Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 42

Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 42
FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 teppaflísar Sterkar og einfaldar í lögn O ttó A ug lýsin g astofa Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Unnar er að vonum ánægður með viðtökurnar sem staðurinn Icelandic Street Food hefur fengið. MYND/ANTON BRINK Íslensk kjötsúpa er einn af þeim þremur réttum sem Icelandic Street Food býður upp á. MYND/ANTON BRINK Veitingastaðurinn Icelandic Street Food á Lækjargötu er nýr, en hefur slegið algjör­ lega í gegn. Staðurinn býður upp á hefðbundinn íslenskan heimilis­ mat fyrir ferðamenn og er í fyrsta sæti á lista vefsíðunnar TripAdvisor yfir bestu veitingastaði borgarinnar með tæplega 900 ummæli, en 87% þeirra gefa staðnum fullt hús stiga. „Ég hef verið í alls konar veitinga­ rekstri og fylgt frægum erlendum gestum um landið,“ segir Unnar Helgi Daníelsson, súpukall og stofn­ andi staðarins. „Ég opnaði þennan stað svo bara fyrir sjö mánuðum síðan, svo hann er glænýr, en það er nú þegar búið að skrifa um hann í The Times og American Airlines eru að gera þátt um staðinn sem verður sýndur í öllum vélum félagsins. Þetta hefur undið hratt upp á sig.“ Gerði kjötsúpu að skyndibita „Hugmyndin að staðnum vaknaði þegar ég var í París fyrir átta mán­ uðum. Þar selja margir hefðbund­ inn mat og mér fannst það vanta í senuna hérna heima, að einbeita sér alveg að íslenskum mat,“ segir Unnar. „Mig langaði líka að selja eitthvað sem ég yrði stoltur af að selja og hefði einhverja sögu. Þess vegna henti ég mér í þetta. Ég fékk mjög mikla hjálp frá systur minni, Thelmu Björk, og kærastanum hennar, Sigurði Lauf­ dal, þau eru bæði mjög framarlega í matargerð,“ segir Unnar. „Hún var valin annar besti þjónn á Norður­ löndunum, sem er besti árangur sem Íslendingur hefur náð á þeim vettvangi, og hann var matreiðslu­ maður ársins. Þau hjálpuðu mér að setja þetta allt saman upp, þannig að ég get ekki tekið allan heiðurinn. Það var eins og pabbi sagði, annaðhvort gengur þetta ógeðslega vel eða bara alls ekki. Það fór þann­ ig að þetta gengur ótrúlega vel. Ég held að það sé enginn á landinu sem selur jafn mikið af kjötsúpu og ég,“ segir Unnar. „Ég var fyrstur til að gera kjötsúpu að skyndibita ferðamanna og við seljum svona 400 lítra af kjötsúpu á dag.“ Uppskriftir frá ömmu og afa „Við bjóðum upp á þrjá rétti sem eru allir mjög vinsælir, kjötsúpu, plokkfisk og humarsúpu með skelfiski. Svo eru pönnukökur og hjónabandssæla í eftirmat og þetta er allt gert eftir uppskriftum frá ömmu og afa,“ segir Unnar. „Þau verða einmitt líka í þættinum frá American Airlines, sem er mjög gaman.“ En það fer ekki allur íslenskur matur vel í erlenda gesti. „Hákarl er eitthvað sem þeim finnst viðbjóður,“ segir Unnar. „Ég gef útlendingum hákarl og spila Immigrant Song með Led Zeppelin á meðan þeir borða þetta. Ég segi við þau að þetta sé gömul hefð, ég mæli alls ekki með þessu, þetta sé það versta sem um getur og að ég myndi ekki gefa versta óvini mínum þetta, en ef þau vilji prófa sé það meira en velkomið. Þá vilja allir smakka. Fæstum finnst hann góður, þó það sé alltaf einn og einn, en sumir segja að þetta sé bara eins og sterkur ostur.“ Vill bjóða útlendinga velkomna Þegar Unnar er spurður hvernig staðurinn komst í fyrsta sæti á Trip­ Advisor segir hann að það hafi fyrst gerst hægt og rólega, en svo mjög hratt. „Við komumst í fyrsta sæti þegar það voru 70 manns búnir að skrifa um staðinn og síðan hafa 800 manns í viðbót skrifað ummæli, en við fáum um það bil 150 ummæli á mánuði. Meirihlutinn hefur verið ánægður,“ segir hann. „Auðvitað getur maður aldrei glatt alla, en við reynum okkar besta til að veita góða þjónustu og bjóða erlenda gesti velkomna til lands­ ins. Mér finnst það skipta rosalega miklu máli,“ segir Unnar. „Ég man að áður en ég opnaði flautaði ég á túrista í umferðinni, en nú er ég bara sallarólegur. Maður verður að fatta að þetta er fólk sem er búið að bjarga hagkerfinu hérna. Auðvitað er þessi bær orðinn svolítið mikill túristabær, en þetta skiptir máli.“ Breytir ekki því sem virkar Unnar segir að það standi ekki til að breyta neinu í rekstri staðarins. „Ég ætla bara að halda áfram að gera það sem gengur vel. Þetta er einfalt og þetta virkar, svo ég sé enga ástæðu til að breyta,“ segir hann. „Það koma stundum ummæli um að matseðill­ inn sé takmarkaður, en ég myndi bara ekki ráða við allan þennan fjölda fólks ef svo væri ekki. Þetta er líka ódýr matur í framleiðslu og maður vill halda verðinu í góðu lagi líka, því krónan er sterk.“ Það eina sem Unnar myndi vilja sjá breytast væri að fá fleiri Íslend­ inga í heimsókn. „Bæði Íslendingar og útlendingar eru mjög ánægðir með matinn,“ segir hann. „Íslend­ ingar eru bara enn þá að uppgötva okkur.“ Hefðbundinn íslenskur matur slær í gegn Unnar Helgi Daní- elsson opnaði nýlega veitinga- staðinn Icelandic Street Food, sem selur hefðbund- inn íslenskan mat. Staðurinn var fljótur að komast í fyrsta sæti á lista TripAdvisor yfir bestu veitinga- staði borgarinnar. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 D -0 8 3 8 1 F 4 D -0 6 F C 1 F 4 D -0 5 C 0 1 F 4 D -0 4 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.