Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 95
Á Bed & Breakfast hóteli er tekið vel á móti gestum og þeim gert hátt undir höfði í upphafi ferðalagsins. Á myndinni eru móttökustjórinn, Kolfinna (í miðju), ásamt Halldóri og Söndru í móttökunni.
Okkar gestir njóta
þess að vera með
áreiðanlegan ferðafélaga
sem hjálpar þeim af stað í
fríið með töluvert minni
áhyggjur í farangrinum.
Snorri Valsson
Við erum þekktust fyrir að bjóða ókeypis geymslu á bílum gesta okkar á meðan
þeir ferðast um heiminn, og að
skutla þeim til og frá Leifsstöð,“
segir Snorri Valsson hótelstjóri.
„Þetta hafa fjölmargir Íslendingar
nýtt sér um árabil, ekki síst þegar
þeir eiga snemmbúið flug og vilja
sleppa við stressið sem fylgir því að
vakna eldsnemma og keyra Reykja-
nesbrautina um hánótt.“
Ný heimkynni
Fyrir ári flutti hótelið rekstur sinn
í stærra og endurbætt húsnæði við
Keilisbraut 762. Með því varð til 130
herbergja samastaður fyrir og eftir
ferðalag, fyrir innlenda sem erlenda
ferðamenn. Kjarni rómaðrar
þjónustu Bed & Breakfast hótels er
til staðar en reksturinn hefur líka
tekið töluverðum breytingum.
„Þegar ég tók að mér þetta
verkefni og fór að spjalla við gestina
fékk ég stundum á tilfinninguna að
ég hefði ráðið mig í starf bílastæða-
varðar,“ upplýsir Snorri hótelstjóri
og brosir. „Fátt annað komst að hjá
þeim en að ódýrara væri að leggja
bílnum hjá okkur en við flugvöllinn
og borga fyrir stæði þar. Því varð
fljótt að markmiði mínu sem hótel-
stjóra að auka fagmennsku og skapa
andrúmsloft þar sem gestirnir sæju
eitthvað stærra og meira þegar þeir
hugsuðu til Bed & Breakfast hót-
elsins, þótt að sjálfsögðu verði alltaf
boðið upp á bílageymsluna góðu.“
Áreiðanlegur ferðafélagi
En þótt gestir Bed & Breakfast
hótelsins einblíndu í fyrstu á bíla-
geymsluna hefur það ekki dulist
neinum að nýi staðurinn býður upp
á annað og meira.
„Með því að bóka sig inn á Bed
& Breakfast hótelið eru ferða-
langarnir í raun að taka forskot
á fríið,“ útskýrir Snorri sem fær
mikið af gestum að norðan, vestan
Forskot á fríið og frítt stæði
Bed & Breakfast hótelið á Ásbrú við Keflavíkurflugvöll hefur verið íslenskum ferðalöngum til halds
og trausts frá árinu 2011. Það er þekktast fyrir að bjóða ókeypis geymslu á bílum gesta á meðan
ferðast er og að skutla þeim til og frá Leifsstöð. Þar er dásamlegt að hefja fríið í slökun og ró.
Herbergin eru búin dásamlegum rúmum, flatskjá og nútíma þægindum.
Morgunverðarborðið er girnilegt og er opnað klukkan fjögur á morgnana.
og austan, en líka af höfuðborgar-
svæðinu.
„Allir þessir gestir eiga sameigin-
legt að velja áhyggjuleysi fram yfir
stress og óðagot á brottfarardegi.
Þeir koma afslappaðir til okkar,
geta skráð sig inn í flugið með
fyrirvara, farið í rólegheitum yfir
hvort nokkuð hafi gleymst fyrir
ferðalagið, og skilað bíllyklunum
af sér í okkar hendur. Þá er fríið í
rauninni byrjað og gestirnir geta
notið þeirrar sælu að vera komnir í
frí með því að fá sér í tána á barnum
okkar, snæða kvöldverð á veitinga-
staðnum Langbest hér við hliðina,
eða bara leggjast snemma í koju,“
segir Snorri á heillandi hótelinu,
sem víst sparar tíma, fyrirhöfn og
peninga.
Bed & Breakfast hótelið býður
gestum sínum upp á vakningu í
gegnum símakerfið, morgunverður
er framreiddur frá klukkan fjögur
að morgni og á klukkustundar fresti
fer flugvallarskutlan frá hótelinu að
Leifsstöð.
„Á meðan flestir aðrir ferðalangar
eru illa sofnir af tilhugsuninni um
að gleyma einhverju eða lenda í
slyddu á leiðinni, njóta okkar gestir
þess að vera með áreiðanlegan
ferðafélaga sem hjálpar þeim af stað
í fríið með töluvert minni áhyggjur
í farangrinum,“ segir Snorri stoltur
og er löngu hættur að hafa áhyggjur
af hlutverki bílastæðavarðarins.
Frábært fyrir hópa
Í vetur hefur Bed & Breakfast hót-
elið tekið á móti alls kyns hópum
sem eru á leið á vit ævintýranna.
Þar nægir að nefna árshátíðarhópa
fyrirtækja á leið í sólina, íþrótta-
félög á leið á skíðamót og sauma-
klúbba í verslunarferðir.
„Það er virkilega gaman að taka
á móti stórum sem litlum hópum
ferðafólks sem ákveðið hefur að
njóta hvíldar hjá okkur daginn fyrir
flug. Það hristir hópinn vel saman
fyrir ferðalagið og byrjar gamanið á
jákvæðari nótum í stað þess að hitt-
ast fyrst í stressinu uppi í flugstöð.
Við vonum því að fólk sjái sér áfram
hag í því að bóka hjá okkur forskot
á fríið,“ segir Snorri.
Bed & Breakfast hótel er á Keilis-
braut 762 á Ásbrú við Keflavíkur-
flugvöll. Sími 426 5000. Sjá nánar á
bbhotel.is
Það er huggulegt ævintýri að hefja frí og slökun á Bed & Breakfast hóteli.
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 7 . a p r í L 2 0 1 8 FeRÐIR
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-A
B
D
4
1
F
6
0
-A
A
9
8
1
F
6
0
-A
9
5
C
1
F
6
0
-A
8
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K