Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 44
Háskólinn í Reykjavík (HR) bauð fyrst upp á námslínu í hótelstjórnun og veitinga-
húsarekstri árið 2015. Námið er
byggt upp og rekið í samstarfi við
einn af virtustu skólum heims í
hótel- og veitingahúsarekstri, César
Ritz Colleges í Sviss.
Guðmunda Smáradóttir, for-
stöðumaður hjá Opna Háskól-
anum í HR, segir að HR hafi greint
brýna þörf á markaðnum fyrir
nám af þessu tagi enda hafi ferða-
þjónustan vaxið mjög hratt á
Íslandi á undanförnum árum. „Með
þessu námi erum við að höfða til
einstaklinga sem hafa hug á því að
vinna innan ferðaþjónustunnar
eða sinna störfum sem tengjast
hótelstjórnun og veitingahúsa-
rekstri á einhvern hátt. Námið
er á grunnháskólastigi og miðar
að því undirbúa nemendur fyrir
alþjóðlegar stöður innan hótel- og
veitingahúsageirans.“
Tenging við
atvinnulífið
Eins og fyrr segir
er námið rekið
í samstarfi við
einn virtasta
skóla heims í
hótel- og veit-
ingahúsarekstri.
„Nemendum
gefst kostur á að
ljúka fyrsta árinu af
þremur hér á landi og
útskrifast með alþjóð-
legt skírteini í hótelstjórnun
og veitingahúsarekstri. Í framhaldi
eiga nemendur þess svo kost að
ljúka námi sínu til BIB-gráðu (e.
Bachelor of International Business)
í Sviss. Námið er fjölbreytt og hag-
nýtt og helsti styrkleiki þess er ekki
síst þessi tenging við atvinnulífið.
Kennsla fer fram á ensku og koma
kennarar frá HR og úr íslensku
atvinnulífi.“
Fjölbreytt og
afar hagnýtt nám
Frá útskrift nemenda árið 2016.
Útskriftarnemendur árið 2017. Þeirra bíða fjölbreytt og spennandi verkefni.
Hluti útskriftarhópsins árið 2016. Myndin er tekin í Sviss þar sem þau tóku hluta námsins. MYNDIR/HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Námslína í hótel-
stjórnun og veit-
ingahúsarekstri
hefur verið kennd
við Háskólann í
Reykjavík síðan
2015. Námið er
byggt upp í sam-
starfi við einn af
virtustu skólum
heims í hótel- og
veitingahúsa-
rekstri.
og áhersla á umhverfissjónarmið
hafa vaxið og dafnað innan hótel-
og veitingahúsaumhverfisins
um allan heim. Fleiri alþjóðlegar
keðjur hafa komið inn á íslenska
markaðinn og með tilkomu þeirra
hafa gæðin ekki hvað síst vaxið.
Áhugi á því að starfa innan hótel-
og veitingahúsageirans hefur aukist
samhliða auknum gæðum og sér-
hæfingu á markaði og við merkjum
svo sannarlega vaxandi áhuga á
náminu samhliða þessari þróun.“
Áhugi á því að
starfa innan hótel-
og veitingahúsageirans
hefur aukist samhliða
auknum gæðum og
sérhæfingu á markaði.
Guðmunda Smáradóttir
Eftirsóttir nemendur
Eftir útskrift hafa
nemendur m.a.
valist í alþjóðlegar
stöður innan
hótel- og veit-
ingahúsageirans
að sögn Guð-
mundu. „Hluti
námsins byggist
upp á starfsnámi
og hafa íslenskir
nemendur verið mjög
eftirsóttir og valist til
starfa innan þekktra lúxus-
hótela víðsvegar um heiminn s.s.
Emirates Palace í Abú Dabí, Schloss
Elmau í Þýskalandi, Amari Phuket
í Taílandi og Marrriot í London svo
dæmi séu tekin.“
Hún segir margt hafa breyst í
hótel- og veitingahúsageiranum á
undanförnum 5-10 árum sem hafi
haft áhrif á uppbyggingu námsins.
„Frekari menntun, gæði þjónustu
Heildsalan Allt fyrir hótel sérhæfir sig í þörfum hótela og veitingastaða
hér á landi. Fyrirtækið býður
m.a. upp á mikið úrval af sængur-
fatnaði, dúkum, handklæðum
og öllum gerðum af líni í góðum
gæðum, sápur ásamt áfyllingum,
smávörur fyrir hótelherbergi og
heildarlausnir fyrir glugga, að
sögn Ellenar Drafnar Björnsdóttur,
stofnanda og framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. „Segja má að helstu
vöruflokkanir séu almennt lín
fyrir hótel og veitingahús, sápur
með áfyllingum og smávörur. Við
bjóðum upp á heildarlausn fyrir
hótelherbergið og þar eru gardínur
mikilvægur hluti af heildinni. Ég
er með mikið úrval af efnum og
sérstaklega myrkvatjöld í öllum
litum auk gardínubrauta og kappa
en allt er saumað eftir máli. Þá kem
ég á staðinn, tek út rýmið með
viðskiptavininum og sameiginlega
finnum við heildarlausn sem hæfir
hverju herbergi fyrir sig.“
Tíminn skiptir máli
Hún segir viðskiptavini sína afar
ánægða með þær heildarlausnir
sem í boði eru. „Í dag skiptir tími
miklu máli fyrir viðskiptavininn
og hefur það reynst vel að heildar-
lausn þjónustunnar sé til staðar.
Það hefur reynst fyrirtækinu mínu
vel að vera í góðri samvinnu við
viðskiptavinina. Að geta boðið upp
á sérsaumaðar gardínur og allt að
sturtuhettum gefur þeim sem sjá
um hótelin og gististaðina meiri
tíma til að sinna öðru en innkaup-
um sem er mjög tímafrekt. Það má
því segja að við bjóðum upp á hag-
stæð verð, skjótan afhendingar-
tíma og framúrskarandi þjónustu.“
Allar upplýsingar um Allt fyrir hótel
er á heimasíðunni afh.is og alltfyrir-
hotel.is auk þess sem Ellen Dröfn
er með símanúmerið 662-5424 og
netfangið afh@afh.is.
Allt fyrir hótel og veitingastaði
Allt fyrir hótelið sérhæfir sig í þörfum hótela og veitingastaða með fjölda vöruflokka.
Fyrirtækið býður upp á hagstæð verð, skjótan afhendingartíma og framúrskarandi þjónustu.
Allt fyrir hótel býður upp á heildar-
lausnir sem henta viðskiptavinum vel.
Ellen Dröfn Björnsdóttir er framkvæmdastóri Allt fyrir hótel.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-1
B
F
8
1
F
4
D
-1
A
B
C
1
F
4
D
-1
9
8
0
1
F
4
D
-1
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K