum við margt sameiginlegt í markmiðum okkar og sögu,“ segir Lilja sem stundaði nám í austrænni stjórnmálasögu í Ewahwa-háskóla í Seúl. Hún tók einnig að sér ensku- kennslu í borginni á þessum tíma og þekkir því til menntakerfisins þar. „Í Kóreu er lögð gríðarleg áhersla á menntun og læsi og það á sér skýr- ingar í sögunni. Kóreubúar notuðu kínversk tákn fram á miðja 16. öld. Konungur þess tíma vildi auka læsi og lét þróa sérstakt letur í stað táknanna. Með því jókst almennt læsi í landinu. Konungurinn var staðráðinn í að lágstéttin og konur skyldu læra að lesa. Kórea var eitt fátækasta ríki veraldar eftir stríðið 1953 en hagsæld þar jókst með auk- inni áherslu á menntun,“ segir Lilja. Er ekki mikilvægt að horfast í augu við mistök? Hvernig stendur á því að helmingur grunnskóla fékk að innleiða lestraraðferð sem athug- anir Menntamálastofnunar sýna og virtir fræðimenn segja einnig að sé ekki ákjósanleg til lestrarkennslu á byrjendastigi, Byrjendalæsi? „Það er ávallt mikilvægt að horfast í augu við mistök og við eigum að vera gagnrýnin þegar við tölum um menntun og breytta aðferðafræði. Það verða að vera góðar vísinda- legar rannsóknir að baki breyttum aðferðum. Við þurfum að skoða hvar þessi börn standa núna. Það innleiddu ekki allir skólar þessa aðferð. Hafi þetta mistekist þá þarf að viðurkenna það,“ segir Lilja og ítrekar að þá þurfi strax að snúa af rangri braut. „Mér finnst einnig skorta sam- vinnu á milli skólastiga. Það á að vera ein samfella frá leikskóla upp í háskóla. Góður lesskilningur er grunnforsenda þess að þú getir til- einkað þér aðra færni á leið þinni í gegnum skólakerfið. Þessi færni hefur aldrei verið mikilvægari en nú þegar við undirbúum okkur undir fjórðu iðnbyltinguna,“ segir hún. Lilja segist trúa því að íslenskir nemendur eigi mikið inni hvað varðar niðurstöður úr PISA-könn- unum. Með hvatningu og kynn- ingu á prófinu muni þau standa sig betur. „Ég er viss um að hæfnin er meiri. Ég held að við höfum ekki lagt nógu mikla áherslu á að kynna prófin og tilgang þeirra fyrir for- eldrum og börnum. Nú sýnum við til að mynda hvatningarmyndbönd þar sem nemendur eru brýndir til að taka prófin alvarlega og gera sitt besta.“ Lilja segir að þjóðarátak um menntun feli í sér hugarfarsbreyt- ingu og virkari þátttöku foreldra. „Íslenskir foreldrar eru duglegir Enginn verður skilinn eftir Íslenskt menntakerfi stendur á tímamótum að sögn Lilju Alfreðs- dóttur menntamálaráðherra sem lítur til Finnlands og Kanada. Börn af erlendum uppruna megi ekki vera jaðarsett og skorti aðstoð. „Í Kóreu er lögð gríðarleg áhersla á menntun og læsi og það á sér skýringar í sögunni,“ segir Lilja. FréttabLaðið/SteFán að styðja við börnin sín. Þeir fylgja þeim í tómstundastarfi, fara með þeim í keppnisferðalög og fleira. Ég vil að við yfirfærum þessa ástríðu og sýnum hana gagnvart náminu og skólunum líka. Ég held það gæti haft mikil áhrif til góðs,“ segir hún. Gæti það orðið okkur til fram- dráttar að draga úr eða minnka vægi samræmdra prófa? Finnar mæla samræmt aðeins einu sinni á náms- ferli barna. Þurfum við svona margar mælingar? „Finnar notast við fá próf, Kóreubúar styðjast við mörg próf. Ég held að það verði okkur til framdráttar að treysta kennurum til að meta sína nemendur. Það þarf að vera ákveðin breidd í náminu og mat kennara á nemendum sínum er mikilvægt. Það er mikið brotthvarf í framhaldsskólum sem gefur okkur vísbendingar um að þau komi ekki nægilega undirbúin til náms eða séu ekki á réttum stað; að námið henti þeim ekki. Einstaklingsmiðað nám er rétta leiðin, til þess að það geti gengið upp þurfum við að treysta skóla- samfélaginu okkar. Ég setti af stað vinnuhóp sem á að skila tillögum um framtíðarskipu- lag samræmdra prófa á Íslandi. Það er mikilvægt að nota tækifærið og rýna í framkvæmdina og framtíð- ina,“ segir Lilja. Hún segist hafa lagt brýna áherslu á að þarfir nemenda yrðu settar í forgang. „Því sumir nemenda gátu klárað prófið, aðrir ekki. Þessi árgangur fær ekki sam- ræmt mat á sínum árangri,“ segir Lilja. „Mér finnst að kennarar og skólar eigi að hafa meira um það að segja hvernig námsmat fer fram, hvernig fyrirlögnin er. Í þeim ríkjum sem standa sig best er kennurum und- antekningarlaust treyst til að meta nemendur sína.“ Lilja hefur mikinn áhuga á vel- gengni Finna. „Ég hef kynnt mér menntakerfi þeirra, sér í lagi hvern- ig það hefur þróast í kreppum eða niður sveiflum í efnahagslífinu. Í þeirra anda ætti mottóið okkar líka 20% Þeirra sem fara í iðn- nám fá ekki samning og eru í óvissu um sitt nám. Finnland Finnsk börn verja, samkvæmt OECD, minni tíma en börn allra annarra OECD-ríkja í skólastofu. l Eitt samræmt próf alla skyldu- skólagönguna. Kennarar fara yfir, ekki tölvur. l Nemendur fá meiri tíma fyrir sig sjálfa utan kennslustofunnar. Heimanám minna en gengur og gerist innan OECD. Fá einnig lengri frímínútur. Nemendum því leyft að leika sér meira. l Kennarar á neðri skólastigum njóta álíka virðingar og háskóla- prófessorar og fá greitt í samræmi við það. l Samkvæmt TED fær einn af hverjum tíu sem sækja um kenn- aranám í Finnlandi inngöngu. l Áhersla sett á samfélagslegan þroska nemenda. Skólar bjóða upp á ýmsar tómstundir og eru nemendur hvattir til þátttöku. l Gagnvirk kennsla. Kennarar hvattir til rökræðna og samræðna við nemendur sína í stað fyrirlestra einna saman. l Sem nemur 8.519 Bandaríkjadöl- um varið í hvern nemanda á ári. Kanada Menntakerfið mismunandi eftir fylkjum. Sé horft til Al- berta, Bresku-Kólumbíu og Quebec væru fylkin á meðal fimm efstu ríkja í PISA-könnunum þegar horft er til raunvísindamenntunar. l Andreas Schleicher, framkvæmda- stjóri menntamálasviðs OECD, sagði við BBC í fyrra að leiðar- stefið í kanadískum mennta- málum væri jafnrétti. Þrátt fyrir mismunandi áherslur fylkja hefðu þau öll að leiðarljósi að veita nemendum jöfn tækifæri. l Þetta endurspeglast í því að börn innflytjenda í Kanada mælast jafn vel og börn innfæddra. Slíkt er sjaldgæft. l Mikil áhersla lögð á læsi. Skýr for- gangsröðun. l Í Ontario er til að mynda þrennt í forgangi: Læsi, stærðfræði og að útskrifa sem flesta úr framhalds- skóla. l Sem nemur 9.130 Bandaríkjadöl- um varið í hvern nemanda á ári. Fyrirmyndarríkin að vera: Við skiljum engan eftir. Það sem þeim hefur tekist og við verðum að gera er að beita snemm- tækri íhlutun. Við þurfum að for- gangsraða með skilvirkari hætti í þágu þeirra sem mæta áskorunum í menntakerfinu. Samfélagslegur ábati þess er margfaldur. Það mun skila árangri. Við erum að gera þetta í öfugri röð. Það er lítil snemmtæk íhlutun til að byrja með hjá okkur en svo eykst hún með aldri nem- enda. Þessu þurfum við að breyta,“ segir Lilja. Hvað með stuðning til nemenda? LÍN? Það eru mun færri sem halda nú út til náms. „Ég hugsa að það sé tvennt sem gerir það að verkum að færri fara út að læra. Það er aukið námsframboð hér á landi og það er ódýrara. Þá gætu kjör lána hjá LÍN haft áhrif. Ég er með málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna til skoðunar og vil kanna kjörin í samanburði við kjör nemenda í nágrannalöndum. Íslenskir nem- endur taka frekar lán hjá norræn- um lánasjóðum en hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna ef þeir geta. Þarna er hætta á ferð, speki lekinn gæti orðið mikill.“ Lilja segir að aðgerðir gegn brott- hvarfi nemenda séu þegar farnar að skila árangri. „Snemmtæk íhlutun mun þó skipta mestu máli hvað varðar brotthvarf. Við þurfum einn- ig að efla starfs- og námsráðgjöf. Við stefnum að því að 60% þeirra sem fara í framhaldsskóla útskrifist. Tölur yfir brautskráða hafa verið að færast úr 48% í 55%. Brotthvarfið er mun meira hjá strákum. En mögu- leikarnir eru margir, til dæmis í fjarnámi. Þá er ráðuneytið komið í samstarf við heilbrigðisráðuneyti um bætta sálfræðiþjónustu í fram- haldsskólum.“ Lilja segist vilja sjá meiri teng- ingu milli efnahags- og mennta- mála. „Hvaðan er fólk að útskrifast? Hvernig verður atvinnulífið 2030? Hvaða menntun verður eftirsóknar- verð? Við vitum að við þurfum að efla þátt verk-, iðn- og starfsnáms og tæknigreina. Líka nýsköpunar og lista. Gott dæmi eru verkefni Sjávar- klasans, þar hefur orðið mikil fram- þróun.“ Hin svokallaða 25 ára regla var sett í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks árið 2015 þar sem 25 ára og eldri eru settir aftar í forgangsröðina þegar nemendur eru innritaðir í fram- haldsskóla. Fjöldatakmarkanirnar tóku síðan gildi áramótin 2015- 2016. Lilja vill fella þessa reglu úr gildi. Hvers vegna? „Ég vil senda þau skilaboð að menntun skipti máli, fyrir alla. Þú hefur tækifæri í fram- tíðinni þótt þú hafir horfið frá námi. Nemendur eldri en 25 ára geta líka sótt sér framhaldsmenntun og eiga að gera það. Fólk verður að finna að það hafi aðgengi að menntun. Svo höfum við líka aukið fjármagn til framhaldsskólanna og fjármunir á hvern nemanda aukast vegna stytt- ingar námstímans,“ segir Lilja. Hvað er brýnast í verkefnum fram undan? „Ég vil að við stönd- um okkur betur í alþjóðlegum samanburði. Ég vil sjá brotthvarfið minnka. Ég vil sjá háskólastigið efl- ast. Ég vil þjóðarsátt um menntun á Íslandi. Ég vil meiri stuðning við kennarana okkar. Ég vil að öll börn njóti menntunar. Börnum af erlend- um uppruna vegnar ekki jafn vel og innfæddum. Þau mega ekki vera jaðarsett og þar skortir bæði náms- efni og aðstoð. Ég vil bæta árangur okkar í verk-, iðn- og tækninámi og auka samvinnu við atvinnulífið. Um 20% þeirra sem fara í iðnnám fá ekki samning og eru í óvissu um sitt nám, það er ólíðandi. Í skýrslu frá Samtökum iðnaðarins kemur fram að mun fleiri sækja tækninám í Þýskalandi en á Íslandi. Við verðum að huga betur að fjölbreytninni. Ég hef einfaldlega þá staðföstu trú að ef við einblínum ekki og fjár- festum í menntun þá munum við dragast verulega aftur úr í öllum skilningi. Menntun er gríðarlegt hreyfiafl, við höfum tækifærin í hendi til að gera betur. En við þurf- um öll að vinna að þessu saman.“ Ég er með málefni lána- sjóðs íslenskra náms- manna til skoðunar og vil kanna kjörin í samanburði við kjör í nágrannalöndum. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 C -F 9 6 8 1 F 4 C -F 8 2 C 1 F 4 C -F 6 F 0 1 F 4 C -F 5 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.