Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 26
Það hefur verið frábært færi, sólskin og bjart yfir,“ segir Arna Sigríð-ur Albertsdóttir glöð í bragði. Hún er stödd á heimaslóðum á Ísafirði í fríi heima hjá foreldrum sínum og hefur nýtt tímann vel til að fara á skíði. Það eru rúm tólf ár síðan Arna slasaðist alvarlega á skíðum í Geilo í Noregi. Þá aðeins sextán ára gömul. Hún hlaut mænuskaða eftir slysið en hefur byggt upp mikinn and- legan og líkamlegan styrk síðustu ár. Hún stundar handahjólreiðar, lík- amsrækt og skíði og stefnir ótrauð á þátttöku í Ólympíuleikum fatlaðra árið 2020. „Mig langaði mikið að komast á Ólympíuleikana 2016 en komst þá ekki inn. Ég er betur undirbú- in núna en þarf að leggja hart að mér engu að síður til að komast á leikana. Ég er ein í þessari íþrótt á Íslandi og þarf að safna stigum til þátttöku, yfirleitt eru íþróttir hreyfi- hamlaðra (t.d. sund og frjálsar) undir Íþróttasambandi fatlaðra, en handahjólreiðar eru undir Alþjóða- hjólreiðasambandinu, UCI. Þannig að ég þarf að fá keppnisleyfi og fleira frá Hjólreiðasambandi Íslands en ekki Íþróttasambandi fatlaðra,“ útskýrir Arna. „Þjóðirnar safna stig- um saman. Það er því erfitt verkefni fram undan að komast á leikana. Ég þarf að keppa á mörgum mótum. En finnst það gaman. Keppendur í Evrópu geta keyrt á milli móta. Flækjustigið er aðeins hærra hjá mér. Ég þarf að fljúga á milli. Ég hef alltaf þurft að sjá um þetta sjálf en oft fengið fína aðstoð,“ útskýrir Arna en Toyota ákvað nýverið að styrkja Örnu og þrjú önnur ung- menni til að fara á leikana. „Ég er nýbyrjuð í herferð með Toyota, sem heitir Start your impossible, við erum fjögur sem erum líkleg til að komast inn á Paralympics 2020 en höfum ekki komist þangað áður að fá styrki frá Toyota þangað til. Her- ferðin snýst um að skora á alls konar fólk að setja sér markmið, eitthvað sem þeim kannski finnst ómögulegt og eigum við fjögur að vera sendi- herrar þessarar herferðar á Íslandi,“ segir Arna en auk hennar lýsa Pat- rekur Andrés spretthlaupari, Már Gunnarsson sundmaður og Stefanía Guðmundsdóttir frjálsíþróttakona markmiðum sínum. Slysið í Noregi Arna var mikið í íþróttum sem barn. „Þannig er það svolítið hér á Ísafirði, ég var mikið í fótbolta og sundi og á skíðum. Skíðaíþróttin varð ofan á á unglingsárum,“ segir hún frá og rifjar upp slysið í Noregi þann 30. desember 2006. „Ég fór til Noregs í æfingabúðir með skíðafélaginu mínu hér á Ísa- firði. Slysið varð snemma í ferðinni. Ég var að hita upp fyrir æfingu og ég endaði á tré. Ég man lítið sem ekk- ert eftir slysinu. Ég missti meðvit- und. En það var gott fólk í kringum Ótrúlegt hvað lífið býður upp á Arna Sigríður Albertsdóttir hlaut mænuskaða eftir skíðaslys aðeins 16 ára gömul. Hún hefur byggt upp andlegan og líkamlegan styrk og stefnir á þátttöku í Ólympíuleikum fatlaðra. Hún segir að ríkið ætti að koma til móts við hreyfi- hamlaða og styrkja þá betur til þátttöku í íþróttum. Íþróttaiðkun og útivera hafi gert gæfumuninn í hennar lífi. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is „Mér finnst betra að hugsa um það sem ég hef, frekar en það sem ég hef misst,“ segir Arna. MyNd/gúSti productioNS Arna ferðast um heiminn og keppir í mótum í handahjól- reiðum. Hún þarf að safna stigum til þátttöku í Ól- ympíuleikum fatlaðra. mig. Það kom þyrla að sækja mig og flutti mig á Ulleval-sjúkrahúsið. Þar fór ég í tvær aðgerðir. Læknarnir þar úti opnuðu allt bakið og sáu að þetta leit ekki vel út. Mænan fór að miklum hluta í sundur,“ segir Arna. Þessar upplýsingar fékk hún þó ekki nærri því strax og fyrir því eru ríkar ástæður. „Ég fékk upplýsingarnar hægt og bítandi. Ég fékk tíma til að mæta afleiðingum slyssins. Læknar fara þAð Að verA í góðu formi og æfA, þAð eykur góðA líðAn. þAð hjálpAr mér Að glímA við fylgikvillA mænuSkAðA. ↣ 7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r26 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 0 -9 D 0 4 1 F 6 0 -9 B C 8 1 F 6 0 -9 A 8 C 1 F 6 0 -9 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.