Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 2
hef aldrei sagt að Løvland sé, eða
hafi verið viðriðinn önnur deilu-
mál,“ segir í svari forstjóra TONO.
Á blaðamannafundi Jóhanns
Helgasonar á miðvikudag dró Jon
Kjell Seljseth, samstarfsmaður
Jóhanns og um skeið samstarfs-
maður Løvlands, upp þá mynd af
Løvland að hann hafi haft tilhneig-
ingu til að fara frjálslega með höf-
undarvarið efni annarra tónskálda.
Jóhann segir að frá blaðamanna-
fundi hans á miðvikudag hafi málið
fyrst og fremst vakið athygli hér
innanlands. Mikilvægt sé að það
veki eftirtekt erlendis með fjöl-
miðlaumfjöllun svo það komi fyrir
augu fjárfesta sem væru þá til í að
leggja fé í málsókn ytra sem kosta
muni yfir eitt hundrað milljónir.
„Ég vona það að minnsta kosti því
málið er verðugt,“ segir tónskáldið.
gar@frettabladid.is
Veður
Á morgun er spáð hægum vindi og
bjartviðri, en stöku éljum úti við
norðurströndina. Fremur kalt í veðri.
sjá síðu 50
Sóknarfærin í fjórðu iðnbyltingunni rædd
Á nýjum stað Nýsköpunarfyrirtækið Valka, sem hannar hátæknilausnir fyrir sjávarútveg, flutti á dögunum í nýtt húsnæði. Af því tilefni boðaði
fyrirtækið til fagnaðar í gær og efndi jafnframt til ráðstefnu um sóknarfæri Íslendinga í fjórðu iðnbyltingunni. Helgi Hjálmarsson, framkvæmda-
stjóri Völku, sýndi Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, starfsemi fyrirtækisins. Fréttablaðið/anton brink
samfélag „Það er bara núna á allra
næstu dögum,“ segir Páll Kristjáns-
son, lögmaður Sunnu Elviru Þor-
kelsdóttur sem er laus úr farbanni
og hyggur nú á heimkomu eftir að
hafa lamast í slysi á heimili sínu í
Malaga á Spáni í janúar.
„Það er ekki búið að negla niður
dagsetninguna. Fjölskyldan fór út til
hennar yfir páskahátíðina og það er
bara verið að gera ráðstafanir með
flug og annað slíkt. Mér skilst að það
sé sjúkraflug á bið, búið að borga
fyrir það, þannig að hún ætti að
komast heim á allra næstu dögum,“
segir Páll. Greint var frá því í síðustu
viku að farbanni sem Sunna hefur
sætt undanfarnar vikur hefði verið
aflétt. Sunna féll niður af svölum á
heimili sínu í 17. janúar síðastliðinn
með þeim afleiðingum að hún hlaut
mænuskaða og er lömuð fyrir neðan
brjóst.
Eiginmaður hennar, Sigurður
Kristinsson, hefur setið í gæsluvarð-
haldi síðan hann kom til Íslands
eftir slysið, vegna gruns um aðild að
fíkniefnainnflutningi. Í kjölfar þess
máls var Sunna Elvira úrskurðuð í
farbann úti á Spáni.
Aðspurður hvort Sunna sé komin
með vegabréfið sitt og annað sem
hún var svipt vegna farbannsmáls-
ins segir Páll svo vera.
„Hún er komin með allt sem hún
þarf, að mér skilst.“ – smj
Styttist í að
Sunna komi
heim frá Spáni
Sunna Elvira Þorkelsdóttir hefur
legið á spítala á Spáni.
Gríptu lyfin á leiðinni heim
Apótek Garðarbæjar í alfaraleið
Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010
dómsmál „Þetta varðar alla höf-
unda,“ segir Jóhann Helgason
tónlistarmaður um mál sitt gegn
Universal Music og norska lagahöf-
undinum Rolf Løvland.
Jóhann segir að hann hafi á sínum
tíma snúið sér til STEFs, sem gætir
höfundarréttargreiðslna fyrir tón-
skáld hérlendis, vegna þess að hann
taldi lagið You Raise Me Up í raun
vera lag hans Söknuð sem út kom
á árinu 1977. STEF hafi fengið tvo
sérfræðinga til að meta lögin og þeir
komist að því að þau væru sláandi
lík.
STEF hafi í framhaldinu sent
systursamtökum sínum í Nor-
egi, TONO, erindi um málið í maí
2004 enda var Norðmaðurinn Rolf
Løvland skráður höfundur You
Raise Me Up. Jóhann rifjar upp að
hann hafi á þessum tíma setið fund
með þáverandi framkvæmdastjóra
STEFs, Eiríki Tómassyni sem síðar
varð dómari við Hæstarétt Íslands.
Eiríkur hafi sagt frá símtali sem
hann átti við Cato Strøm, forstjóra
TONO, vegna málsins.
„Þá sagði Eiríkur að hann hefði
heyrt í Cato og að Cato hefði sagt
við sig að þetta kæmi sér ekki á
óvart, þetta væri ekki í fyrsta skipti
sem mál af þessu tagi kæmi á hans
borð varðandi þennan höfund,“
segir Jóhann og bætir því við að
hann hafi á fimmtudag rætt við
Eirík til að ganga úr skugga um að
þetta væri rétt munað. „Eiríkur
sagðist muna vel eftir þessu og að
ég mætti hafa það eftir honum.“
Cato, sem enn er forstjóri TONO,
hafnaði þessari frásögn hins vegar
algerlega í svari til Fréttablaðsins í
gær. „Ég verð að undirstrika að ég
Forstjóri norska STEFs
hafnar íslenskri frásögn
Þáverandi framkvæmdastjóri höfundarréttarsamtakanna STEFs hafði eftir for-
stjóra systursamtakanna í Noregi að honum kæmi ekki á óvart að komið væri
upp lagastuldarmál tengt Rolf Løvland. Norski forstjórinn neitar þeirri frásögn.
Jóhann Vilhjálmsson, sonur Vilhjálms Vilhjálmssonar sem samdi textann við
Söknuð og söng, mætti á blaðamannafund tónskáldsins. Fréttablaðið/EyÞór
Þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem
mál af þessu tagi kæmi á
hans borð varðandi þennan
höfund.
Jóhann Helgason,
tónlistarmaður
Viðskipti Samið hefur verið um að
Samkaup kaupi valdar verslanir í
eigu Basko.
Ekki er gefið upp hvaða verslana
samkomulagið nær til en Basko
rekur fjölda verslana undir vöru-
merki 10-11, Iceland, Háskólabúðin
og Inspired By Iceland.
Samkaup rekur um 50 verslanir
á 33 stöðum um allt land, bæði lág-
vöruverðsverslanir og aðrar. Helstu
vörumerki Samkaupa eru Nettó,
Kjörbúðin og Krambúð. Starfsmenn
félagsins eru um 1.000 í rúmlega 500
stöðugildum.
Samkomulagið er enn háð fyrir-
vörum, meðal annars um áreiðan-
leikakönnun og samþykki Sam-
keppniseftirlitsins. Í tilkynningu
sem send var fjölmiðlum vegna
viðskiptanna er tekið fram að samn-
ingsaðilar muni ekki tjá sig frekar
um viðskiptin þar til fyrirvörum
hefur verið aflétt. – jhh
Eigandi 10-11
selur verslanir
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-5
C
D
4
1
F
6
0
-5
B
9
8
1
F
6
0
-5
A
5
C
1
F
6
0
-5
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K