Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 96
Gott er að fela seðla á góðum stað til
að grípa í ef neyðarástand skapast.
Á ferðalagi nota flestir kredit- eða debetkort til að greiða fyrir vörur og þjónustu,
enda er það bæði handhægt og
þægilegt en ef kortinu er hafnað
eða peningaveskið týnist eru
góð ráð dýr. Þá er ágætt að eiga
peningaseðla einhvers staðar í
handraðanum til að grípa til ef
neyðarástand skapast. Seðlana ætti
ekki að geyma í peningaveskinu
heldur koma þeim fyrir á öðrum
stað. Ráð er að geyma þá t.d. í
sokkunum eða í skóm, í leynivasa á
buxum eða jakka, eða koma þeim
fyrir á góðum stað í snyrtiveskinu.
Brjóstahaldarinn er líka frábær
geymslustaður, sem og húfur og
hattar. Svo er hægt að sauma seðla
innan í jakka- eða kápufóður en
þá þarf auðvitað að passa vel upp
á flíkina.
Peningar
til öryggis
Það þarf enginn að fara svangur
heim frá Evrópu í sumar.
Fjölmargar skemmtilegar matarhátíðir eru í boði í Evr-ópu í sumar sem tilvalið er
að heimsækja í sumarfríinu. Ef
einhver tekur sumarfríið snemma
í Suður-Evrópu má kíkja á Gelato
Festival sem haldin er í Flórens á
Ítalíu helgina 20.-22. apríl. Hátíðin
er helguð ítalska ísnum og flæðir
bragðgóður ís bókstaflega um
borgina þessa dagana. Prague
Food Festival verður haldin í tólfta
sinn dagana 25.-27. maí í Prag í
Tékklandi. Á þremur dögum gefst
gestum kostur á að bragða á því
besta í tékkneskri matargerð á
ýmsum veitingastöðum, götu-
básum og krám í einni fallegustu
borg Evrópu. Taste of Amsterdam
er haldin dagana 1.-3. júní í Hol-
landi þar sem 24 veitingastaðir
bjóða yfir 100 ljúffenga rétti. Auk
þess er boðið upp á kennslu og
glæsilegan útimarkað. A Taste
of Stockholm fer fram dagana
5.-10. júní í höfuðborg Svíþjóðar
og laðar til sín árlega um 350.000
gesti. Hátíðin fer fram í Kungs-
trädgården í miðborg Stokkhólms
og þar bjóða bestu veitingastaðir
landsins, matarvagnar og smá-
framleiðendur upp á flest það
besta sem sænsk matargerð hefur
upp á að bjóða.
Unnendur flatbökunnar og
ítalskrar matargerðar ættu að
staldra við í Napolí á Ítalíu dagana
16.-24. júní þar sem hátíðin Pizza
Village verður haldin. Um er að
ræða stærstu pitsuhátíð veraldar
og óhætt að lofa gestum bragð-
góðum pitsum af öllum stærðum
og gerðum.
Matarhátíðir
í Evrópu í sumar
Lystiskipið Symphony of the Seas er engin smásmíði.
NORDICPHOTOS/GETTY
Í dag siglir stærsta skemmtiferðaskip sögunnar úr höfn með farþega í fyrsta sinn. Skipið, sem heitir Symphony of
the Seas, er 228,081 tonn að þyngd og er
því meira en 1.000 tonnum þyngra en
Harmony of the Seas, sem var áður stærsta
skemmtiferðaskip heims. Bæði skipin eru
í eigu fyrirtækisins Royal Caribbean, sem á
nú 25 skemmtiferðaskip.
Skipið siglir frá Barcelona á Spáni og fer í
fimm daga siglingu til Ítalíu. Skipið er hann-
að fyrir fólk sem hefur gaman af stórum og
miklum ferðamannastöðum og er svipað
Harmony of the Seas í uppbyggingu, en
bætir við ýmsum nýjum eiginleikum.
Þeirra á meðal er tveggja hæða fjöl-
skyldusvíta með rennibraut á milli hæða,
endurhannað göngusvæði með alls kyns
skemmtun, laser tag svæði og sjávarrétta-
veitingastaður. Auk þess hefur skipið fleiri
káetur en Harmony of the Seas.
Á skipinu rúmast 6680 farþegar og 2200
manns eru í áhöfn skipsins. Skipið hefur
verið í byggingu síðan árið 2015 í Frakk-
landi og kostaði meira en milljarð Banda-
ríkjadollara.
Fyrstu mánuðina mun það sigla um Mið-
jarðarhafið frá Barcelona, en svo verður
það flutt til Miami til að sigla um Karíba-
haf.
Stærsta skemmtiferðaskip heims í fyrstu ferð
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja
Það er bara best að
kynnast mér til
að skilja mig betur
8 KYNNINGARBLAÐ 7 . A P R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RFERÐIR
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-A
6
E
4
1
F
6
0
-A
5
A
8
1
F
6
0
-A
4
6
C
1
F
6
0
-A
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K